Skinfaxi - 01.03.2016, Page 40
40 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
U ngmenni á Norðurlöndunum
sofa í 8–10 tíma en íslensk
aðeins í 6–7. Afleiðingar af
stuttum svefni eru neikvæðar.
Vaka Rögnvaldsdóttir segir mikilvægt að
foreldrar séu fyrirmyndir þegar kemur að
svefnvenjum barna sinna.
Íslensk ungmenni fara seint að sofa og
hvílast í aðeins sex tíma tíma á virkum dög-
um og rúma sjö um helgar í stað þeirra
átta sem mælt er með. Börn og ungmenni
ná því sum hver ekki ráðlögðum svefni.
Þessi stutti svefn veldur því að börn og
ungmenni hér á landi eru hugsanlega
vansvefta. Erlendar rannsóknir hafa fund-
ið tengsl lítils svefns við offitu og ofþyngd,
minnkaða hreyfingu og sjúkdóma því
tengdu sem og tengsl við depurð, slakan
námsárangur og brottfall úr skóla meðal
unglinga.
Hvað er til ráða?
„Einfaldasta og ódýrasta lausnin er að for-
eldrar taki ábyrgð á háttatíma barna sinna.
En þau verða líka að vera fyrirmyndir og
huga að eigin svefnvenjum. Það getur
skilað miklum árangri,“ segir Vaka Rögn-
valdsdóttir, doktorsnemi og aðjúnkt í
íþrótta- og heilsufræðum á Menntavís-
indasviði Háskóla Íslands. Hún vinnur að
hluta af viðamikilli rannsókn á heilsu barna
og unglinga sem hófst árið 2006 og stóð
til ársins 2008. Gert er ráð fyrir að núver-
andi rannsókn standi yfir með hléum í allt
að 15–20 ár. Erlingur Jóhannsson, prófess-
or í íþrótta- og heilsufræði við Háskóla
Íslands, hefur umsjón með rannsókninni
allri en að henni koma doktorsnemar og
meistaranemar eins og Vaka sem taka að
sér að svara spurningum sem snúa að lífs-
stíl barna og ungmenna.
Rannsóknin er framhald rannsóknarinn-
ar Lífsstíll 7 og 9 ára barna sem var í gangi
2006 og 2008 og voru þar skoðuð um 300
börn. Í rannsókninni nú voru lífsvenjur
barna í 10. bekk skoðaðar og mældar.
Börnin verða mæld aftur þegar þau verða
17 ára. Niðurstöður úr mælingunum eru
unnar í samvinnu við National Institute of
Health í Bandaríkjunum.
Ráð Vöku til foreldra
Börn og unglingar eiga ekki að hafa sjónvarp, síma og spjaldtölvur nálægt
sér þegar þau eru komin upp í rúm. Með tölvuaðgangi geta þau haft aðgang
að alls konar efni sem seinkar svefni þeirra og birta frá tækjum getur haft
truflandi áhrif á svefn og syfju. Farsælasta leiðin til bæta gæð i svefnsins er
því að hafa tækin ekki í herbergjunum á nóttunni.
Vont að sofa lítið
Verkefni Vöku nú snýr að svefni og heilsu
ungmennanna. Nýleg tækni er notuð við
mælingar á svefni þeirra, með svokölluð-
um hreyfirita sem líkist helst hreyfi- og
heilsuúrum sem eru nú á markaði, og
viðfangsefnin báru allan sólarhringinn.
Ungmennin sváfu með mælana á sér í
stað þess að fara á rannsóknarstofu til að
tengjast svefnritum. Við þetta fengust mun
nákvæmari upplýsingar við eðlilegar að-
stæður en nokkru sinni fyrr. Vaka bendir á
að vissulega hafi verið gerðar rannsóknir á
svefni barna og unglinga í gegnum tíðina.
„Við eigum upplýsingar um það hvenær
þau fóru að sofa samkvæmt foreldrum
barna eða þeirra eigin hugmyndum um
svefntíma sinn. En hreyfiritarnir eru mun
nákvæmari. Niðurstöðurnar er mjög ná-
kvæmar enda nema ritarnir hreyfingu og
við sjáum hvenær líkami þeirra er kominn
í svefnástand. „Við erum sérstaklega
spennt fyrir niðurstöðunum sem mælarn-
ir gefa okkur enda getum við með betri
Foreldrar segi
börnum að
fara fyrr að sofa
Hreyfiritinn, sem
ungmennin not-
uðu, er frá fyrirtæk-
inu Actigraph. Úrið
hefur engan skjá
en safnar gögnum
um hreyfingu.