Úrval - 01.10.1945, Qupperneq 120
118
TÍRVAL,
Þegar lestin staðnæmdist í
Albany, stökk ég þó á fætur.
„Komdu,“ sagði ég. Ég hafði
stokkið út úr lestinni, áður en
Martin gat náð í mig.
„Til hvers eigum við að fara
út hér?“, spurði hann gramur.
„Við þekkjum ekki nokkurn lif-
andi mann í Albany.“
„Við förum aftur til Rochest-
er, til þess að hitta Eastman,“
sagði ég. „Að minsta kosti skal
hann fá að vita hvað það er,
sem hann vill ekki styrkja.“
„Hann heldur að við séum vit-
laus,“ sagði Martin. „Ég skal
veðja að hann hleypir okkur
ekki inn fyrir dyr.“
En Eastman hleypti okkur
inn, og þegar við vorum komin
inn í skrifstofuna, var Martin
laus við allan taugaóstyrk og
algerlega rólegur alveg eins og
hann var vanur að vera, þegar
ljón eða nashyrningar gerði at-
lögu að kvikmyndatökuvélinni.
„Ég er þannig gerður, að ég
á bágt með að tala um hluti,
sem eru mér mikilsvirði,“ sagði
maðurinn minn. „Ég býst við,
að ég hafi ekki tekið það nógu
skýrt fram, að ætlun mín var
að vekja áhuga yðar á hug-
myndinni um kvikmynd af
dýralífinu við Paradísarvatnið,
en ekki að bjóða yður þátttöku í.
gróðaf yrirtæki. ‘ *
Eastman kinkaði kolli.
„Auðvitað," skaut ég inn í,
„er okkur ljóst, að þér þurfið
ekki á aðstoð okkar að halda
til þess að græða fé.“
Eastman virtist vera að reyna
að dylja bros. „Á ég að skilja
þetta svo,“ sagði hann, „að þér
lofið mér ekki stórkostlegum
arði af framlagi mínu?“
Martin hrissti höfuðið. „Ég
lofa aðeins að endurgreiða féið
með venjulegum vöxtum. Kostn-
aðurinn við fjögra ára leiðang-
ur til þessa vatns verður mikilL
Aðeins sá, sem lítur á hugmynd-
ina en ekki á ágóðann, mun
styrkja mig.“
„Þér eruð hreinskilinn, hr.
Johnson, það verð ég að segja.“
Eastman stóð upp og gekk út
að glugganum. „Mér fellur vel
við fólk, sem á drauma, og hefir
dugnað í sér til að gera þá að
veruleika,“ sagði hann allt í
einu. „Ég skal lána yður tíu
þúsund dollara, og þér megið
nefna mig sem stuðningsmann
yðar, þegar þér leitið fyrir yð-
ur annars staðar.“
Það var rigning, þegar við
stigum upp í New York lestina,
en mér féll rigningin vel, mér