Skinfaxi - 01.03.2016, Page 43
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 43
Sveitarstjórn Dalabyggðar vinnur að sölu á Laugum í Sæl-
ingsdal og er gert ráð fyrir henni í fjárhagsáætlun sveitar-
félagsins fyrir árin 2016–2019. Söluandvirðið á að renna til
uppbyggingar íþróttamannvirkja við Auðarskóla í Búðardal.
Anna Margrét Tómasdóttir, forstöðumaður Ungmenna- og
tómstundabúðanna að Laugum, segist hafa áhyggjur enda
hætt við að starfseminni verði hætt. „Gangi salan eftir er hætt
við að börnin fái færri tækifæri en nú til að bæta sig og
þroskast,“ segir hún.
Sveinn Pálsson sveitarstjóri segir að stefnt hafi verið að
sölunni um árabil. Undirbúningurinn hefur staðið í nokkur
ár eða allt frá því Dalabyggð keypti húseignir að Laugum af
ríkinu árið 2013. Meðal annars er verið að gera deiliskipulag
fyrir svæðið og er það langt komið. Samkvæmt deiliskipu-
laginu er gert ráð fyrir möguleikum á að stækka hótelið og
fjölga herbergjum.
Laugar hafa enn ekki verið auglýstar en það verður vænt-
anlega gert á næstu mánuðum.
Ástæðuna fyrir sölunni segir Sveinn þá að á Laugum er
íþróttaaðstaða grunnskólabarna í Búðar-
dal og sé hún of langt í burtu frá grunn-
skólanum auk þess sem tekjur sveitar-
félagsins af rekstri Lauga duga ekki fyrir
viðhaldskostnaði fasteigna.
UMFÍ er með leigusamning við Dala-
byggð um rekstur Ungmenna- og tóm-
stundabúðanna að Laugum til ársins
2019. Sveinn segir samninginn hagstæð-
an fyrir UMFÍ enda hafi þeir fyrir þann
tíma verið gerðir til eins árs. Ekki stendur
til að rifta samningum við UMFÍ.
Sveinn segir enn nokkuð í að Laugar í
Sælingsdal verði seldar og áhyggjur af
því að Ungmennabúðirnar hætti óþarfar.
„Við höfum bæði reiknað með því að
þetta muni taka tíma auk þess sem við
ætlum ekki að selja hverjum sem er,“
segir hann. „Það er mikill vilji til að halda
starfsemi Ungmennabúðanna áfram
enda er starfsemin mikilvæg og Dala-
mönnum þykir vænt um hana. Gangi
sala eftir vonum við að eina breytingin
varðandi ungmennabúiðrnar verði sú að
UMFÍ þurfi að vinna með öðrum leigu-
sala en okkur,“ segir hann.
Sveinn vill ekkert segja til um hvaða
verðs sveitarstjórnin horfi til. „Við feng-
um tvö tilboð fyrir 2–3 árum í Laugar.
Annað þeirra var upp á 200 milljónir
króna. Því var hafnað.“
Ásókn í að vinna
á Laugum
Útlendingar sækjast eftir því að
vinna í ungmenna- og tóm-
stundabúðunum á Laugum í Sæl-
ingsdal. Laus störf hafa ekki verið
auglýst þar fyrir næsta vetur. Samt
hafa sjö sótt um og réð Anna
Margrét þrjá til starfa sem munu
vinna með þeim fimm sem vinna
þar alla jafna. Tveir umsækjenda
unnu á Laugum í hitteðfyrra og
störfuðu síðasta vetur á skíðahóteli í
Austurríki. Þaðan vilja þau losna og
koma aftur í Sælingsdal. Anna hefur
ekki lent í öðru eins. „Ég hef oft eytt
sumrinu í að leita að fólki og það hef-
ur verið erfitt að fá fólk að sunnan til
að koma vestur og vinna hér. Svona
spyrst út á meðal fólks og nú eru flott-
ir krakkar að sækja um hjá okkur, fólk
menntað í ferðamálafræðum og
tómstunda- og íþróttafræðum.“
Stefnt að sölu Lauga í Sælingsdal