Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2016, Blaðsíða 36

Skinfaxi - 01.03.2016, Blaðsíða 36
36 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands Kostar lítið meira en að koma sér af stað Í inngangi í fyrstu göngu- bókinni segir Björn Bjarn- dal Jónsson, þáverandi formaður UMFÍ: „Í tæp- lega eina öld hefur ung- mennafélagshreyfingin á Íslandi unnið að ræktun lýðs og lands. Og áfram skal haldið. Ein leið sem fær okkur til að hugsa um landið okkar og nátt- úru er að fara út að ganga. Við verðum bergnumin af stórbrotinni nátt- úru landsins og kunnum betur að meta hana og förum ósjálfrátt að huga að umhverfinu.“ Hann segir ennfremur: „Með því að njóta náttúrunnar á göngu fáum við heilsubót í kaupbæti og náum að byggja upp líkamleg- an sem andlegan styrk. Það sem gerir göngu að betri heilsurækt en flest annað er að hún kostar lítið meira en að koma sér af stað.“ Þægilegur göngutúr um landið okkar Í fyrstu göngubókinni var einnig ávarp frá Jóni Kristjánssyni, þáverandi heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra. Hann segir m.a.: „Við höfum í okkar daglega umhverfi fjölbreytta möguleika til hreyfingar sem eru vannýttir. Við verðum að halda vöku okkar og nýta okkur þá möguleika sem við höfum til reglubund- innar hreyfingar, okkur til heilsubótar. Ganga hentar sérlega vel í þessu skyni fyrir alla fjölskylduna og hvet ég því ykkur, Íslendingar góðir, til að hafa það hugfast á ferð um landið jafnt sem heima og fá ykkur þægilegan göngutúr um landið okkar.“ UMFÍ hefur á hverju ári, allt frá 2002, gefið út litla göngubók þar sem finna má stuttar gönguleiðir víðs vegar um landið. Í fyrstu göngubókinni voru 144 gönguleiðir. Árið eftir fjölgaði þeim í 238, árið 2004 voru þær 265 og ári síðar 288. Árið 2008 voru þær 289 og 2009 alls 290. Síðustu ár hafa þær verið 280 talsins. Í fyrstu göngubókinni segir að til að vera með í verkefninu þurfi leiðin að vera „fjölskylduvæn“, vel merkt, þ.e. stikuð eða stígur, um 0,5–2 klst. ganga og að helst þurfi að vera til kort eða bæklingur um hana. Frá 2002 til 2008 var eitt Íslandskort í bók- inni þar sem allar gönguleiðirnar voru merkt- ar inn með póstnúmerum. Í bókinni, sem kom út 2009, var landinu skipt upp í 12 landshluta- kort. Þau voru Reykjavík, Suðvesturland, Vest- urland, Vestfirðir, Norðvesturland, Norður- land, Norðausturland, Austurland, Suðaustur- land 1, Suðausturland 2 og Suðurland. Árið 2013 var hætt að auðkenna gönguleiðirnar eftir póstnúmerum. Þess í stað fengu þær tvo bókstafi sem gáfu til kynna landshluta og á eftir kom númer leiðarinnar. Verkefnið Göngum um Ísland Ungmennafélag Íslands og heilbrigðisráðuneytið ákváðu árið 2002 að fara af stað með sérstakt átak til þess að fá fólk til að ganga reglulega sér til heilsubótar. Hug- myndin með verkefninu, sem fékk nafnið Göngum um Ísland, var einnig að fá ferðafólk til að staldra örlítið við á ferðum sínum um landið og fara í stuttar gönguferðir. Sérstök verkefnisstjórn var skipuð og þjónustumiðstöð UMFÍ á Egilsstöðum falið að sjá um verkefnið. Helgi M. Arngrímsson var ráðinn starfsmaður Göngum um Ísland. Sá hann um undirbúning og kom verkefninu af stað. Björn Bjarndal Jónsson, fv. for- maður UMFÍ. Jón Kristjánsson, fv. heilbrigðis- og tryggingamála- ráðherra. Almenningsíþróttaverkefni UMFÍ Örn Guðnason tók saman.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.