Skinfaxi - 01.03.2016, Page 4
4 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Þ að eru liðin tíu ár síðan ég tók þátt
í mínu síðasta Unglingalandsmóti.
Ég verð að viðurkenna, að ég hef
átt dálítið erfitt með að kyngja því
hvað langur tími er síðan þetta var. En tím-
inn hefur hreinlega flogið áfram.
Þar sem þetta langur tími er liðinn síðan
ég keppti á síðasta móti – án þess að ég
hafi tekið neitt sérstaklega eftir því – þá er
við hæfi að bera saman Unglingalands-
mótið þá og nú. Mótin hafa tekið vaxtar-
kipp á ekki lengri tíma en áratug. Unglinga-
landsmótin eru ekki lengur litlu saklausu
mótin eins og á árum áður. Nú eru þátt-
takendur næstum tvö þúsund og móts-
gestir vel á annan tug þúsunda! Ástæðan
fyrir þessari sprengingu er meðal annars
sú að keppnisgreinum hefur fjölgað og
því fleiri sem taka þátt í mótinu.
Af þessari ástæðu velti ég því fyrir hvort
Unglingalandsmótið er ennþá mót.
Gaman að keppa í íþróttum
Það má alveg færa rök fyrir því að þótt
þetta sé orðinn það stór viðburður eins
og raunin er, þá megi alveg kalla þetta
íþróttamót í stað hátíðar. Leiðarljós þeirra
sem fara á mótið á hverju ári er nefnilega
að hafa gaman af því að keppa í íþróttum.
Auðvitað koma margir á Unglingalands-
mót með það fyrir augum að sigra í sinni
grein. Flestir – þar á meðal gerði ég það
– taka þátt í mótinu til að hitta önnur ung-
menni á sínum aldri, eignast nýja vini og
hafa gaman af bæði íþróttum og afþrey-
ingunni sem í boði er á mótinu á heilbrigð-
an hátt.
Keppt í tölvuleikjum
Eins og ég kom að áður er Unglingalands-
mótið farið að laða að sér ungmenni og
þátttakendur sem fram til þessa hafa ekki
keppt á mótum – jafnvel ekki tekið nema
að litlu leyti þátt í íþróttum. Á síðasta
Unglingalandsmóti á Akureyri kepptu
krakkar í tölvuleiknum FIFA og er það dæmi
um nýbreytni sem gekk upp og tókst vel.
Íþróttakeppni snýst nefnilega um það að
vera með, taka þátt.
Það er einmitt vegna þessarar þróunar
sem ég tel Unglingalandsmót UMFÍ vera
að mjakast frá því að vera íþróttamót í að
verða að íþróttahátíð þar sem þátttakend-
ur reyna sig í alls konar íþróttum, þar sem
heilbrigði er gert hátt undir höfði og lýð-
heilsan er í fyrirrúmi.
Keppt í mörgum greinum
Ég mun mæta á Unglingalandsmót UMFÍ
í Borgarnesi. Í raun get ég ekki beðið eftir
því að sjá ungmennin etja kappi í alls kyns
greinum, ekki bara einni heldur tveimur,
þremur og jafnvel fjórum, hlaupandi á
milli mótsstaða með stressaða foreldra
á eftir sér, sligaða af íþróttadótinu – stund-
um eru báðir foreldrarnir með eða annað
ef systkini keppa og þau hafa þurft að
skipta liði. Þetta er kannski erfitt yfir dag-
Unglingalandsmót UMFÍ:
Er það íþróttamót eða íþróttahátíð?
inn. En um kvöldið, þegar allir hafa keppt
og fengið verðlaun, farið í sund og sturtu
er farið á kvöldskemmtun og dansað fram
eftir kvöldi. Þá hverfur stressið og þreytan
á braut.
Fyrir mér verður Unglingalandsmót
UMFÍ alltaf það skemmtilegasta. Þar er
fjörið og mesta skemmtunin. Sjáumst
hress í Borgarnesi!
Björn Grétar Baldursson,
stjórnarmaður UMFÍ
Leiðari Skinfaxa: