Úrval - 01.10.1945, Page 101
DAUÐABITIÐ
99
Frakka í Krímstríðinu. I fyrri
heimstyrjöld beið her Austur-
ríkismanna mánuðum saman á
landamærum Serbíu, og þorði
ekki að ráðast inn í landið fyrr
en útbrotataugaveikin rénaði,
en hún lagði að velli 300.000
menn. Seinna fluttist hún til
Rússlands og drap þar 3 mil-
jónir manna.
Látið ykkur ekki detta í hug,
að slíkt sem þetta geti ekki
komið fyrir nú. Hitler lét flytja
fólk af stöðum, þar sem útbrota-
taugaveiki geisaði, til annara
svæða, þar sem enginn var
sýktur áður. Þýzki herinn
truflaði eðlilega lifnaðarhætti
fólksins og skildi eftir miljónir
af köldu og soltnu fólki. Matar-
skortur dregur úr viðnámi lík-
amans gegn útbrotataugaveik-
inni. Eldsneytisskortur veldur
því, að fólk hætir að fara í bað,
því, að fólk hættir að fara í bað,
sem það á og eykurþannigfjölg
unarmöguleika lúsanna. Við
slík skilyrði getur ein sýkt lús
orðið upphaf ægilegra atburða.
Á komandi vetri munu Þjóð-
verjar þjást af matar og elds-
neytisskorti, og útbrotatauga-
veikin hefir þegar skotið þar
rótum, eins og getið var hér á
undan.
Útbrotataugaveikinni veldur
baktería, sem nefnd er
Rickettsia prowazelci eftir
tveimur rannsóknarmönnum
sem dóu af sýkinni, þeim
Howard Tailor Ricketts frá
Findlay og Stanislas von
Prowazek frá Þýzkalandi.
Fatalúsin ber sýkina manna
á milli. Þetta hafði menn grun-
að í 200 ár, en það sannaðist
fyrst snemma á þessari öld.
Rússi nokkur sannaði fyrst
smitnæmi veikinnar með því
að dæla í sig blóði úr veikum
manni. Hann sýktist þegar í
stað. Næsta skrefið var það, að
starfsmaður hjá Pasteur stofn-
uninni, Charles Nicolle að nafni,
lét lýs smita einn apa af öðrum.
Lúsin festir sig við húðina og
grefur sér leið inn í æð. Þá
spýtir hún vökva í sárið, svo
að blóðið storknaði ekki meðan
hún nærist. Ef lúsin er sýkt,
fær maðurinn, sem verður fyrir
bitinu, skammt af útbrota-
taugaveikisýklum.
Eftir þetta líða 10 dagar án
þess að nokkuð gerist. Þá fær
sá, sem smitaðist, ákafa hita-
veiki. Hitinn getur orðið um 40
stig. Og þó að hitinn verði ekki
svo mikill, finnst sjúklingnum
hann vera að stikna lifandi.