Skinfaxi - 01.03.2016, Blaðsíða 25
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 25
Borgarfjörður
Borgarfjarðarhérað er rómað fyrir náttúru-
fegurð og mikla fjölbreytni í náttúrunni og
þar er aðgengilegt að njóta fossa, fjalla,
hrauns og skóga, heitra hvera og jökla. Þar
eru fjölbreyttir útivistarmöguleikar. Sagan
drýpur af hverju strái og Reykholt er mið-
punktur sögusviðsins.
Reykholt
Reykholt í Borgarfirði er einn sögufrægasti
staður landsins. Þar er eitt elsta mannvirki
á Íslandi, Snorralaug. Snorrastofa var reist
til minningar um Snorra Sturluson og ein-
stæð verk hans. Stofnunin vinnur að rann-
sóknum í miðaldafræðum og sögu Borgar-
fjarðar og miðlar þekkingu með sýningum,
ýmsum viðburðum, ráðstefnuhaldi og
bókaútgáfu. Einnig er þar safnbúð með
íslensku handverki, listmunum og bókum
um sagnfræði og bókmenntir.
Húsafell
Náttúran við Húsafell einkennist af víð-
feðmum og gróskumiklum skógi sem
teygir sig upp eftir hlíðum fjallanna og inn
með giljum sem setja svip sinn á landslagið.
Undan skóginum birtist svo hraunið með
tærum uppsprettulindum og lækjum. Yfir
fögrum fjallahring gnæfa tignarlegir jöklar,
Ok, Langjökull og Eiríksjökull, og frá þeim
falla hvítfyssandi jökulár. Í Húsafelli er
skemmtileg sundlaug og gott tjaldsvæði.
Þar er einnig að finna veitingastað, verslun
og hótel.
Hvanneyri
Hvanneyri er höfuðstaður íslensks landbún-
aðar. Bændaskóli var stofnaður að Hvann-
eyri 1889 þannig að margir íslenskir bænd-
ur hafa sterkar taugar til staðarins. Land-
búnaðarsafn Íslands, sem sýnir bútækni
fyrri tíma, er á staðnum og einnig Ullarselið
sem er handverksverslun með hágæða
íslenskt handverk.
Hvalfjörður
Í seinni heimstyrjöldinni, á árunum 1940–
1945, var flotastöð Bandamanna innst í
Hvalfirði þar sem Hvalstöðin er nú. Þar var
skipalægi og viðkomustaður skipalesta á
leið milli Bandaríkjanna og Rússlands og
oft og tíðum var fjörðurinn fullur af skipum.
Bækistöðvar voru reistar í landi Litlasands
og Miðsands. Enn má sjá minjar frá stríðs-
árunum og eru þar meðal annars braggar
sem hafa verið gerðir upp.
Að aka um Hvalfjörð í góðu veðri er
alveg einstakt og gaman að gefa sér góð-
an tíma.
Glymur
Hæsti foss Íslands, tæpir 200 m, er innst í
Hvalfirði. Gangan að Glym tekur um þrjá
tíma og er leiðin skemmtileg en frekar
brött á köflum. Ef fólk hefur ekki fengið
nægju sína þegar komið er upp er hægt
að halda áfram að Hvalvatni sem er 160 m
djúpt.