Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2016, Síða 20

Skinfaxi - 01.03.2016, Síða 20
20 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands U ngmennasamband Borgar- fjarðar, skammstafað UMSB, samanstendur af 19 aðildar- félögum í Borgarbyggð. Að- dragandann að stofnun sambandsins má rekja til þess þegar hópur ungra manna kom saman á bændanámskeiði sem haldið var á Hvanneyri í upphafi árs 1912. Menn þessir höfðu verið leiðandi í ungmenna- félögum í Borgarfirði. Ungmennafélags- hreyfingin var eldheit á þessum árum enda aðeins sex ár liðin frá stofnun Ungmenna- félags Íslands sem regnhlífarsamtaka yfir ungmennafélög landsins. Syntu í Hvítá Fram kom í yfirliti Guðmundar Sigurðs- sonar um sögu UMSB, sem hann flutti í tilefni af 90 ára afmælishátíð UMSB árið 2002, að félagsmenn hafi ekki tvínónað við hlutina og hafi starfið strax einkennst af íþróttamótum. Fyrsta mótið var haldið skammt frá Hvítá í ágúst 1913 þar sem bæði stúlkur og drengir syntu í Hvítá auk þess sem keppt var í glímu og bæði 500 m og 100 m hlaupum. Tveimur árum síðar var svo haldið íþróttanámskeið á vegum UMSB og stóð það í hálfan mánuð. Eftir því sem á leið fjölgaði greinum á íþrótta- mótum UMSB, á borð við knattspyrnu og víðavangshlaup. Handbolti kvenna bætt- ist svo við árið 1939. Kjörorð UMFÍ hefur frá fyrsta degi verið Ræktun lýðs og lands. Í samræmi við það gekkst UMSB fyrir stofnun Skógræktarfé- lags Borgarfjarðar árið 1938, sendi frá sér jákvæða ályktun um virkjun Andakílsár- fossa og gaf út blaðið Vor sem kom út árin 1927–1933. Vonir stóðu til að ráðast í útgáfu á ársriti í tímaritsformi. Blaðið kom aðeins einu sinni út, árið 1939. Landsmótin í Borgarfirði Borgarfjörðurinn er rótgróinn staður Lands- móta UMFÍ. Þar hafa þrjú Landsmót UMFÍ verið haldin á vegum UMSB, reyndar eitt þeirra á Akranesi. Unglingalandsmótið, sem fram fer nú um verslunarmannahelgina í Borgarnesi, verður annað Unglingalands- mótið sem UMSB heldur þar. Fyrsta Landsmótið var haldið á Hvann- eyri í skugga heimsstyrjaldarinnar síðari, árið 1943. Í tengslum við mótið var byggð 25 metra útisundlaug. Veggir voru hlaðnir úr sniddu en tréþil í endum hennar enda var laugin köld. Íþróttavöllur var líka byggð- ur upp skammt frá Hvítá, sem gegnir stóru hlutverki í sögu UMSB, eins og reyndar Borgarfjarðar. Staðurinn nefnist Fit, sem er slétt jörð og því ákjósanleg til íþróttaiðk- unar. Landsmenn tóku strax vel í Lands- mótin og voru mótsgestir á fjórða þús- undið þetta kalda sumar árið 1943. Næst héldu Borgfirðingar Landsmót UMFÍ árið 1975. Þetta var 15. Landsmót UMFÍ og var það haldið á Akranesi í sam- vinnu við Umf. Skipaskaga. Þrátt fyrir glæsi- legt og gott mót brást gestafjöldinn og varð taprekstur af því UMSB erfiður ljár í þúfu. Næsta Landsmót mót var svo haldið í bæjarfélaginu árið 1997. Eins og tíðkast skila Landsmót UMFÍ sér í bættri íþrótta- aðstöðu. Því var að skipta í Borgarnesi þetta árið og var byggður bæði fullkom- inn frjálsíþróttavöllur og útisundlaug. Það er gaman frá því að segja að á Lands- mótinu var keppt í knattspyrnu á íþrótta- vellinum Fit, sem var gerður fyrir fyrsta Landsmót í umsjón UMSB, árið 1943. Tvö flott Unglingalandsmót Síðasta stórmót á vegum UMFÍ og UMSB í Borgarfirði var svo Unglingalandsmótið sem haldið var í Borgarnesi um verslunar- mannahelgina árið 2010. Þetta var 13. Unglingalandsmót UMFÍ. Keppendur voru 1.650 en mótsgestir voru um 13.000 talsins. Mótið var gríðarleg lyftistöng fyrir bæjarfélagið enda sýnir sagan að lands- mótin hafa skilað sér í mikilli uppbygg- ingu íþróttamannvirkja, íbúum til mikils gagns. Saga UMSB og Landsmóta UMFÍ

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.