Bókatíðindi - 01.12.1995, Blaðsíða 33

Bókatíðindi - 01.12.1995, Blaðsíða 33
Þydd skáldverk LITLA SKÓLAHÚSIÐ Jim Heynen Þýðing: Gyrðir Elfasson Bandaríski rithöfundurinn Jim Heynen hefur sent frá sér smásagnasöfn og einn- ig nokkrar Ijóðabækur. Sögur hans njóta nú vax- andi vinsælda vestur í Bandaríkjunum en sumarið 1994 kom hann til íslands og las þá upp úr verkum sínum fyrir íslenska áheyr- endur. Sögurnar sem flestar eru örstuttar gerast í sveita- héruðum lowa og greina frá lífi drengjanna á akur- yrkjubýlunum á sléttunni og óvæntum uppátækjum þeirra. Samt eru þær ekki „drengjasögur" í venjuleg- um skilningi - þær spanna víðara svið en sýnist í fyrstu. Gyrðir Eliasson rithöfund- ur valdi sögurnar og íslenskaði. 151 blaðsíða. Hörpuútgáfan ISBN 9979-50-067-0 Verð: 1.780 kr. bók/ð.lð. /túdeivtð. v/Hringbraut 107 Reykjavík 561-5961 Bróðir Cadfael 1: LÍKI OFAUKIÐ Ellis Peters Þýðing: Áslaug Ragnars Fyrsta bókin í bókaflokki um þennan margfræga miðaldamunk. Sögurnaraf bróður Cadfael hafa hvar- vetna náð miklum vin- sældum og er höfundinum líkt við Agötu Christie. Þær eru ekki bara afþreying, heldur bókmenntaverk um leið. Gerðar hafa verið sjónvarpskvikmyndir eftir nokkrum bókanna, með Derek Jacobi í aðalhlut- verki. - Hér hefur Stephen konungur látið taka hóp andstæðinga sinna af lífi, en er bróðir Cadfael er fenginn til að búa líkin til greftrunar finnur hann að þar er einu líki of margt. - Hver ætlaði hér að losa sig fyrirhafnarlítið við fjand- mann - eða andstæðing? 256 blaðsíður. Frjáls fjölmiðlun hf. ISBN 9979-840-17-X Verð: 895 kr. Bróðir Cadfael 3: LÍKÞRÁI MAÐURINN Ellis Peters Þýðing: Elín Margrét Hjelm/Rósa Anna Björgvinsdóttir Þriðja bókin í bókaflokki um þennan margfræga miðaldamunk. - Roskinn maður ætlar að ganga að eiga barnunga stúlku, sem stendurtil mikilla erfða. En þegar kemur að athöfninni taka voveiflegir atburðir að gerast. Enn einu sinni kemur skarpskyggni bróð- ur Cadfaels til bjargar. 224 blaðsíður. Frjáls fjölmiðlun hf. ISBN 9979-840-24-2 Verð: 895 kr. LOKAÐ HERBERGI Paul Auster Þýðing: Snæbjörn Arngrímsson Langt er síðan jafnfrum- legur og sterkur höfundur og Paul Auster hefur komið tram í bókmennta- heiminum. Frásagnarlist eins og hún gerist best. 125 blaðsíður. Bjartur ISBN 9979-865-11-3 Verð: 2.480 kr. MARTRÖÐ SANNLEIKANS Joy Fielding Þýðing: Geir Svansson Æsispennandi og hroll- vekjandi bók sem seint gleymist. Jane Whitaker er á leið út í búð þegar hún uppgötvar að hún hefur ekki hugmynd um hver hún er. Hún getur ekki munað hvað hún heitir, hvað hún er gömul, hvar hún á heima, hún man ekki einu sinni hvernig hún lítur út. Hún er hins vegar með tíu þúsund dollara í vas- anum og kjóllinn hennar er allur útataður í blóði. Ein magnaðasta spennusaga síðari ára. 381 blaðsíða. Vaka-Helgafell hf. ISBN 9979-2-0244-0 Verð: 1.990 kr. MEÐ HÆGÐ Milan Kundera Þýðing: Friðrik Rafnsson Splunkuný skáldsaga eftir þennan geysivinsæla höf- und. Hún gerist í fagurri höll í Frakklandi sem er vettvangur ástarævintýra tvennra tíma og tvenns konar reynslu af ást og kynlífi. Bókin sem kom út fyrr á þessu ári hefur hlotið lofsamlega dóma um allan heim. 118 blaðsíður. Mál og menning ISBN 9979-3-0800-1 Verð: 1.780 kr. MEFISTÓ Klaus Mann Þýðing: Bríet Héðinsdóttir Skáldsagan Mefistó sem segir frá starfsferli lista- manns í alræðisriki á sér sjálf sérkennilegan feril að baki. Hún kom Tyrst út 1936 í Amsterdam enda sjálf- krafa bönnuð heimalandi höfundar, Þýskalandi, þar sem hún birtist ekki fyrr en 20 árum seinna, og þá í Austur-Þýskalandi. Vestur- þýskt forlag hugðist gefa söguna út 1963 en útgáfan var stöðvuð. Þetta varð upphaf frægustu málaferla í Þýskalandi eftir stríðslok vegna bókar. Þegar hún var svo loks gefin út í Vest- ur-Þýskalandi 1981 vakti hún strax feikna athygli og hefur síðan selst i milljóna- upplögum og verið þýdd á 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Bókatíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.