Skinfaxi - 01.03.2016, Blaðsíða 16
16 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Sunnudagur 31. júlí
Sunnudagur 31. júlí
09:00–18:00 Hoppukastalar og leiktæki Skallagrímsgarður
09:00–18:00 Frisbígolf Íþróttamiðstöð
10:00 Fjallahlaup upp á Hafnarfjall Hjálmaklettur
10:00 Fjallganga upp á Hafnarfjall Hjálmaklettur
10:00–12:00 Leiklist fyrir 4.–6. bekk Hjálmaklettur
10:00–12:00 Sprelligosaklúbbur Leikskólinn Klettaborg
10:00–11:00 Fótboltamót, stúlkur 8–10 ára**
11:00–12:00 Fótboltamót, stúlkur 5–7 ára**
11:00–13:00 Andlitsmálun UMSB-hús
11:00–14:00 Kynning/leiðsögn á götufótbolta Fyrir framan íþróttahús
12:00–18:00 Kynning á pílukasti Félagsmiðstöðin Óðal
12:00–18:00 Markaður Englendingavík
13:00–15:00 Leiklist fyrir 7.–10. bekk Hjálmaklettur
13:00–15:00 Sumarfjör fyrir 1.– 4. bekk Grunnskólinn Borgarnesi
16:00–18:00 Minute to win it, keppni fyrir alla Skallagrímsgarður
15:00–17:00 Kynning/leiðsögn á götufótbolta Fyrir framan íþróttahús
18:00–22:00 Hoppukastalar Tjaldsvæði
21:00–24:00 Kvöldvaka og flugeldasýning Tjaldsvæði
(Amabadama/Dikta/dj Raven)
Fimmtudagur 28. júlí
09:00–18:00 Frisbígolf Íþróttamiðstöð
12:00–18:00 Hoppukastalar og leiktæki Skallagrímsgarður
13:00–15:00 Sumarfjör fyrir 1.– 4. bekk Grunnskólinn Borgarnesi
16:00 Bíó, teiknimynd sýnd Félagsmiðstöðin Óðal
18:00–22:00 Hoppukastalar Tjaldsvæði
22:00–23:45 Kvöldvaka (Emmsje Gauti/ Tjaldsvæði
Úlfur Úlfur/Bára Sara/dj Sveppz)
Föstudagur 29. júlí
09:00–18:00 Hoppukastalar og leiktæki Skallagrímsgarður
09:00–18:00 Frisbígolf Íþróttamiðstöðin
10:00–12:00 Sprelligosaklúbbur* Leikskólinn Klettaborg.
10:00–12:00 Leiklist fyrir 4.– 6. bekk Hjálmaklettur
11:00–13:00 Andlitsmálun UMSB-hús
13:00–15:00 Sumarfjör fyrir 1.– 4. bekk Grunnskólinn Borgarnesi
13:00–15:00 Leiklist fyrir 7.–10. bekk Hjálmaklettur
16:00–17:00 Víkingasögur Skallagrímsgarður
17:00 Karokí fyrir alla Skallagrímsgarður
18:00–22:00 Hoppukastalar Tjaldsvæði
18:30 Fjölskyldujóga Skallagrímsgarður
20:00–21:00 Mótssetning Skallagrímsvöllur
(Jón Jónsson, Bára Sara)
21:30–22:30 Leiksýning um svartagaldur Landnámssetur, söguloft
22:00–23:45 Kvöldvaka Tjaldstæði
(Hildur/Jón Jónsson/dj Sveppz)
Laugardagur 30. júlí
09:00–18:00 Hoppukastalar og fótboltapool Skallagrímsgarður
09:00–18:00 Frisbígolf Íþróttamiðstöð
10:00–11:00 Fótboltamót, drengir 8–10 ára**
10:00–12:00 Leiklist fyrir 4.– 6. bekk Hjálmaklettur
10:00–12:00 Sprelligosaklúbbur* Leikskólinn Klettaborg
10:00 Gönguferð um Borgarnes Landnámssetur
11:00–12:00 Fótboltamót, drengir 5–7 ára**
11:00–13:00 Andlitsmálun UMSB-hús
11:00–14:00 Kynning/leiðsögn á götufótbolta Fyrir framan íþróttahús
12:00–18:00 Kynning á pílukasti Félagsmiðstöðin Óðal
12:00–18:00 Markaður Englendingavík
13:00–14:00 Sundleikar fyrir 10 ára og yngri Sundlaug
13:00–15:00 Kynning á skotfimi Skotæf.svæði Brákarey
14:00–16:00 Sumarfjör fyrir 1.– 4. bekk Grunnskólinn Borgarnesi
15:00 Karokí fyrir alla Skallagrímsgarður
16:00 Kennsla í sirkustrixum Skallagrímsgarður
15:00–17:00 Kynning/leiðsögn á götufótbolta Fyrir framan íþróttahús
18:00–22:00 Hoppukastalar Tjaldsvæði
21:00–23:30 Kvöldvaka Tjaldsvæði
(Frikki Dór/Glowie/Ingó/dj Raven)
AFÞREYINGARDAGSKRÁ
(Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar).
** Fótboltamót 10 ára og yngri: Staðsetning auglýst síðar.
Frisbígolf: Kominn er flottur frisbívöllur í Borgarnes sem tilvalið er að nýta
sér yfir helgina. Í íþróttahúsinu er hægt að fá frisbídisk til að nota, borgaðar
eru 1000 krónur í tryggingargjald og þær síðan endurgreiddar þegar diskn-
um er skilað heilum til baka.
Leiklist: Halldóra Guðjónsdóttir býður upp á leiklistarnámskeið þar sem
markmið námskeiðsins er að hafa gaman og að allir taki virkan þátt. Þar
verður æfður spuni, framkoma, samvinna og leiktækni. Námskeiðið verður
haldið í Hjálmakletti, skráning fer fram á staðnum.
* Sprelligosaklúbbur fyrir 6 ára og yngri: Þessi klúbbur er fyrir krakka á
leikskólaaldri. Jóhanna María, starfsmaður á leikjanámskeiði hjá Borgar-
byggð, hefur umsjón og verður ýmislegt brallað saman þessa daga. 4 ára
og yngri skulu koma í fylgd með foreldrum.
Víkingasögur: Geir Konráð nær svo sannarlega vel til krakkanna. Þau
verða ekki svikin af að mæta og hlusta á sögurnar hans í Skallagrímsgarði
klukkan 16:00 á föstudeginum. Hann ætlar einnig að bjóða sama dag
landsmótsgestum frítt á leiksýninguna sína sem haldin er á söguloftinu í
Landnámssetrinu. Sýningin er á auðveldri ensku og er ætluð fyrir 10 ára og
eldri, mjög skemmtileg sýning sem við mælum með að þið sjáið.
Karókí fyrir alla: Allir eru velkomnir að mæta í Skallagrímsgarðinn og taka
eitt lag. Skráning verður á staðnum.
Kynning á pílukasti: Íslenska pílukastssambandið verður með kynningu
á íþrótt sinni á laugardag og sunnudag kl. 12:00–18:00. Boðið verður upp á
smærri keppnir og alls konar uppákomur. Við mælum með að þið kíkið upp
í félagsmiðstöðina Óðal og prófið þessa skemmtilegu íþrótt.
Markaður í Englendingavík: Flóa-, mat- og handverksmarkaður verður
haldinn á laugardag og sunnudag í Englendingavíkinni. Þar verður keppt í
sultugerð og boðið upp á tónlist og fjölbreytta skemmtun fyrir börn og
fullorðna.
Fjallahlaup og fjallganga upp á Hafnarfjall: Stefán og Geirlaug fara
með sitthvorn hópinn upp á Hafnarfjall á sunnudeginum kl. 10:00. Veljið
þann hóp sem hentar ykkur þegar þið hittist í Hjálmakletti.
Götufótbolti: Á Unglingalandsmótinu verður boðið upp á „götufótbolta“
þar sem leikni og trix skipta öllu máli. Til að sýna og kenna þetta koma tveir
ungir strákar frá Danmörku, þeir Peter Kristoffer Licht og Omid Karbalaie
Hosseinkani. Þeir koma báðir frá „Copenhagen Panna House“ sem er eins
konar samtök fyrir götufótboltann. Þeir verða með kynningu og leiðsögn á
laugardag og sunnudag kl. 11–14 og 15–17, báða dagana.
Sumarfjör fyrir 1.– 4. bekk: Sumarfjör er leikjanámskeið sem starfrækt
er í Borgarbyggð. Þessa helgi verður boðið upp á skemmtilega afþreyingu
fyrir 1.–4. bekk. Mæting er í Grunnskóla Borgarness. Skráning á staðnum.