Skinfaxi - 01.03.2016, Síða 29
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 29
D ýri Kristjánsson var margfaldur Íslandsmeistari í fimleikum
þegar hann fór utan til Bandaríkjanna í nám rétt eftir
aldamótin 2000. Hann lagði mikið á sig en mælir með
því að krakkar fari erlendis í nám. Dýri hafði áhuga á
fimleikum en lærði hagfræði til að framfleyta fjölskyldunni í
framtíðinni. Erfiðið skilaði honum draumastarfi sem tengist
áhugamálinu. Dýri er hagfræðingur á vinnutíma en sjálfur
Íþróttaálfurinn þess utan. Hvernig gerðist þetta?
„Ég fæddist í Bandaríkjunum og bjó þar fyrstu
fimm ár ævi minnar. Það var eitthvað við
Bandaríkin sem togaði mig til sín og mig
langaði alltaf aftur út. Þess vegna fór ég á
stúfana eftir stúdentspróf. Ég taldi líka erfitt
að æfa fimleika hér heima samhliða
háskólanámi,“ segir Dýri Kristjánsson.
Þetta var árið 1999, á tímum
upphringimótalda og talsvert
erfiðara þá en nú að nálgast
upplýsingar enda hvorki búið að
finna upp YouTube né Facebook.
Dýri kíkti við á Fulbrightstofnuninni
við Laugaveg. Þar fékk hann hnausþykka
bók sem minnti á símaskrá með upplýsingum um háskóla í
Bandaríkjunum. Hann fletti upp þeim skólum sem buðu
upp á fimleika. En svo var að hafa samband sem var
töluvert flóknara en nú.
„Ég skrifaði fimmtán háskólum bréf, tók sjálfan mig
upp á vídeó, lét færa upptökuna yfir á VHS-spólur og
síðan yfir á bandaríska kerfið á einhverju verkstæði úti
í bæ. Síðan fékk ég reyndar svör frá nokkrum í
tölvupósti,“ segir hann og ákvað að kíkja á skólana.
Eini útlendingurinn
Dýri fékk flugmiða að gjöf frá foreldrum
sínum eftir stúdentspróf, til að skoða
skólana úti. Þá nýtti hann sumarið
2000 og ferðaðist á milli fjögurra
skóla í 30 stiga hita.
Háskólinn í Minnesota
varð fyrir valinu enda sá
Dýri þar góð tækifæri
til að ná langt í fimleik-
um. Í liði skólans voru
tveir bandarískir lands-
liðsmenn í fimleikum
og var Dýri fyrsti útlend-
ingurinn til að komast í það.
Hann þurfti því að leggja
hart að sér þrátt fyrir að
hafa æft með íþróttafélaginu
Gerplu og sem slíkur unnið margfalda Íslandsmeistara-
titla, bæði í áhaldafimleikum og hópfimleikum
auk þess að keppa á stærstu mótum heims, þar á
meðal Evrópu- og Norðurlandamótum.
Dýri hóf háskólanámið árið 2001. Erfiðið skilaði
honum fljótlega fimleikastyrk og hann varð
fyrsti Íslendingurinn til að komast í háskóla-
nám í Bandaríkjunum á slíkum styrk.
Styrknum hélt hann fram til loka námsins
árið 2005 en þá var hann líka orðinn
fyrirliði fimleikaliðsins.
Gott að fara einn
til útlanda
Dýri mælir með því að
ungt fólk fari í nám til
annarra landa á meðan
það hefur tækifæri til
þess, áður en lífið verður
of flókið. „Þótt námsdvölin
hafi verið mér mjög erfið á köflum þá gaf
hún mér mjög mikið. Ég lærði auðvitað
hagfræði, stóð mig vel í skóla og fimleikum
og náði mér í gráðu. En það sem ég lærði á
sjálfan mig og lífið er alveg ómetanlegt.
Ekki er hægt að setja verðmiða á það. Það er
skoðun mín að ungt fólk, sem hefur tækifæri
til þess, eigi að skelli sér í nám erlendis.“
Erfiði skilar árangri
Þrátt fyrir að hafa lagt á sig ómælt
erfiði úti í Bandaríkjunum, bæði
líkamlegt og andlegt, þá leit Dýri
ekki á fimleikana sem framtíðarstarf.
Annað átti hins vegar eftir að koma í ljós.
„Ég var alltaf í fimleikum út af áhuga
á á íþróttinni og taldi óvíst að ég gæti
framfleytt fjölskyldunni á fimleik-
um. En ég var jákvæður gagnvart
öllu og var með opinn huga eftir
námið í Bandaríkjunum. Fljótlega
eftir að ég kom heim fékk ég starf
við að leika áhættuatriði Magnúsar
Schevings í Latabæjarþáttunum.
Það vatt upp á sig og nú er ég
leyfishafi fyrir Latabæjarskemmt-
anir á Íslandi um helgar og eftir
vinnu en sjóðsstjóri í jakkafötum
á vinnutíma,“ segir Dýri Kristjánsson,
hagfræðingur og Íþróttaálfur.
Hélt að hann gæti aldrei
brauðfætt fjölskylduna
með fimleikum
Íþróttaálfurinn er alltaf að leika sér. Það er því heppilegt að leikvöllur er rétt við húsgaflinn hjá Dýra
og fjölskyldu hans. Stílistinn Lana Björk, dóttir Dýra, valdi fötin á hann af kostgæfni áður en hann steig
upp á vegasaltið og sýndi hvað hann getur þótt hann sé ekki í fötum Íþróttaálfsins.