Skinfaxi - 01.03.2016, Blaðsíða 41
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 41
Vaka Rögnvaldsdóttir
segir foreldra
verða að vera
fyrirmynd
Nokkur atriði
um rannsóknina
• Árið 2015 tóku nemendur í
sex skólum þátt í rannsókninni
– það er um 10% unglinga á
þessum aldri.
• Nemendur í 10. bekk grunn-
skóla sofa á skóladögum
í 6,2 klst. Ráðlagður svefn
er 8 klst.
• Um helgar sofa ungmennin
í 7,3 klst.
• Aðeins um 8% 15 ára drengja
fá nægan svefn og
13% stúlkna.
• Þrek unglinga hefur minnkað
um 8–10% frá árinu 2003.
• Unglingar hafa þyngst
um 4 kg á sama tíma.
hætti en áður tengt svefnrannsóknirnar
við mælingar á þreki, hreyfingu, holdafari
og almennri líðan.“
Hvernig er heilsa barnanna?
„Við erum ekki komin það langt að geta
alhæft hver heilsan er. En við teljum okkur
komin með vísbendingar. Næsta verkefni
okkar verður að skoða þessa þætti saman,“
segir Vaka.
Líkamsklukka unglinga
breytist
Að sögn Vöku sýna niðurstöður klínískra
erlendra rannsókna að á unglingsaldri eiga
sér breytingar stað í líkama barna sem veld-
ur því að þau syfjar seinna og því þurfa
þau að sofa lengur fram eftir morgni.
Grípa má til einfaldra ráða til að vega upp
á móti þessu, að sögn Vöku. Hún bendir á
að skólastarf í Laugarnesskóla hefur hafist
kl. 8:30 á morgnana og eru aðstandendur
skólans, nemendur og foreldrar mjög
ánægð með það fyrirkomulag. Síðastliðið
haust ákvað svo skólastjórn Laugalækjar-
skóla að ósk nemenda og foreldra við skól-
ann að gera þetta líka. „Börnunum finnst
þetta frábært,“ segir Vaka sem á börn í
báðum skólum. „Það munar kannski ekki
miklu að byrja 15 mínútum seinna en áður.
En það getur gert gæfumun fyrir börnin.
Sérstaklega yfir dimmasta tíma ársins.“
Sumir hafa mælt með því að breyta
klukkunni hér á landi eins og í öðrum lönd-
um. En hvað segir Vaka við því?
„Það er góð spurning, sem má vera
opin enda myndi slík breyting hafa marg-
vísleg áhrif á samfélagið í heild. Það er mun
stærra mál og annars eðlis. Við getum t.d.
ekki verið viss um að unglingar færu fyrr
að sofa þó að klukkunni væri breytt,“
svarar Vaka Rögnvaldsdóttir.