Bókatíðindi - 01.12.1995, Blaðsíða 16

Bókatíðindi - 01.12.1995, Blaðsíða 16
Þýddar barna- og unglingabœkur i ORÐ OG MYNDIR Bók 1 og Bók 2 Þetta eru myndabækur fyrir lítil börn í leit að orð- um sem börn og foreldrar hafa gagn og gaman að. Með því að tala við börnin um orðin og myndirnar vaknar áhugi þeirra og orðaforðinn eykst smám saman. Harðspjaldabók með skýru letri og mörgum lit- myndum á hverri síðu. Setberg ISBN 9979-52-131-7/-133-3 Verð: 490 kr. hvor bók. POCAHONTAS Ævintýrabækur Disneys Þýðing: Sigrún Árnadóttir Ríkulega myndskreytt saga sem byggð er á sígildu ævintýri og nýrri sam- nefndri kvikmynd frá Disn- ey. Indíánarnir lifa rólegu lífi í sátt og samlyndi við dýrin og umhverfið en dag einn birtast enskir land- nemar og byrja að ryðja skóginn og grafa eftir gulli. Stríð vofir yfir en Poca- hontas, dóttir höfðingjans, þvottabjörninn Míkó og fuglinn Flögri reyna að koma á friði. Ógleymanlegt ævintýri fyrir stráka og stelpur á öllum aldri. 96 blaðsíður. Vaka-Helgafell hf. ISBN 9979-2-0288-2 Verð: 1.290 kr. aUMMMBHHWMMnNMEMMMI POCAHONTAS Walt Disney Þýðing: Soffía Ófeigsdóttir Hrífandi saga og skemmti- legt leikfang. Sagan segir frá indíánastúlkunni Poca- hontas og hvernig líf henn- ar breytist þegar enskir landnemar ógna friðinum meðal indíánanna og fara að grafa eftir gulli. Með því að ýta á hljóðhnappa sem eru áfastir bókinni heyrast raddir og hljóð úr heimi indíánanna og ævintýrið lifnar við. Vaka-Helgafell hf. ISBN 9979-2-0287-4 Verð: 1.890 kr. REGNBOGAFISKURINN Marcus Pfister Þýðing: Valgerður Benediktsdóttir Regnbogafiskurinn er með marglitt hreistur og er því fallegasti fiskurinn í sjón- um. En hann er dramblátur og enginn vill vera vinur hans-þartil hann lærirað gefa af sjálfum sór. Ein- staklega fallega mynd- skreytt saga sem hlotið hefur verðlaun víða um heim. 26 blaðsfður. Vaka-Helgafell hf. ISBN 9979-2-0303-X Verð: kr. 980 kr. SKEMMTILEGU SMÁ- BARNABÆKURNAR Þýðing: Stefán Júlíusson Skemmtilegu smábarna- bækurnar nr. 1-35 eru vin- sælustu bækurnar fyrir lítil börn sem fyrirfinnast á bókamarkaðnum. Margar þeirra hafa komið út í meira en 40 ár en eru þó alltaf sem nýjar. í ár koma þessar bækur út: Bláa kannan nr. 7. Græni hatt- urinn nr. 2. Stúfur nr. 6. Ari og Ása leika sér nr. 35. Hún er að hluta til í bundnu máli, sem auðvelt er að syngja. Fallegar - vandaðar - ódýrar. 24 eða 32 blaðsíður hver. Bókaútgáfan Björk ISBN 9979-807-38-5/-39-3 /-40-7/-41-5 Verð: 171 kr. hver bók. SKÓGARDÝRIÐ HÚGÓ Flemming Quist Möller Þýðing: Ágúst Guðmundsson Ævintýrið um skógardýrið Húgó, sem kemur til lands- ins í bananapoka, segir frá þrjótunum ísabellu og Konráði, sem vilja láta hann leika í stórmyndinni Fríða og gæludýrið, og hinum litla og röska tófu- yrðlingi Rítu, sem verður besti vinur Húgós og hjálp- ar honum að komast heill á húfi úr hættum malbiks- frumskógarins. 32 blaðsíður. Skjaldborg hf. ISBN 9979-57-247-7 Verð: 990 kr. Frank og Jói: STRANDVEGSMÁLIÐ Franklin W. Dixon Þýðing: Gísli Ásmundsson Sögurnar af þeim bræðr- um Frank og Jóa fara sigurför um heiminn. Milljónir barna og ungl- inga hafa skemmt sér við lestur þessara spennu- bóka. 150 blaðsíður. Skjaldborg hf. ISBN 9979-57-248-5 Verð: 1.380 kr. A.VDER3JAU>BS&>N SCfltV OI.SSON SVANUR OG SVARTI MADURINN Anders Jacobsson og Sören Olsson Þýðing: Jón Daníelsson Nú er Svanur orðinn níu ára og hlakkar mikið til að fara í sumarbúðir í fyrsta sinn. Bara að hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur af svarta manninum sem sagt er að læðist milli tjaldanna á kvöldin og smiti börn með heimþrárbakteríum... Fjórða bókin um prakk- arann Svan, sem er eftir sömu höfunda og met- sölubækurnar um Bert. 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Bókatíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.