Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2016, Blaðsíða 57

Skinfaxi - 01.03.2016, Blaðsíða 57
 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 57 tók inn mikið af vatni og var hálftíma að fleyta mér áfram 400 metra í 50 metra laug,“ segir Gunnar en hann stakk sér í fyrsta sinn í laugina á Landsmótinu á Ísafirði. „Ég hafði aldrei stungið mér fyrr og ætlaði að spyrna mér frá bakkanum. Þegar á hólminn var komið fannst mér það svo aulalegt að þarna stakk ég mér með hinum. Það gekk vel.“ Gunnar gerði meira en að keppa ein- göngu í sundi. Hann var líka einn þriggja karla í þríþraut. Sund er ein greinanna og lenti hann í þriðja sæti að loknu fimm kíló- metra hlaupi. Og hvernig finnst þér að synda? „Þetta er orðið eitt af því skemmtilegasta sem ég geri,“ segir Gunnar. Hann keppti í fyrsta sinn á Landsmóti UMFÍ 50+ og eys það lofi. „Þetta er meiriháttar gaman. Ég er að hitta hér menn sem ég keppti við í körfubolta áður fyrr og hef ekki séð í 40 ár. Það er rosalega gaman!“ Þessi maður var ósyndur fyrir fjórum árum! Í þróttaferill Gunnars er langur. Hann var mikið á hreyfingu á sínum yngri árum, hóf ferilinn í körfubolta með Njarðvík og varð Íslandsmeistari í júdó um þrítugt. Hann varð margfaldur Íslands- meistari í „old boys“-flokki í körfu. Grein- arnar, sem Gunnar hefur prófað, eru fjöl- margar auk þess sem hann hefur tekið þátt í ýmsum áhættuíþróttum og reynt m.a. fyrir sér í sviffallhlífarstökki fram af 1000 metra hárri klettabrún í Slóveníu. Gunnar hefur hlaupið og hjólað mikið en sjaldnar synt. Gunnar var reyndar ósyndur þar til hann ákvað að taka þátt í þríþraut fyrir fjórum árum, þá 67 ára gamall. Af hverju kunnir þú ekki að synda? „Ég veit það ekki, en ætli það hafi ekki verið þrjóska, eitthvað sem ég beit í mig. Ég bókstaflega hataði sund. En stelpan mín keppti oft í sundi og ég dæmdi í sundi. Það var einmitt stelpan sem fékk mig til að fara í þríþrautina og boðaði mig í sundkennslu í Keflavíkurlaug. Það var algjört helvíti, ég Það vakti athygli við afhendingu verðlauna í sundi í miðbæ Ísafjarðar þegar Ingimundur Ingimundarson frá Ungmennasambandi Borgarfjarðar stóð á verðlaunapalli og hrópaði upp yfir sig: „Þessi maður var ósyndur fyrir fjórum árum!“ Þar átti Ingimundur við Gunnar Örn Guðmundsson frá Njarðvík, sem lenti í öðru sæti í 100 metra skriðsundi í aldursflokki 70–74 ára, einni af þeim fjórum sundgreinum sem hann keppti í. Gunnar Örn með verð- launapening í miðjunni. Gunnar Örn ásamt Ingimundi. Landsmót UMFÍ 50+ á Ísafirði: Minnismerki um mótið Hefð er fyrir því að formaður UMFÍ afhendi fulltrúa þess bæjarfélags sem heldur landsmót minnismerki um mótið. Á árum áður voru bautasteinar með áföstum skildi settir upp í bæjar- félög-um í tengslum við framkvæmd móta. Síðustu ár hafa minningarskildir komið í stað steina. Á landsmótinu á Ísafirði afhenti Haukur Valtýsson, for- maður UMFÍ, Nanný Örnu Guðmunds- dóttur, forseta bæjarstjórnar Ísafjarðar- bæjar, skjöldinn sem þakklætisvott um mótið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.