Skinfaxi - 01.03.2016, Blaðsíða 6
6 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Skinfaxi 3. tbl. 2016
Ritstjóri: Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
Ábyrgðarmaður: Haukur Valtýsson,
formaður UMFÍ
Ljósmyndir: Jón Aðalsteinn Bergsveinsson,
Einar Skúlason, Vilhelm Gunnarsson, Gunnar
Gunnarsson o.fl.
Umbrot og hönnun: Indígó
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja
Prófarkalestur: Helgi Magnússon
Auglýsingar: Miðlun ehf. og Gunnar Bender
Ritnefnd:
Gunnar Gunnarsson formaður, Örn Guðnason,
Birgir Örn Sigurðsson, Jón Páll Hreinsson og
Vigdís Diljá Óskarsdóttir.
Skrifstofa UMFÍ/Skinfaxa:
Þjónustumiðstöð UMFÍ
Sigtúni 42, 105 Reykjavík
Sími: 568-2929
Netfang: umfi@umfi.is
Heimasíða: www.umfi.is
Starfsfólk UMFÍ:
Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri
Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, kynningar-
fulltrúi og ritstjóri Skinfaxa
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi og
framkvæmdastjóri Landsmóta
(með aðsetur á Sauðárkróki)
Sabína Steinunn Halldórsdóttir, landsfulltrúi
og verkefnastjóri
Ragnheiður Sigurðardóttir, landsfulltrúi og
verkefnastjóri
Guðbirna Kristín Þórðardóttir, ritari.
Stjórn UMFÍ:
Haukur Valtýsson, formaður
Örn Guðnason, varaformaður
Hrönn Jónsdóttir, ritari
Helga Jóhannesdóttir, gjaldkeri
Ragnheiður Högnadóttir, meðstjórnandi
Gunnar Gunnarsson, meðstjórnandi
Björn Grétar Baldursson, meðstjórnandi
Varastjórn UMFÍ:
Þorgeir Örn Tryggvason
Kristinn Óskar Grétuson
Sigurður Óskar Jónsson
Guðmundur Sigurbergsson
Forsíðumynd:
Barbára Sól Gísladóttir Hlíðdal er hress 15 ára
fótboltastelpa á Selfossi. Gunnar Gunnarson
tók myndina sem prýðir forsíðu Skinfaxa að
þessu sinni af Barbáru þegar hún keppti á
Unglingalandsmóti UMFÍ á síðasta ári.
Rætt er við hana um mótið á blaðsíðu 61 í
Skinfaxa.
„Hátíðin okkar gekk mjög vel enda rættist úr veður-
spánni,“ sagði Erla Gunnlaugsdóttir, starfsmaður UÍA,
um Sumarhátíð UÍA og Síldarvinnslunnar í Fljótsdals-
héraði en hún var haldin dagana 8.–10. júlí sl. Hátíðin
hefur verið haldin árlega aðra vikuna í júlí síðan árið
1975 og var þetta 41. árið sem hún var haldin.
Þátttakendur á sumarhátíðinni voru í kringum
150 sem var mjög gott enda lofaði veðurspáin ekki
góðu. Sunnudaginn 10. júlí brast á með sól og blíðu
og 13 gráðu hita.
Á meðal skemmtilegheitanna á Sumarhátíðinni
þetta árið voru ritlistarsmiðjur á fyrsta mótsdegi og
Landsbankapúttmót barna, unglinga og eldri borg-
ara. Þá var haldin kökuskreytingarkeppni og var þar
slegið met enda 25 sem skelltu sér í kökuskreytingar.
Auk þessa var keppt í fjallahjólreiðum, bogfimi, cross-
fit, ljóðaupplestri, sundi, knattspyrnu, frisbí, frjálsum
og mörgum fleiri greinum.
Athygli vakti kraftur í félagsmönnum Ungmenna-
félagsins Neista á Djúpavogi sem fjölmenntu á hátíð-
ina. Þaðan komu 50 þátttakendur sem meðal annars
leigðu sér stórt hús undir fjöldann.
Sólin lék við gesti Sumarhátíðar UÍA
N æsta Unglingalandsmót UMFÍ verð-
ur haldið á Fljótsdalshéraði um
verslunarmannahelgina 2017.
Mótið var síðast haldið á Héraði árið 2011
en verður nú haldið á ný, og sem fyrr
undir nafni Ungmenna- og íþróttasam-
bands Austurlands (UÍA) í samstarfi
við sveitarfélagið Fljótdalshérað.
Unglingalandsmót UMFÍ var fyrst haldið á
Dalvík árið 1992 og því verður mótið á Héraði 25
ára afmælismóti.
Við bætist að þetta verður tuttugasta árlega
mótið, en Unglingalandsmótin voru
haldin á tveggja ára fresti fyrstu árin.
Unglingalandsmót UMFÍ eru vímulaus
íþrótta- og fjölskylduhátíð sem haldin
er árlega og ætíð um verslunar-
mannahelgina.
Mótið er öllum opið á aldrinum
11–18 ára. Allir geta tekið þátt, óháð
hvort viðkomandi sé í einhverju íþróttafélagi
eða ekki.
Unglingalandsmót UMFÍ 2017