Skinfaxi - 01.04.2016, Side 26
26 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Hitamál við grillið
Allir leggja hönd á plóg svo allt gangi nú smurt og vel fyrir sig á Ungl inga-
landsmótum UMFÍ. Ásmundur Einar Daðason, þá þingmaður Fram sóknar-
flokksins, grillaði af krafti á meðan mótshaldinu stóð. Ásmundur Daði, sem
var tiltölulega nýfluttur í Borgarnes, stóð ekki vaktina í nafni stjórnmála-
flokks heldur sem formaður kvennaráðs meistaraflokks körfuknattleiks-
deildar Ungmennafélagsins Skallagríms í Borgarnesi.
Ásmundur hafði nóg að gera á hamborgaravaktinni enda borgarar og
svaladrykkur eftirlæti þátttakenda Unglingalandsmótsins. Hann taldi 250
hamborgara á föstudeginum en var kominn í 150 um miðjan dag á laugar-
dag. En enginn er eyland í ungmennafélagshreyfingunni. Það sama átti
við um Ásmund Daða við grillið. Hér á miðri myndinni með honum er
Björn Bjarki Þorsteinsson, forseti sveitarstjórnar Borgarbyggðar og oddviti
Sjálfstæðismanna í stjórninni. Þeir hafa því geta talað um ýmislegt fleira en
borgara og veðrið.
ULM 2016 Halda sér heitum
með briddsi
Fimm helstu og elstu glímudómarar landsins setjast niður þegar þeir hitt-
ast á hverju einasta Unglingalandsmóti og taka nokkra umganga í bridds
áður en þeir dæma í glímu á mótinu. „Við þurfum að halda okkur við,“ segir
Hörður Gunnarsson.
Hörður er elsti meðlimur hópsins, 77 ára gamall þegar Unglingalands-
mót UMFÍ fór fram í Borgarnesi. Fátítt er að glímudómararnir séu aðeins
fimm. Þann sjötta vantaði í hópinn að þessu sinni. Sigurjón Leifsson er
maðurinn en hann var ekki á mótinu. Hann er jafnaldri Kjartans Lárussonar
og eru þeir yngstu glímudómararnir í hópnum.
Hörður hefur verið viðriðinn glímu frá 1. febrúar árið 1948 og var gerður að
dómara átta árum síðar. Það var árið 1956, sama ár og fyrsta plata Elvis Presley
kom út, sú með lögunum Blue Suede Shoes, Tutti Frutti og Blue Moon.
Þetta er reyndar ekki eina skiptið sem glímudómararnir taka í spil. Hluti
hópsins hittist nefnilega á hverjum miðvikudegi í Reykjavík auk þess að
setjast niður við spilaborðið á ýmsum glímumótum yfir árið.
Hörður segir þá félagana hafa spilað saman um 5–10 sinnum á ári síðast-
liðin 30 ár. Spilamennskan fylgir ákveðinni rútínu: Hörður gefur og Rögn-
valdur er í forhönd.
Þetta eru dómararnir
Dómararnir eru yfirleitt sex sem setjast niður við spilamennsku á
mótum þar sem keppt er í glímu. Þeir voru fimm núna og þurfti
því einn að sitja hjá að þessu sinni. Þetta eru dómararnir við spila-
borðið og makkerar þeirra.
Hörður Gunnarsson
Makker: Þorvaldur
Þorsteinsson
Garðar Erlendsson
Makker: Rögnvaldur Ólafsson
Kjartan Lárusson sat hjá
þegar myndin var tekin.