Skinfaxi - 01.04.2016, Blaðsíða 42
42 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Sambandsráðsfundur
Ungmennafélags
Íslands (UMFÍ) var
haldinn að Laugum í
Sælingsdal laugardag-
inn 15. október síðast-
liðinn. Eins og fram kemur í 10. grein í lög-
um UMFÍ er sambandsráðsfundur UMFÍ
æðsta vald í málefnum UMFÍ á milli sam-
bandsþinga. Sambandsráð er skipað for-
mönnum sambandsaðila UMFÍ eða vara-
mönnum þeirra, ásamt stjórn UMFÍ. Verk-
efni sambandsráðsfundar eru að ræða
skýrslu næstliðins árs. Afgreiða reikninga
liðins árs. Afgreiða fjárhagsáætlun næsta
árs og viðfangsefni UMFÍ á milli þinga.
Laugar í Sælingsdal
Að Laugum rekur UMFÍ Ungmenna- og
tómstundabúðir yfir skólaárið fyrir nem-
endur í 9. bekk. Árlega sækja þangað um
tvö þúsund nemendur víðs vegar að frá
Mikill samhljómur á
40. sambandsráðsfundi UMFÍ
Í lok sambandsráðsfundar sagði Þorgrímur fundar-
stjóri hjartnæma sögu af syni sínum, Guðmundi
Þorgrímssyni.
Hann sagði Guðmund, sem margir þekkja sem
Guðmund tvíbura, hafa stigið sín fyrstu skref í fim-
leikum á Unglingalandsmóti á Egilsstöðum árið 2011.
Ástæða þess að Þorgrími lá sagan á hjarta var sú
að daginn áður, laugardaginn 14. október, keppti
Guðmundur á Evrópumótinu í hópfimleikum og
lenti lið hans þar í þriðja sæti. Augljóst stolt og
gleði skein af Þorgrími þegar hann bar fundinum
fréttirnar af árangri sonar síns enda brast röddin
nokkrum sinnum þegar tilfinningarnar höfðu
næstum borið hann ofurliði.
Þorgrímur bætti því við að Unglingalands-
mótið skipti miklu máli fyrir hinar dreifðu byggðir,
þar sem ekki er endilega boðið upp á æfingar í
öllum íþróttagreinum.
Hjartnæm frásögn Þorgríms
Þorgrímur Einar Guðbjartsson,
bóndi á Erpsstöðum.
landinu. Aðstaðan á Laugum er til fyrir-
myndar, þar er íþróttasalur, stór matsalur,
fundarrými og nægt svefnrými. Það nýttu
sér einmitt margir fundargesta sem komu
að Laugum á föstudeginum og gistu.
Samhljómur um góða stefnu
Fundinn sóttu 44 fulltrúar með stjórn og
starfsfólki UMFÍ. Fulltrúar frá 24 samband-
saðilum UMFÍ mættu en vantaði fulltrúa
frá fimm sambandsaðilum. Dagskrá var
hefðbundin. Þorgrímur Einar Guðbjarts-
son, bóndi á Erpsstöðum, og Helgi Gunn-
arsson, starfsmaður UMFÍ, fóru með fund-
arstjórn og leystist þeim það verkefni vel.
Mikil sátt ríkti á fundinum og var and-
rúmsloft gott. Auður Inga, framkvæmda-
stjóri UMFÍ kynnti ársskýrslu stjórnar og
stiklaði á stóru um starf félagsins undan-
farið ár. Auður Inga lagði jafnframt fram
ársreikning félagsins í fjarveru gjaldkera
og voru þeir samþykktir samhljóða. Ný
heildstæð stefna samtakanna var kynnt
og tekin til umfjöllunar í þjóðfundarfyrir-
komulagi. Fundurinn samþykkti stefnuna
og fól stjórn að fullvinna hana og fram-
fylgja. Nokkur umræða kom upp á fund-
inum um notkun rafretta en fór svo að
fundurinn samþykkti að taka höndum sam-
an og standa með tilheyrandi aðilum gegn
notkun þeirra sem og annarra tóbaksvara.