Skinfaxi - 01.04.2016, Blaðsíða 43
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 43
„Ég er alltaf með prjónana í töskunni og
prjóna alltaf á fundum sem eru lengur en
ein klukkustund,“ segir Guðný Stefanía
Stefánsdóttir, formaður Héraðssambands
Vestfirðinga (HSV).
Eftirtekt vakti á sambandsráðsfundi
UMFÍ hversu margar konur voru þar á
meðal fundargesta og með margt mismun-
andi á prjónunum. Það var auðvitað upp-
lagt að smella mynd af þessum vinnu-
sömu fulltrúum aðildarfélaga UMFÍ sem
létu myndatökur ekki trufla sig við vinnuna.
Prjónaskapur eykur einbeitingu
LEIGJUM ÚT OG ÞJÓNUSTUM VATNSSALERNI
á íþróttamót og hverskyns mannamót
Borgarflöt 15 550 Sauðárkrókur
Sími: 891 9181 Fax: 453 5778
Netfang: okgam@simnet.is
NÝ
PR
EN
T
Guðný Stefanía segir algengt að konur
prjóni á fundum UMFÍ. Þetta séu langir
fundir og hjálpi það mikið að prjóna til að
halda einbeitingunni.
„Ég hef alltaf einbeitt mér betur á fund-
um þegar ég prjóna,“ segir hún og rifjar
upp að þegar hún var á löngum fundi, þar
sem lokaverkefni útskriftarnema voru
kynnt á lokaári hennar í íþróttakennara-
fræðum á Laugarvatni, hafi hún heklað í
4–5 klukkustundir. „Kennaranum fannst
þetta mjög merkilegt, sérstaklega þegar
ég varpaði fram spurningu um efni sem
var til umræðu. Hann hélt að ég hefði ekki
verið að hlusta.“