Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2016, Blaðsíða 37

Skinfaxi - 01.03.2016, Blaðsíða 37
 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 37 Einstaklega skemmtilegt verkefni Í inngangi að göngu- bókinni 2003 segir Helgi M. Arngrímsson m.a.: „Þetta hefur verið ein- staklega skemmtilegt verkefni því alls staðar eru góðar viðtökur, hvort sem er hjá þeim sem „eiga“ leiðirnar eða hjá þeim sem hafa nýtt sér leiðabókina. Við öflun upplýsinga hafði ég sam- band við fjölda fólks hjá ferðaþjónustunni, sveitarfélögunum og hjá ungmennafélags- hreyfingunni. Ég fékk ábendingar um veru- legan fjölda áhugaverðra leiða.“ Áhugaverð fjöll fyrir alla fjölskylduna Í inngangi að göngu- bókinni 2002 segir Ásdís Helga Bjarnadóttir, for- maður umhverfisnefndar UMFÍ: „Árið 2002 hefur verið tileinkað fjöllum, myndun þeirra, sögu og dulúð. Umhverfis- nefnd UMFÍ og héraðs- samböndin vilja því bjóða þér á fjöllin í sumar. Hér á eftir eru tilgreind áhugaverð fjöll sem í nær öllum tilvikum eru auðveld uppgöngu fyrir göngufæra fjölskyldumeð- limi. Þann 22. júní verður farið með gesta- bækur á þessi fjöll sem allir eru beðnir að rita nafn sitt og heimilisfang í. Gestabæk- urnar verða í póstkössum sem Íslandspóst- Helgi M. Arngríms- son (1951–2008), verkefnisstjóri. Fjölskyldan á fjallið F jölskyldan á fjallið hefur frá upphafi verið hluti af gönguverkefni UMFÍ. Að því stóðu Umhverfisnefnd UMFÍ og héraðssamböndin. Í fyrstu göngubókinni tilnefndu 18 sambandsaðilar UMFÍ samtals 21 áhugavert fjall. Árið eftir voru 20 sam- bandsaðilar sem tilnefndu samtals 22 fjöll. Árið 2004 tilnefndi 21 sambandsaðili sam- tals 24 fjöll. Lögð var áhersla á að þau væru auðveld uppgöngu fyrir göngufæra fjöl- skyldumeðlimi, eins og sagði í göngubók- inni. Farið var með póstkassa og gestabók á fjöllin þar sem allir voru beðnir að rita nafn sitt og heimilisfang í. Um haustið voru svo dregnir út vinningshafar og nöfn þeirra birt á heimasíðu UMFÍ. Heimasíðunni ganga.is var einnig komið upp þar sem finna mátti frekari upplýsingar um gönguleiðirnar. Í upphafi voru gönguleiðirnar tengdar póstnúmerum. Til dæmis voru fimm gönguleiðir tengdar póstnúmeri 356. Gönguleið 356-a hét Frambúðir, 356-b Eftir Sölvahamri, 356-c Neðstagata – Helluhraun, 356-d Rauðfeldargjá í Botnsfjalli og 356-e Bárðarlaug. Ásdís Helga Bjarna- dóttir formaður, umhverfisnefndar. ur lánar. Bækurnar verða sóttar í lok ágúst og dregnir út vinningshafar. Nöfn þeirra verða birt á heimasíðunni www.umfi.is.“ Tengjumst náttúrunni beint og milliliðalaust Í Göngubókinni 2004 er ávarp frá Sigríði Önnu Þórðardóttur umhverfis- ráðherra. Þar segir hún m.a.: „Náttúra Íslands er einstæð að fegurð og fjölbreytileika. Fugla- söngurinn, mosinn, lækirnir, kjarrið, melarnir, hraunið, hverirnir, fjöllin, jöklarnir, óbyggðirnar, kyrrðin. Allt er þetta greypt djúpt í vitund Íslendinga og fátt, ef nokkuð, jafnast á við að ferðast um og njóta þessara gæða landsins. Engin leið er betri til þess en að ferðast um landið á tveimur jafnfljótum. Með göngu- ferðum tengjumst við náttúru landsins beint og milliliðalaust.“ Feta í fótspor forfeðranna og ganga Jónína Bjartmarz um- hverfisráðherra segir í ávarpi í göngubókinni 2006: „Besta leiðin til að endurvekja, kynnast og varðveita fornar leiðir er að feta í fótspor forfeðr- anna og ganga. Fátt er betra en að ferðast um landið á tveimur jafn- fljótum. Þannig tengj- umst við náttúru landsins beint og milliliðalaust.“ Sigríður Anna Þórðardóttir, fv. umhverfisráðherra. Jónína Bjartmarz, fv. umhverfisráð- herra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.