Skinfaxi - 01.03.2016, Side 51
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 51
Tækni hefur rutt sér til rúms í íþróttum og eru tækninýjungar hvers
konar orðnar nauðsynlegur hluti af daglegu lífi fólks, enda nýtast þær
til heilsueflingar. Sævar benti á að margir hafi tileinkað sér svokallaða
klæðanlega tækni. Hluti af þeim flokki er snjallúr og ýmsir heilsumælar,
sem auk þess að geta sýnt hvað tímanum líður halda utan um ýmsar heilsu-
tengdar upplýsingar notanda, svo sem hreyfingu, svefntíma og mataræði.
Einhver gerir eitthvað
spennandi
Fjalar Sigurðarson er reynslubolti í fjölmiðlun. Hann var
einn stjórnenda spjallþáttarins Dagsljóss í Ríkissjónvarp-
inu fyrir aldamót og hefur unnið sem fjölmiðlaráðgjafi og sér-
fræðingur í almannatengslum. Fjalar sagði í erindi sínu hægt
að tala hátt og mikið. Árangurinn af því getur látið á sér
standa enda hróp í eyðimörkinni tilgangslaus. Mun betra sé
að móta boðskiptin og stefnu þeirra, s.s. ákveðið mál þarf að
vera í brennidepli, við hvern eigi að tala og hvers vegna.
Síðast en ekki síst skiptir máli fyrir þann sem vill koma máli
sínu á framfæri að hann nái til markhópsins sem hann vill
tala við.
Fjalar kom auk þess með margar gagnlegar ábendingar
fyrir UMFÍ sem getur bætt sýnileika ungmennafélagshreyf-
ingarinnar og hjálpað henni að ná eyrum og augum fólks.
Grasrótarstarf er lykillinn
að framtíð UMFÍ
Vinna við stefnumótun UMFÍ hefur staðið yfir síðastliðið ár og er stutt í að henni
ljúki. Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, hefur leitt vinnu við
stefnumótunina í samstarfi við stýrihóp, sambandsaðila og starfsfólk. Auður Inga
lagði sérstaka áherslu á að grasrótarstarf UMFÍ sé lykillinn að árangri í framtíðinni og
því þurfi að styrkja það til muna.
Í stefnumótunarvinnunni er rammað inn að UMFÍ eigi að efla þátttöku fólks á öll-
um aldri í íþróttum. Það er gert með bættri þjónustu við sambandsaðila og aðildar-
félög, koma eigi á skipulögðum heimsóknum og bæta þjónustuna við grasrótina.
Samvinna og samskipti eru lykilhugtök í stefnumótun UMFÍ. Í samræmi við það
eigi UMFÍ að hafa frumkvæði að aukinni samvinnu og samskiptum við íþróttahreyf-
inguna og samtök í æskulýðs- og lýðheilsustarfi, koma eigi á aukinni samvinnu við
háskólasamfélagið og stjórnvöld, efla tengslanetið við sambandsaðila UMFÍ og kalla
eftir markvissari samvinnu við erlendu systurfélögin DGI og ISCA.
Samkvæmt þeirri framtíðarsýn sem Auður Inga kynnti er leitast við að UMFÍ verði
leiðandi afl í þjóðfélaginu og vaxandi fjöldahreyfing sem leggur áherslu á að skipta
máli fyrir einstakl-
inga og samfélag.
Með það fyrir aug-
um verður lögð sér-
stök áhersla á að
ná til allra hópa
samfélagsins, ung-
menna, eldri
borgara og ekki
síst jaðarhópa
með fræðslu og
forvarnir að leiðar-
ljósi.
Netleikjamót orðin risastór og vöxturinn gríðarlegur
Talsverðar breytingar hafa orðið á íþróttaiðkun fólks, að sögn Sævars
Kristinssonar hjá KPMG. Ýmsar íþróttir sem áður voru á jaðrinum, svo
sem snjóbretta- og hjólabrettaiðkun, eru nú hluti af almennum íþróttum.
Mótin þar sem keppt er í þessum
greinum eru orðin stór og afar
vel sótt víða um heim.
Framtíðarfræði eru sérsvið
Sævars. Hann lagði áherslu á
að þótt þar sé fjallað um ýmis-
legt, sem hljómi undarlega í
dag, þurfi það ekki allt að
rætast. Hlutverk framtíðar-
fræða sé miklu frekar að rýna
í strauma og stefnur og bæta
ákvarðanatöku í nútíð til að
vera búinn undir framtíðina.
Dæmi um jaðaríþrótt, sem hefur verið að ryðja sér til rúms, er netleikir.
Sævar sagði marga keppa í netleikjum, mótin væru orðin stór og vöxtur-
inn gríðarlegur. Hann benti á að árið 2014 hafi 32 milljónir manna fylgst
með úrslitaleiknum á heimsmeistaramótinu í tölvuleiknum Counter
Strike. Þá hafi 101.000 manns mætt á lokamót League of Legends í Dallas
Sævar fór líka inn á ansi fjarlægar brautir í vangaveltum sínum, benti
meðal annars á að framfarir í erfðafræði og líftækni gefi til kynna að nota
megi genabreytandi lyf til að hraða bata eftir meiðsli og bæta frammistöðu
íþróttafólks til muna. Verði það raunin muni íþróttafólk geta átt við gena-
samsetningu sína til að bæta frammistöðu í íþróttum.
Íþróttir í dag eru orðnar tæknivæddar
Sævar Kristinsson,
sérfræðingur hjá KPMG. 2008 2013 2018
M
ín
út
ur 18
23
28
í Bandaríkjunum árið 2015. Netleikir eiga enn mikið inni og tímaspursmál
hvenær þeir verði hluti af almennri íþróttaiðkun, að mati Sævars.
Hann fór yfir lýðheilsu og sagði að fólk legði áherslu á næringu og matar-
æði, hreyfingu, útivist, líðan og geðrækt. Þá skiptu lífsgæði fólks mun meira
máli en áður.
Meðaltími á dag í tölvu-
leikjaspilun per mann í
Bandaríkjunum.
(Áætlað 2018).
Fjalar Sigurðarson, markaðsstjóri
Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
Auður Inga Þorsteinsdótti,
framkvæmdastjóri UMFÍ.