Skinfaxi - 01.03.2016, Qupperneq 38
38 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Óþrjótandi tækifæri til
útivistar
Þórunn Sveinbjarnar-
dóttir umhverfisráð-
herra fjallaði um útivist
í nýjum þjóðgarði í
ávarpi í göngubókinni
2007. Þar segir hún m.a.:
„Vatnajökulsþjóðgarður
skapar óþrjótandi tæki-
færi til útivistar fyrir
almenning, ekki síst
göngufólk. Svæði þjóð-
garðsins er einstakt. Jarð-
eldar, jökulís, vatn og vindar mynda stórbrot-
ið og heillandi landslag með ægifögru víðerni
hrauna, sanda, fjalla og jökla. Hin einstaka
náttúra þjóðgarðsins býður upp á möguleika
á uppbyggingu á fjölbreyttu kerfi göngustíga,
auk þess að lagfæra þá sem fyrir eru. Göngu-
leiðir Vatnajökulsþjóðgarðs verða engu líkar.
Þær liggja til að mynda þvert yfir land frá
strönd til strandar, umhverfis jökulinn, upp á
hann og yfir og einnig úr byggð að jöklinum.“
Þægilegur göngutúr
um landið okkar
Í ávarpi í göngubókinni
2008 segir Kristján L.
Möller samgönguráð-
herra: „Þegar við leggj-
um land undir fót verð-
ur alltaf eitthvað nýtt á
vegi okkar. Við undirbú-
um okkur, skipuleggjum
gönguferð og leggjum
af stað full tilhlökkunar.
Förum um nýjar slóðir
eða kynnumst betur gömlum götum. Mark-
miðið þarf ekki að vera annað en það að vera
úti í náttúrunni og síðan getur ýmislegt siglt
í kjölfarið, nýjar slóðir, nýtt fólk, ný samskipti.
Þess vegna tek ég heilshugar undir kjörorð
Ungmennafélags Íslands um að rækta lýð og
land því þannig komumst við í best samband
við náttúruna og náungann. Hvet ég sjálfan
mig og ykkur, lesendur góðir, til að ganga
bæði vel og mikið um landið hvar og hvenær
sem við komum því við. Það eru góðar og
hollar samgöngur.“
Forréttindi sem við
eigum að nýta og njóta
Helga Guðrún Guðjóns-
dóttir, formaður UMFÍ,
segir í inngangi að göngu-
bókinni 2009: „Að ganga
úti í íslenskri náttúru eru
forréttindi sem við eigum
að nýta og njóta. Að
ganga með fjölskyldu og
vinum eru einnig forrétt-
indi sem við eigum að
meta. Það eina sem við
þurfum að gera er að taka fram gönguskóna
og ganga af stað. Einfaldari og ódýrari leið er
ekki til ef við viljum næra líkama og sál.“
HHF: Lómafell (2002–2006),
Geirseyrarmúli, Patreksfirði
(2010, 2012, 2014–2015),
Tungufell (2011–2014),
Bíldudalsfjall (2013–2014)
HSB: Ekkjuskarð (2003–2010),
Upsir (2011)
HSH: Drápuhlíðarfjall í Helga-
fellssveit (2002, 2011–2012),
Eldborg í Kolbeinsstaðahreppi
(2003),
Búðaklettur – Staðarsveit (2004),
Klakkur í Eyrarsveit (2006),
Hreggnasi (2007–2010),
Eyrarfjall (2007–2012)
HSK: Búrfell í Grímsnesi
(2002, 2013),
Hekla (2002),
Ingólfsfjall (2003),
Þríhyrningur (2003),
Vörðufell í Árnessýslu (2004),
Stóri-Dímon (2004, 2013),
Skálafell á Hellisheiði (2005),
Bláhnúkur við Landmannalaugar
(2005),
Gullkista í Laugardal (2006),
Skarðsfjall í Landsveit (2006),
Langholtsfjall (2007),
Þórólfsfell Fljótshlíðarafrétti (2007),
Valafell á Landmannaafrétti (2008),
Litli-Meitill (2008),
Mosfell í Grímsnesi (2009),
Hvolsfjall við Hvolsvöll (2009),
Miðfell Hrunamannahreppi (2010),
Bjólfell á Rangárvöllum (2010),
Gíslholtsfjall (2011),
Bjarnafell í Ölfusi (2011),
Vatnsfell á Holtamannaafrétti
(2012),
Skarðsmýrarfjall (2012),
Fagrafell (2014),
Dalafell í Ölfusi (2014),
Arnarfell við Þingvallavatn (2015),
Vatnsdalsfjall (2015)
HSS: Tindur á Heiðabæjarheiði
(2002),
Kálfanesborgir (2003–2006),
Reykjaneshyrna (2011–2012),
Bæjarfell við Drangsnes (2013–15)
HSV: Mýrafell í Dýrafirði (2002–04),
Miðfell Seljalandsdal (2002–2004),
Kaldbakur í Dýrafirði (2005–2010),
Sauratindar við Ísafjarðardjúp
(2005–2010),
Þjófaskarð milli Ísafjarðar og
Hnífsdals (2011–2012),
Miðfell, Seljalandsdal (2015)
HSÞ: Hvítafell (2002),
Nykurtjörn (2003–2004),
Hverfjall Mývatnssveit (2005–2010)
Óttar í Þistilfirði (2008–2010),
Skollahnjúkur í Aðaldal (2011),
Sandfell í Öxarfirði (2011),
Hálshnúkur í Fnjóskadal (2012),
Viðarfell við Þistilfjörð (2012),
Kollufjall við Kópasker (2013),
Vindbelgjarfjall (2013),
Gunnólfsvíkurfjall (2014),
Eyjan í Ásbyrgi (2014),
Húsavíkurfjall (2015),
Snartastaðanúpur (2015)
UFA: Súlur (2002, 2011, 2013),
Þingmannavegur yfir Vaðlaheiði
(2003–2010)
UÍA: Goðatindur (2002–2003),
Múlakollur – Skriðdal (2004),
Kollumúli við Hellisheiði (2004),
Svartfell Borgarfirði eystri
(2005–2010),
Grænafell á Reyðarfirði (2011),
Sandfell (2012),
Lolli í Norðfirði (2013–2014),
Laugarfell í Fljótsdal (2015)
USÚ: Ketillaugarfjall (2003–2010,
2012–2013),
Haukafell (2011–2013)
UMFG: Þorbjörn (2002–2006,
2011–2012, 2014–2015),
Hagafell (2011)
UMFÓ: Eldfell (2009),
UMSB: Hestfjall í Andakíl
(2002–2003, 2015),
Varmalækjarmúli (2004–05, 2010),
Hraunsnefsöxl í Norðurárdal
(2006–2007),
Þyrill (2008–2010),
Strútur við Kalmanstungu (2011),
Foxufell við Hítarvatn (2012),
Snóksfjall/Snókur í Skarðsheiði
(2013),
Hafnarfjall (2014)
UMSE: Staðarhnjúkur (2002–04),
Böggvistaðafjall (2005–2012)
UMSK: Reykjaborg (2002–2004),
Vífilsfell (2005–2009),
Úlfarsfell (2010–2015)
UMSS: Mælifellshnjúkur
(2002–2010),
Molduxi (2011–2013)
UDN: Kollar við botn Hvamms-
fjarðar (2002–2004, 2010–2011),
Tungustapi Sælingsdal (2005–13),
Vaðlafjöll (2012–2013)
UNÞ: Eyjan í Ásbyrgi (2002–2004),
Óttar í Þistilfirði (2005–2007)
USVH: Rauðkollur, Víðidal (2002),
Þrælsfell (2002–2010, 2012–2013),
Káraborg (2011)
USAH: Spákonufellsborg
(2004–2006, 2010),
Spákonufellshöfði (2011–2013),
Spákonufell (2015)
USVS: Hjörleifshöfði (2002–2013),
Reynisfjall (2010–2015)
Keflavík: Keilir (2011–2015)
USK: Guðfinnuþúfa á Akrafjalli
(2012–2015)
UMFF: Esja (2014–2015)
Þórunn Sveinbjarn-
ardóttir, fv. um-
hverfisráðherra.
Kristján L. Möller,
fv. samgönguráð-
herra.
Helga Guðrún
Guðjónsdóttir, fv.
formaður UMFÍ.
Fjölskyldan á fjallið:
Fjöll sem hafa verið tilnefnd