Skinfaxi - 01.03.2016, Qupperneq 31
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 31
N jarðvíkingurinn Arnór Ingvi Traustason sló í gegn á
EM í knattspyrnu í Frakklandi. Hann var varamaður í
liðinu á sínum fyrsta leik á stórmóti. Hann kom inn
á þegar tíu mínútur voru eftir af leik Íslands gegn
Austurríki í lokaleik F-riðils á Stade de France. Leikurinn var
1-1 þegar Arnór kom inn á. Innkoman var reyndar ekkert til
að hrópa húrra fyrir. Hann var nýkominn á völlinn þegar hann
féll kylliflatur í eigin vítateig og þurfti aðhlynningar við. En fall
er fararheill. Arnór stóð á fætur og eftir stórkostlegt upphlaup
skoraði hann sigurmark Íslands á lokasekúndunni.
Rauða spjaldið á Unglingalandsmóti
Arnór tók tvívegis þátt í Unglingalandsmóti UMFÍ.
Það var fyrst í körfubolta á Sauðárkróki árið
2009 en svo í fótbolta í Borgarnesi árið 2010.
Liðið í Borgarnesi hét Red Card (ísl. Rauða
spjaldið) og sigraði með yfirburðum í flokki
17–18 ára drengja í knattspyrnu.
Arnór segir þátttökuna á mótinu í Borg-
arnesi lifa í minningunni. „Þetta var mjög
gaman. Vinahópurinn var þéttur og við
þekktum marga sem fóru á mótið. Ég ætl-
aði upphaflega ekki með og var búinn að
plana annað. En allir vinirnir voru að fara á
landsmótið og því ákvað ég að slá til og fara
með hópnum. Þetta var mjög skemmtilegt,
bæði að spila fótbolta og hafa það kósý á
kvöldvökunum,“ segir Arnór en vinirnir halda enn hópinn. Ekki
eru þeir þó margir sem spila knattspyrnu, aðeins hann og
Daníel Gylfason, sem spilar með Keflavík.
Landsliðsmaður fór með vinum
á Unglingalandsmót UMFÍ
Margt í boði fyrir ungt fólk
Arnór segir margt í boði fyrir ungt fólk víða um land um verslun-
armannahelgina en mælir svo sannarlega með Unglinga-
landsmóti UMFÍ. „Þar er svo margt í boði að auðvelt er að finna
eitthvað á sínu áhugasviði og bara taka þátt í stað þess að
ætla sér að vinna allt saman. Það er bara svo gaman að vera
í hópi fólks sem iðkar íþrótt sína og skemmtir sér. Þetta var
góð ákvörðun hjá okkur vinunum að fara á mótið í Borgarnesi.
Okkur fannst rosalega gaman. Ég mæli með þessu fyrir unga
krakka að kíkja á Unglingalandsmót, allavega að prófa það.“
Hvernig fannst
Arnóri á EM?
„Þetta var rosalega skemmtilegt.
Þótt ég sé ungur [innskot: Arnór er
23 ára] þá var gaman að komast inn
í landsliðið rétt fyrir Evrópumót og
njóta þess að fá að vera með þess-
um strákum. Ég beið pollrólegur eftir
mínu tækifæri og vildi reyna að nýta
hverja einustu mínútu. Því að upp-
lifa allt í kringum þetta mun ég
aldrei gleyma. Þótt maður sé þarna
til að spila fótbolta þá er allt í kring-
um mótið sem var gaman að upplifa.“
Lið Arnórs – Red Card:
Arnór Ingvi Traustason, Óskar Örn
Óskarsson. Daníel Gylfason, Lukasz
Malesa og Eyþór Ingi Einarsson.
Arnór Ingi Traustason, landsliðsmaður og leikmaður Rapid Wien
í Austurríki.
Sigur-garðar sf.
Garðaþjónusta í yfir 25 ár
sími 892-7663 & 435 1435 • sindri@vesturland.is
LIT ehf.
Ingi Tryggvason hrl.