Skinfaxi - 01.03.2016, Side 57
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 57
tók inn mikið af vatni og var hálftíma að
fleyta mér áfram 400 metra í 50 metra laug,“
segir Gunnar en hann stakk sér í fyrsta sinn
í laugina á Landsmótinu á Ísafirði. „Ég hafði
aldrei stungið mér fyrr og ætlaði að spyrna
mér frá bakkanum. Þegar á hólminn var
komið fannst mér það svo aulalegt að þarna
stakk ég mér með hinum. Það gekk vel.“
Gunnar gerði meira en að keppa ein-
göngu í sundi. Hann var líka einn þriggja
karla í þríþraut. Sund er ein greinanna og
lenti hann í þriðja sæti að loknu fimm kíló-
metra hlaupi.
Og hvernig finnst þér að synda?
„Þetta er orðið eitt af því skemmtilegasta
sem ég geri,“ segir Gunnar. Hann keppti í
fyrsta sinn á Landsmóti UMFÍ 50+ og eys
það lofi. „Þetta er meiriháttar gaman. Ég
er að hitta hér menn sem ég keppti við í
körfubolta áður fyrr og hef ekki séð í 40 ár.
Það er rosalega gaman!“
Þessi maður var
ósyndur fyrir
fjórum árum!
Í þróttaferill Gunnars er langur. Hann
var mikið á hreyfingu á sínum yngri
árum, hóf ferilinn í körfubolta með
Njarðvík og varð Íslandsmeistari í júdó um
þrítugt. Hann varð margfaldur Íslands-
meistari í „old boys“-flokki í körfu. Grein-
arnar, sem Gunnar hefur prófað, eru fjöl-
margar auk þess sem hann hefur tekið
þátt í ýmsum áhættuíþróttum og reynt
m.a. fyrir sér í sviffallhlífarstökki fram af
1000 metra hárri klettabrún í Slóveníu.
Gunnar hefur hlaupið og hjólað mikið en
sjaldnar synt.
Gunnar var reyndar ósyndur þar til hann
ákvað að taka þátt í þríþraut fyrir fjórum
árum, þá 67 ára gamall.
Af hverju kunnir þú ekki að synda?
„Ég veit það ekki, en ætli það hafi ekki
verið þrjóska, eitthvað sem ég beit í mig.
Ég bókstaflega hataði sund. En stelpan mín
keppti oft í sundi og ég dæmdi í sundi. Það
var einmitt stelpan sem fékk mig til að fara
í þríþrautina og boðaði mig í sundkennslu
í Keflavíkurlaug. Það var algjört helvíti, ég
Það vakti athygli við afhendingu verðlauna í sundi í miðbæ Ísafjarðar þegar
Ingimundur Ingimundarson frá Ungmennasambandi Borgarfjarðar stóð á
verðlaunapalli og hrópaði upp yfir sig: „Þessi maður var ósyndur fyrir fjórum
árum!“ Þar átti Ingimundur við Gunnar Örn Guðmundsson frá Njarðvík,
sem lenti í öðru sæti í 100 metra skriðsundi í aldursflokki 70–74 ára, einni
af þeim fjórum sundgreinum sem hann keppti í.
Gunnar Örn með verð-
launapening í miðjunni.
Gunnar Örn ásamt Ingimundi.
Landsmót UMFÍ 50+ á Ísafirði:
Minnismerki
um mótið
Hefð er fyrir því að formaður UMFÍ
afhendi fulltrúa þess bæjarfélags
sem heldur landsmót minnismerki um
mótið. Á árum áður voru bautasteinar
með áföstum skildi settir upp í bæjar-
félög-um í tengslum við framkvæmd
móta. Síðustu ár hafa minningarskildir
komið í stað steina. Á landsmótinu á
Ísafirði afhenti Haukur Valtýsson, for-
maður UMFÍ, Nanný Örnu Guðmunds-
dóttur, forseta bæjarstjórnar Ísafjarðar-
bæjar, skjöldinn sem þakklætisvott um
mótið.