Bókatíðindi - 01.12.1995, Page 54
Ævisögur og
endurminningar
Á VALDI ÖRLAGANNA
Æviminningar maestro
Sigurðar Demetz
óperusöngvara
Pór Jónsson
Hann þótti efni í stórsöngv-
ara en heilladísir brugðust
honum oftsinnis. Evrópa
stóð í björtu báli þegar
söngferill hans hófst og
flest óperuhús voru lokuð.
Ógnir stríðsins létu engan
óáreittan og starf við út-
varp þýska hernámsliðsins
í Mílanó var í senn hald-
reipi og hættuspil. Eftir
stríð komst hann á lang-
þráðan samning hjá Scala-
óperunni en gæfan var
hverful sem fyrr. Hann
söng um hríð í ýmsum
óperuhúsum en hendingin
bar hann loks til íslands. -
Lærimeistari Kristjáns
Jóhannssonar og ótal ann-
arra íslenskra söngvara
rekur hér örlagasögu ævi
sinnar; bernskuár í Ölp-
unum í skugga styrjaldar
og átaka, herþjónustu á
Ítalíu, söngnám og glæstar
framavonir. Hér heima
hefur hann gert sér far um
að kynnast landi og þjóð
og síðast en ekki síst; kennt
landsmönnum söng í 40 ár.
Litrík saga sem Þór Jóns-
son hefur fært í letur af list.
225 blaðsíður.
Iðunn
ISBN 9979-1-0281-0
Verð: 3.680 kr.
BETRI HELMINGURINN
Bragi Bergmann og Jón
Daníelsson
Frásagnir kvenna sem gift-
ar eru þekktum einstakling-
um.
Halldóra Hjaltadóttir, maki
Egill Jónsson alþingis-
maður.
Kristín Sigríður Gunn-
laugsdóttir, maki séra Sig-
urður Haukur Guðjónsson.
Elsa Björnsdóttir, maki
Gestur Einar Jónasson
leikari og útvarpsmaður.
Ásta Kristrún Ragnars-
dóttir, maki Valgeir Guð-
jónsson tónlistarmaður.
Ingibjörg Hjartardóttir,
maki Ragnar Stefánsson
jarðskjálftafræðingur.
250 blaðsíður.
Skjaldborg hf.
ISBN 9979-57-284-1
Verð: 3.480 kr.
.V
Eymundsson
ENGIN MISKUNN
Miriam Ali og
Jana Wain
Engin miskunn er sönn
saga breskrar móður sem
berst fyrir því að bjarga
tveimur dætrum sínum úr
ánauð en faðir þeirra seldi
þær í hjónaband til Yemen.
Þar beið þeirra auðmýking,
ofbeldi og nauðganir.
Nadía og Zana voru fjórtán
og fimmtán ára þegar
þetta gerðist. Móðir þeirra,
Miriam Ali, brotnaði sam-
an við tíðindin en reis
síðan upp til varnar dætr-
um sínum og - sjálfri sér.
Hún neitaði að gefast upp,
hóf baráttu fyrir því að
frelsa dæturnar um leið og
hún sagði eiginmanninum,
sem hafði kúgað hana og
niðurlægt um árabil, stríð á
hendur.
Zana, dóttir Miriam, lýsti
reynslu sinni í bókinni Seld
fyrir nokkru. Engin misk-
unn er ekki síður átakanleg
lesning og lætur engan
ósnortinn.
271 blaðsíða.
Vaka-Helgafell hf.
ISBN 9979-2-0322-6
Verð: 2.480 kr
ERLINGUR
GRASALÆKNIR
Gissur Ó. Erlingsson
Bók þessi segir frá lífi og
starfi manns sem hér á
landi átti drýgri þátt en
flestir aðrir þessarar aldar
menn í því að endurvekja
notkun lífgrasa og önnur
úrræði sem kynslóðirnar
hafa af hyggjuviti sínu
þróað frá aldaöðli til
græðslu mannlegra meina,
oft með næsta undraverð-
um árangri. í henni er rakin
í stórum dráttum ævisaga
Erlings, drepið á hina
hörðu lífsbaráttu í Skafta-
fellssýslum á uppvaxtar-
árum hans og viðureign
fólksins við óblíð náttúru-
öfl. Síðan víkur sögunni til
Austurlands og loks til
Reykjavíkur sem varð meg-
in starfsvettvangur Erlings
Filippussonar.
155 blaðsíður.
Skjaldborg hf.
ISBN 9979-57-279-5
Verð: 2.980 kr.
Hafnarstræti 108
600 Akureyri
462-2685
ÉG SKRIFAÐI MIG í
TUGTHÚSIÐ
Valdimar Jóhannsson
bókaútgefandi segir frá
Gylfi Gröndal
Valdimar hefur lifað við-
burðaríka ævi. Á hernáms-
árunum lenti hann ungur
ritstjóri eigin blaðs í ónáð
hjá Bretum vegna skrifa
sinna, var dæmdur fyrir
landráð og sat í hegningar-
húsinu við Skólavörðustíg.
Valdimar ólst upp við
fátækt og einangrun ís-
lenska bændasamfélags-
ins. Þrátt fyrir berklaveiki
tókst honum að brjótast til
mennta; hann var kennari
og blaðamaður um skeið,
en haslaði sér síðar völl
sem bókaútgefandi. Andúð
hans á her og vopnuðu
valdi endurspeglast í stofn-
un og störfum Þjóðvarnar-
flokks íslands, en hann var
fyrsti formaður hans. Frá-
sögn Valdimars er í senn
kímin og trúverðug.
270 blaðsíður.
Forlagið
ISBN 9979-53-284-X
Verð: 3.880 kr.
54