Skinfaxi - 01.03.2016, Qupperneq 58
58 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Framlag sjálfboðaliðans
er ómetanlegt
Sjálfboðaliðar og óeigingjarnt hugsjónastarf þeirra er mikilvægur liður í
skipulagningu og rekstri landsmóta UMFÍ. Á Landsmóti UMFÍ 50+ á Ísa-
firði voru um hundrað sjálfboðaliðar af báðum kynjum og allt frá barns-
aldri og yfir miðjan aldur og sinntu þeir dómgæslu, mældu lengdir, sinntu
tímagæslu og skráðu niður allt sem þurfti á að halda fyrir gott mót.
Bakgrunnur sjálfboðaliða var ýmis konar og aðeins 3–4 voru íþróttafræði-
menntaðir. Margir sjálfboðaliða vinna á leik- eða grunnskólum í Ísafjarðar-
bæ. Það er sérgreinastjóra á landsmótum að halda utan um sjálfboðaliða
í sinni grein og skipuleggja starf þeirra. Sjálfboðaliðarnir vinna mislengi.
Sumir unnu alla landsmótshelgina en aðrir skemur.
K aritas segir það hafa verið tilvilj-
un, hún hafi hitt Sigríði Láru
Gunnlaugsdóttur, framkvæmda-
stjóra HSV á Ísafirði, í verslun og
hún spurt sig hvort það væri ekki rétt mun-
að að hún væri íþróttafræðingur. „Það var
rétt munað hjá henni og þá spurði hún
hvort ég væri til í að hjálpa til á Landsmót-
inu og taka að mér dómgæslu. Ég tók vel
í það enda hjálpaði það mér að rifja upp
námið og reglurnar úr skólanum,“ segir
Karitas, sem er deildarstjóri á leikskóla í
Bolungarvík og kennir þar börnum íþróttir.
Karitas segir sjálfboðaliðastarf hafa verið
lið í íþróttafræðináminu og hafi hún verið
sem slíkur á grunnskólamóti árið 2009. Hún
hafði ekki áður verið sjálfboðaliði á móti
UMFÍ. Karitas segist ólíklegt að hún hefði
gerst sjálfboðaliði, hvað þá tekið að sér
dómgæslu, nema af því að hún hafi haft
reynsluna. „Ég efast um að ég hefði sagt já
nema af því að ég hafði reynslu,“ segir hún
og bendir á að sjálfboðaliðar verði að halda
sér við, líði of langur tími á milli sjálfboða-
liðastarfa sé hætt við að þekkingin sem
þeir afli sér tapist.
Karítas segir fleiri kosti við sjálfboðaliða-
starf á móti í líkingu við Landsmót UMFÍ
50+ en galla. „Það var gaman að sjá og
hitta þessar gömlu kempur sem voru á
mótinu og sækja í reynslubanka þeirra.
Þegar við sjálfboðaliðarnir vorum sem
dæmi að að velta fyrir okkur hvernig ætti
að mæla í langstökki tók einn þátttakandi
í 80+ flokknum til sinna ráða. Hann reynd-
ist vera með landsdómararéttindi og var
okkur innan handar,“ segir hún.
Karítas segir helsta gallann við keppni í
frjálsum sem hún dæmdi í þá að umferð-
irnar hafi verið of margar. Það hafi teygt
keppnina á langinn. Í stað fjögurra um-
ferða hefðu þrjár dugað.
Bakgrunnur sjálfboðaliðans
Karitas hefur spilað knattspyrnu frá barnsaldri. Hún
gekk til liðs við Keflavík árið 2007 og spilaði í sex ár með
liðinu í meistaraflokki en frá árinu 2013 með BÍ/Bol-
ungarvík og hefur verið valin leikmaður liðsins.
Af hverju varð Karitas sjálfboðaliði?
Knattspyrnukonan og Bolvíkingurinn Karítas Sigurlaug
Ingimarsdóttir var ein þeirra sjálfboðaliða sem voru að
störfum alla landsmótshelgina á Ísafirði.