Bókatíðindi - 01.12.1995, Blaðsíða 22
íslensk skáldverk
sagan í bókinni, Fljótið,
hlaut viðurkenningu í smá-
sagnakeppni Ríkisútvarps-
ins, Klukku íslands, árið
1994.
124 blaðsíður.
Skjaldborg hf.
ISBN 9979-57-272-8
Verð: 2.480 kr.
JóJasögur
úr
saintínianum
(liinwROnt flr.RGs>0N
JÓLASÖGUR ÚR
SAMTÍMANUM
Guðbergur Bergsson
Sex frásagnir af sam-
skiptum nútímaíslendinga
og Jesúbarnsins. Sannar-
lega óvenjulegar jólasögur,
ritaðar af alkunnri list
höfundarins.
103 blaðsíður.
Forlagið
ISBN 9979-53-286-6
Verð: 1.980 kr.
KANABARN
Stefán Júlíusson
Nútíðarsaga um ástir 16
22
ára stúlku og hermanns á
Vellinum. Pilturinn hverfur
á brott, óvænt og umtals-
laust. Stúlkan missir fót-
festuna, týnist. Bréf kemur
frá piltinum tveimur mán-
uðum síðar. Ný vandamál
verða til, stúlkan er með
barni og þarf að stokka
spilin upp á nýtt.
Þá byrjar sagan. Hún ger-
ist í Keflavík, vestan hafs
og í sveit sunnanlands.
166 blaðsíður.
Bókaútgáfan Björk
ISBN 9979-807-42-3
Verð: 2.850 kr.
KVÖI.D í
L | ÓSTL' RM N L \1
I
W
KVÖLDí
LJÓSTURNINUM
Gyrðir Elíasson
Nýtt safn sagna af sérstöku
fólki, sem ýmist er hérna
megin grafar eða að hand-
an, og af hversdagslegum
atburðum sem skyndilega
verða annarlegir. Hér nýtur
hinn þekkti Ijóðræni og
tæri stíll Gyrðis sín til fulls:
Óhugnaðurinn verður heill-
andi fagur. Bókin er prýdd
myndum eftir Elías B.
Halldórsson.
88 blaðsíður.
Mál og menning
ISBN 9979-3-0818-4
Verð: 2.680 kr.
BÓKAVERZLVNIN
300 Akranes
MÁVAHLÁTUR
Kristín Marja
Baldursdóttir
Sprellfjörug saga sem ger-
ist á kreppuárunum og
segir frá hópi kvenna sem
búa í litlu sjávarþorpi og
ganga í gegnum súrt og
sætt saman. Sagan er sögð
frá sjónarhóli unglings-
stúlku en aðalpersónan er
frænkan fagra og dularfulla
sem kom frá Ameríku og
skapaði mönnum örlög.
Hér kveður nýr höfundur
sér hljóðs með óvenju
skemmtilegum hætti.
245 blaðsfður.
Mál og menning
ISBN 9979-3-0893-1
Verð: 3.480 kr.
v-k. K»%rfdl
Minningasögur
GRIKKLANDSÁRIÐ
í TÚNINU HEIMA
SJÖMEISTARASAGAN
ÚNGUR EG VAR
Halldór Laxness
í Grikklandsárinu, í túninu
heima, Sjömeistarasög-
unni og Úngur eg var lýsir
Halldór Laxness bernsku-
árum sínum fram um
tvítugt. Hér er ekki einungis
um að ræða persónusögu
Halldórs, menningarsögu
og aldarspegil, heldur eru
þessar angurværu frá-
sagnir bókmenntir í hæsta
gæðaflokki. Tónninn er
ýmist grafalvarlegur eða
þrunginn ísmeygilegri
gamansemi eins og í öðr-
um verkum skáldsins.
Minningasögur Halldórs
Laxness sóma sér vel með-
al þess besta sem hann
hefur skrifað.
256 bls.Grikklandsárið/
249 bls.í túninu heima/
226 bls. Sjömeistara-
sagan/ 242 bls.Úngur
eg var.
Vaka-Heigafell hf.
ISBN 9979-2-0007-3
/-0004-9/-0006-5/-0005-7
Verð: 3.295 kr.
hver bók.
PARADÍSARHEIMT
Halldór Laxness
Ný útgáfa af Paradísar-
heimt. Á ytra borði fjallar
sagan um líf og örlög fá-
tæks fólks úr íslenskri sveit
en þegar betur er að gáð
kemur í Ijós þung undir-
alda í dýpri gerð sögunnar.
Paradísarheimt er marg-
slungið verk og síbreytilegt
að efni, stíl og máli; að
uppistöðu harmsaga en á
yfirborðinu tindrar sagan
af kímni. Þetta er ein
vinsælasta skáldsaga Hall-
dórs Laxness og hefur
verið kvikmynduð.
298 blaðsfður.
Vaka-Helgafell hf.
ISBN 9979-2-0042-1
Verð: 3.295 kr.
SALKA VALKA
Halldór Laxness
Salka Vatka var fyrsta bók
Halldórs Laxness sem afl-
aði honum frægðar utan
íslands. Hún hefur verið
með vinsælustu bókum
hans, leikverk hafa verið
samin eftir henni og sagan
verið kvikmynduð. Hér er
rakin saga Sölku Völku
sem kemur með móður
sinni til Óseyrar við
Axlarfjörð. Hörð stéttaátök
blandast stórbrotnum ör-
lögum ógleymanlegra per-
sóna, ástin og dauðinn búa
við hafið í þessu litla þorpi
en þó er ávallt stutt í
kímnina hjá skáldinu. Þetta
er ný útgáfa af þessari
stórbrotnu bók.
451 blaðsíða.
Vaka-Helgafell hf.
ISBN 9979-2-0231-9
Verð: kr. 3.980 kr.
úlíaisfell
Hagamel 67
107 Reykjavík
552-4960