Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2016, Blaðsíða 23

Skinfaxi - 01.03.2016, Blaðsíða 23
 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 23 BORGARNES Tengsl Borgarness við Egils sögu eru órjúf- anleg enda ber íþróttafélag bæjarins nafn- ið Skallagrímur. Höfuðpersóna Eglu kem- ur víða við í örnefnum bæjarins. Í skrúð- garðinum Skallagrímsgarði er minnis- merki sem sýnir Egil flytja lík Böðvars son- ar síns sem drukknaði í Hvítárósum. Vest- an við Borgarnes er Brákarey sem kennd er við Þorgerði brák, ambátt á Borg, sem ól Egil Skalla-Grímsson upp fyrstu árin. Gaman er að nýta tækifærið og kynna sér Egils sögu ef fólk á ferð um Borgarnes. Það er hægt að gera í Landnámssetri Íslands sem er skammt frá Brákarey og þar er hægt að kynnast Eglu og landnáms- sögunni í nútímaútfærslu. BJÖSSARÓLÓ Bjössaróló er skemmtilegur heimatilbúinn leikvöllur, gerður af Birni Guðmundssyni, trésmíðameistara í Borgarnesi, sem fædd- ur var árið 1911. Björn var nýtinn og mót- fallinn því að fólk henti nýtanlegum hlut- um. Í samræmi við þetta viðhorf smíðaði hann öll leiktækin á Bjössaróló úr hlutum sem hafði verið hent eða nýttust öðrum ekki lengur. Björn hóf smíði leikvallarins árið 1979. Inngangurinn að Bjössaróló er krókóttur. Þetta gerði Björn af ráðnum hug því að það taldi hann kenna börn- unum að flýta sér ekki um of í lífinu. Björn hélt Bjössaróló sjálfur við fram yfir áttrætt. Hann lést árið 1997. EINKUNNIR Norðan Borgarness er fólkvangurinn Einkunnir. Nafnið er fornt og kemur fyrir í Egils sögu. Svæðið hentar vel til útivistar, þar eru skemmtilegar gönguleiðir og afar fjölbreytt fuglalíf. Einkunnir henta vel til lautarferða en munum að ganga vel um. SAFNAHÚS BORGARFJARÐAR Í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi er að finna mjög áhugaverðar sýningar. Sýn- ingin Börn í 100 ár er myndræn sögusýn- ing um Ísland á 20. öld, séð frá sjónarhóli barna. Þetta er sérhönnuð sýning fyrir börn en hentar fullorðnum einnig afar vel. Ævin- týri fuglanna er einstaklega falleg sýning á merku safni uppstoppaðra íslenskra fugla. Sundlaugin Borgarnesi Íþróttamiðstöðin í Borgarnesi er í miðjum bænum. Þar er glæsileg aðstaða til íþrótta- iðkana. Sundlaugin er vinsælust hjá þeim sem heimsækja bæinn enda er hún með þeim flottari á landsbyggðinni, með úti- og innisundlaug, vatnsrennibrautum, heit- um pottum, vaðlaug, eimbaði og góðri sól- baðsaðstöðu. Borgarfjörður er stútfullur af sögum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.