Skinfaxi - 01.03.2016, Blaðsíða 26
26 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Í upphafi 20. aldar átti Ísland ekki eigin
fána, enda ekki sjálfstætt ríki. Sjálfstæði
landsins og sérstakur fáni voru frá upp-
hafi baráttumál ungmennafélaga og
beittu frumkvöðlar Ungmennafélags
Akureyrar, Jóhannes Jósefsson og félag-
ar, sér fyrir skoðanakönnun um land allt
vorið 1907 um það hvernig fáninn ætti
að vera. Blár fáni með hvítum krossi
hlaut yfirgnæfandi fylgi og var hann
nefndur Hvítbláinn. Fáninn var talinn
tákna bláma himins og fjalla og hrein-
leika íslenskra jökla. Einar Benediktsson
skáld orti kvæði til fánans og sagði:
Rís þú, unga Íslands merki,
upp með þúsund radda brag.
Tengdu oss í einu verki
anda, kraft og hjartalag.
Rís þú, Íslands stóri, sterki
stofn, með nýjan frægðardag.
Skín þú fáni eynni yfir,
eins og mjöll í fjallahlíð.
Fangamarkið fast þú skrifir
fólks í hjartað ár og síð.
Munist hvar sem landinn lifir
litir þínir alla tíð.
Árið 1915 eignuðust Íslendingar sinn
þrílita þjóðfána að tillögu fánanefndar
sem konungur hafði skipað. Varð Hvít-
bláinn þá sjálfkrafa fáni UMFÍ og þar
með allra ungmennafélaga sem höfðu
tekið við hann ástfóstri.
Hvítblái fáninn