Bókatíðindi - 01.12.1995, Síða 18

Bókatíðindi - 01.12.1995, Síða 18
Islensk skáldverk ANDLIT ÖFUNDAR Birgitta H.Halldórsdóttir Jóhanna er ung stúlka sem er búsett í Reykjavík. Hún er gædd dulrænum hæfi- leika, fjarskyggni, sem gert hefur henni lífið leitt en hún telur sig hafa losnað við. Dag einn sér hún sýn sem kemur blóðinu til að frjósa í æðum hennar. Hún bjarg- ar litlu barni frá drukknun og fyrr en varir er hún flækt í ótrúlega atburðarás þar sem hún fær engu ráðið. Lífi hennar er stefnt í hættu. Jóhanna kynnist nýju fólki og um leið kemur ástin inn í líf hennar. Er hægt að vera hrifin af tveimur ólík- um mönnum? Getur hún treyst þeim? Þessi þrettánda skáldsaga Birgittu er spennandi saga um afbrot og ástir. Enn á ný kemur Birgitta skemmti- lega á óvart. 200 blaðsíður. Skjaldborg hf. ISBN 9979-57-257-4 Verð: 2.480 kr. AUGA FYRIR TÖNN Kormákur Bragason í þessari skáldsögu er á opinskáan hátt tekist á við frumkenndir mannsins og aðferðir hans til að byggja upp samfélag manna. í sögunni koma upp á yfir- borðið brestir í þeirri sið- ferðismynd sem nútíma- maðurinn hefur tileinkað sér. Meginviðfangsefni bók- arinnar er kynferðislegt of- beldi en í sögunni kemur fram hvernig þolendur of- beldis og aðstandendur þeirra ákveða að bregðast við. í persónusköpun eru engir silkihanskar notaðir og engum hlíft. Eftir stend- ur kaldur veruleikinn, óvæginn en þrátt fyrir allt sannfærandi. 151 blaðsíða. Hekluútgáfan Dreifing: íslensk bókadreifing hf. ISBN 9979-60-158-2 Verð: 2.950 kr. ib., 1.995 kr. kilja Eymundsson ÁR BRÉFBERANS Kristján Kristjánsson Ungur maður á sér tak- mark sem hann stefnir einbeittur að. Ekkert fær hindrað hann í að komast á leiðarenda, áformin eru skýr og sigurvissan rík. í dagbók sína skráir hann með yfirvegun atburði úr fortíð og nútíð meðan hann bíður þess sem koma skal. Dauðinn er honum hugleikinn eftir alvarlegt slys og brún hengiflugsins er ávallt nærri. Mögnuð og áleitin saga, vel skrifuð og sterk, sem sýnir að höfund- urinn hefur frábært vald á viðfangsefni sínu og les- andanum um leið. 113 blaðsíður. Iðunn ISBN 9979-1-0278-0 Verð: 3.480 kr. BðMHlllSIO Skeifunni 8 108 Reykjavík 568-6780 Kri stfn Omarsdóttirl DYRNARÞRÖNGU Kristín Ómarsdóttir Seiðandi skáldsaga um stúlku á ferðalagi í ævin- týralegri borg; en um leið kannar höfundur sem fyrr ástina í fjölbreytilegum myndum og skortir hvergi frumlega sýn. 205 blaðsfður. Mál og menning ISBN 9979-3-0920-2 Verð: 2.980 kr. ÉG KYSSI FÓTSPOR ÞÍN Þorsteinn Stefánsson Nú er komið út seinna bindi Ljóðsögu Þorsteins Stefánssonar Ég kyssi fót- spor þín - um dönsku kon- una sem helgaði líf sitt útgáfu íslenskra bók- mennta. Ljóðsaga fjallar um mann- legar tilfinningar í gleði og sorg, og er svo raunveru- leg, að ekki er annað hægt en að hrífast og finna til með persónum bókarinnar. Þorsteinn Stefánsson hefur hér hreyft við því grund- vallarhugtaki, að ástin er eilíf og getur ekki dáið. Bókin fæst í bókabúðum í Reykjavík. Einnig má panta hana í síma 553 6057 og 588 7536. 239 blaðsíður. Birgitte Hovrings Biblioteksforlag Verð: 2.380 kr. FEBRÚARKRÍSUR Ragnar Ingi Aðalsteinsson Febrúarkrísur er fyrsta skáldsaga Ragnars Inga Aðalsteinssonar. Frá hans hendi hafa komið út fimm Ijóðabækur og auk þess þrjár kennslubækur í brag- fræði. Sagan Febrúarkrísur fjallar um ungan, reynslu- lítinn kennara sem tekur að sér að kenna dönsku við 18

x

Bókatíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.