Bókatíðindi - 01.12.1995, Blaðsíða 11
íslenskar barna- og unglingabœkur
sinni á leiðinni. Þetta dreg-
ur dilk á eftir sér og verður
ferð hennar hin sögu-
legasta.
24 blaðsfður.
Vaka-Helgafell hf.
ISBN 9979-2-0308-0
Verð: 1.290 kr.
VÍSUR, KVÆÐABROT
OG ÞULUR
Árni Árnason og Árni
Hafstað völdu efnið
íslenskur úrvalskveðskapur
sem veitir hlutdeild í lífi
liðinna kynslóða og miðlar
jafnframt fegurð og orð-
snilld. Bókin er ríkulega
myndskreytt.
96 blaðsíður.
Barnabókaútgáfan
Dreifing: íslensk
bókadreifing hf.
ISBN 9979-9154-0-4
Verð: 1.690 kr.
t&ókahúb
f^mflavíkur
Sólvallagötu 2
230 Keflavík
421-1102
ÆVAR Á GRÆNNI
GREIN
Iðunn Steinsdóttir
Lítill, íslenskur drengur býr
í útlöndum með pabba
sínum og mömmu, afa og
ömmu. Og það er ekki
eintóm sæla! Ævar lendir í
ýmsum ævintýrum og
gerir ótal skammarstrik,
stundum leiðist honum og
stundum er gaman, en
hann er líka bara venju-
legur strákur og dálítið
kenjóttur eins og gengur.
Stórskemmtileg og fjörleg
bók fyrir alla krakka sem
finnst gaman að lesa um
litla óþekktarorma! Bók
sem fullorðnir geta lesið
fyrir yngri börnin og haft
jafn gaman að og þau.
Bókina prýðir fjöldi fallegra
mynda eftir Gunnar Karls-
son.
120 blaðsíður.
Iðunn
ISBN 9979-1-0285-3
Verð: 1.680 kr.
Eymundsson
w
Afram Latibær!
Bók sem beðið
vareftir!
Magnús Scheving þolfimimeistari hefur haldið hundruð fyrirlestra
fyrir fólk á öllum aldri og komið fram á ótal skemmtunum.
Honum berast sífellt fyrirspurnir um ýmis atriði sem tengjast
fyrirlestrunum. Þess vegna ákvað hann að svara þeim í bók og
samdi bráðskemmtilega sögu sem verður lesendum bæði til
gagns og gamans!
íþróttaálfurinn kemur til hjálpar þegar halda á mikla
íþróttahátíð sem íbúar Latabæjar eru vanbúnir til að taka
þátt í. Hann kennir krökkunum leiki, léttar leikfimi- og teygjuæfingar, gefur
góð ráð um mataræði og skýrir fyrir þeim mun á leik og ofbeldi.
Magnús fer á kostum og fléttar fróðleik í fyndna og fjörlega sögu.
Gamansamar tcikningar Halldórs Baldurssonar gera bókina enn skemmti-
legri! Henni fylgir líka geisladiskur með leiðbeiningum Magnúsar um léttar
leikfimiæfingar - við tónlist sem Máni Svavarsson hefur samið og valið.
Áfram Latibær! - bók sem kemur mörgum á hreyfmgu! ÆSKAN