Bókatíðindi - 01.12.1995, Page 8
íslenskar barna- og unglingabœkur
SAGAN AF
HÚFUNNI FÍNU
Sjón
Strákur situr á steini og
segir fólki sem á leið hjá að
hann sitji á bestu húfu í
heimi. Með miklu hugar-
flugi lýsir hann kostum
húfunnar, en það er ekki
fyrr en í lokin að kemur í
Ijós hvað gerir hana svo
óviðjafnanlega. Sagan er í
lausu og bundnu máli,
skreytt fjörlegum myndum
eftir Halldór Baldursson.
32 blaðsíður.
Mál og menning
ISBN 9979-3-0847-8
Verð: 1.290 kr.
SEX AUGNABLIK
Þorgrímur Þráinsson
Hvernig skyldi 16 ára
unglingi takast upp þegar
hann ákveður að skrifa
ævisögu sína? Hefur hann
eitthvað að fela eða birtast
tilfinningar hans og hugs-
anir kviknaktar í bókinni?
Sex augnablik fjallar á
opinskáan hátt um sam-
skipti kynjanna, skrautlega
ættingja, ævintýralega
upplifun í lyftu, nakta ungl-
inga á skíðum, sveita-
rómantík, dauðann og jafn-
vel um MIG og ÞIG. Sagan
er full af spaugilegum at-
vikum og ótrúlegum uppá-
komum en þess á milli er
tekist á við alvöru lífsins.
Þetta er sjötta unglingabók
metsölu- og verðlauna-
höfundarins Þorgríms
Þráinssonar og að þessu
sinni hristir hann ærlega
upp í lesendum.
150 blaðsíður.
Fróði
ISBN 9979-802-32-4
Verð: 2.190 kr.
SIGGI HREKKJUSVÍN
Oddný Thorsteinsson
Myndskreyting: Halla
Sólveig
„Amma! Hvernig léku
börnin sér í gamla daga?"
spurði Katrín litla. Hér er
svarið, öllum gömlu leikj-
unum lýst. Þá var gaman
að lifa og leika sér en inn í
það er fléttað spennusögu
um strákinn sem alltaf var
að stríða stelpunum.
Yndisleg myndskreyting.
80 blaðsíður.
Fjölvi
ISBN 9979-58-273-1
Verð: 1.680 kr.
SILFURSKEIÐIN
Sigurbjörn Sveinsson
Myndskreyting: Jean
Posocco
geisladiskar.
AEET NÝJASTA POPPIÐ OG
GOTT ÚRVAE AF KLASSÍK
FRÆÐSEUEFNI
OG töevueeikirácd-rom
MYNDBÖND
FLEIRA EN ÞIG GRUNAR
ZÁ
s®m
FYRIR AEEA FJOESKYEDUNA
OG AÐ SJÁEFSÖGÐU
BÆKUR