Bókatíðindi - 01.12.1995, Blaðsíða 69
Ragnar í SkaftafeUi Skáldkonur fyrri alda
Ragnar í
Skaftafelli
Endurminningar og
frásagnir
Helga K. Einarsdóttir skráði
Ragnar Stefánsson bóndi
og þjóbgarðsvörður var
fæddur í Skaftafelli í
Öræfum. Hann lýsir
búskaparháttum á
uppvaxtarárum sínum
og síðar, svo sem
selveiði á söndum og
hættuferðum með fólk
og farangur yfir
stórfljót og jökla, sem
heita máttu daglegt brauð. Einnig frá
skipsströndum, meðal annars „Gullskipinu". Ragnar
segir frá uppvexti sínum hjá ástríkum foreldrum, ást, hjónabandi
og mikilli sorg, en einnig gleði og farsæld í fjölskyldulífi. Þá segir
hann frá stofnun þjóðgarðsins í Skaftafelli og mörgum mönnum
sem þar komu við sögu, m. a. Sigurði Þórarinssyni. Fróðleg og
skemmtileg bók um líf, störf og baráttu vib óblíð náttúruöfl.
Ómetanleg heimild um náttúruperluna í Skaftafelli.
Hvíldarlaus ferð inní
; \ drauminn
Sevð
•«W\Í draum'('n
Smásö^.
Hvíldarlaus
ferð inní
drauminn
Smásögur eftir Matthías
(ohannessen
Matthías Johannessen
ritstjóri, er löngu kunnur
sem einn fremsti og
mikilvirkasti rithöfundur
þjóðarinnar. Þetta nýja
smásagnasafn Hvíldar-
laus ferð inní drauminn
hefur að geyma 22
smásögur og stutta þætti, þar sem
bestu kostir Matthíasar sem skálds fá notið sín. Þar er
meðal annars að finna fíngerðan og Ijóðrænan skáldskap, hnittnar
frásagnir og ógleymanlegar mannlýsingar.
„Hvíldarlaus ferð inní drauminn er margbrotið verk og stundum stór-
brotið. ...að mínu mati eitthvert merkasta smásagnasafn seinni ára."
(Skafti Þ. Halldórsson, Morgunblaðið 25.10.1995).
• c JoW»nnessen
Wa«WasJ
Skáldkonur
fyrri alda
Guðrún P. Helgadóttir
í þessari bók segir
höfundur frá þekktum
skáldkonum fyrri alda,
m. a. Þórunni á Grund,
Steinunni á Keldum,
Þórhildi skáldkonu,
Jóreiði í Miðjumdal,
Steinunni í Höfn,
Látra-Björgu,
Maddömunni á
Prestbakka,
Ljósavatnssystrum
og Vatnsenda-
Rósu. Höfundur
skrifar af alúð
og nærfærni.
Á látlausan hátt tekst
Guðrúnu að skapa listrænt verk
sem er í senn skemmtilegt aflestrar og girnilegt til
fróðleiks. Óskabók allra kvenna.
Lífsgleði
Minningar og frásagnir
Þórir S. Guðbergsson skráði
I þessari nýju bók eru
frásagnir sex Islendinga,
sem líta um öxl, rifja upp
liðnar stundir og
lífsreynslu. Þeir slá á létta
strengi og minningar
þeirra leiftra af gleði.
Þau sem segja frá eru:
Daníel Ágústínusson, Fanney
Oddgeirsdóttir, Guðlaugur Þorvaldsson, Guðrún
Halldórsdóttir, Úlfur Ragnarsson og Þóra Einarsdóttir.
„Lífsgleði" er kærkomin bók fyrir alla sem unna góðum
endurminningabókum.
HÖRPUÚTGÁFAN
STEKKJARHOLT 8-10 - 300 AKRANES
SÍÐUMÚLI 29 - 108 REYKJAVIK