Bókatíðindi - 01.12.1995, Qupperneq 68
Handbœkur
koma til móts við fólk sem
hefur lítinn tíma. En hún á
líka að geta orðið hvatning
til þess að taka sér tíma til
þess sem skiptir miklu máli
og má ekki sitja á hakanum
í hröðu framstreymi daga
sem eru hluti lífsins alls."
Orð dagsins úr Biblíunni
verður án efa kærkomin
lesning og uppflettibók
sem gott verður að leita til.
152 bladsíður.
Hörpuútgáfan
ISBISI 9979-50-066-2
Verð: 1.990 kr.
ORD KRISTS
Njörður P. Njarðvík
Oft vitna menn í orð Krists
í ræðu og riti. Jesús sagði
... En hvað sagði hann og
hvar í Biblíunni er orð hans
að finna? Hér er safnað
saman öllum ummælum
sem höfð eru eftir Kristi og
þau merkt ritningarstað
sínum. Til að auðvelda fólki
að kynna sér ummæli hans
um ólíkar hliðar mannlífs-
ins eða leita að tilteknum
orðum er efninu skipað
undir lykilorð sem raðað er
í stafrófsröð. Undir lykil-
orðinu „Barn" má t.d. lesa
hin fleygu orð „Leyfið
börnunum að koma til mín
..." en einnig orð sem
sjaldnar heyrast, svo sem
„Ekki sæmir að taka brauð
barnanna og kasta því fyrir
hundana." Orð Krists er
handhæg og fróðleg bók,
framsetningin aðgengileg
og efnið snertir alla sem
áhuga hafa á inntaki boð-
skapar Jesú Krists.
250 blaðsíður.
Iðunn
ISBN 9979-1-0283-7
Verð: 3.980 kr.
SJÖ-NÍI7
l'RKTTÁX
III\:K‘L ISUsMitKv.V
1 HAi.LL.viA Lli I.M..
SJÖ, NÍU, ÞRETTÁN
Ritstjóri: Símon Jón
Jóhannsson
í bókinni Sjö, níu, þrettán,
sem út kom fyrir tveimur
árum og hefur nú verið
endurprentuð, hefur verið
safnað saman á einn stað
fróðleik um hjátrú íslend-
inga. Efnið er sett fram á
lifandi hátt þannig að auð-
velt er að fletta upp í bók-
inni varðandi ólík atriði.
Hvers vegna er hættulegt
að ganga undir stiga? Af
hverju boðar svartur köttur
ógæfu? Hvað gerist ef
maður hellir niður salti?
Hvað veldur því að talan
þrettán er svona varasöm?
Svörin er að finna í bókinni
Sjö, níu, þrettán. Þetta er
einkar aðgengileg og
skemmtileg bók sem allir
hafa gaman af að lesa.
Notadrjúg bók á hverju
heimili!
269 blaðsíður.
Vaka-Helgafell hf.
ISBN 9979-2-0177-0
Verð: 2.980 kr.
SKOTVEIÐIBÓKIN
Ólafur E. Friðriksson
Glæsileg, vönduð og mjög
ítarleg alfræðibók um allt
sem viðkemur skotveiðum
og veiðidýrum, prýdd mikl-
um fjölda Ijósmynda og
skýringarteikninga. Hér er
sögð saga skotveiða og
skotvopna á íslandi frá
upphafi, fjallað um hagla-
byssur, veiðiriffla og skot-
færi, meðferð vopna, virð-
ingu fyrir náttúrunni og
veiðar og vísindi. Sagt er
frá öllum íslenskum veiði-
dýrum og fuglum, lífshátt-
um þeirra og atferli, veiði-
aðferðum og nytjum fyrr
og nú. Fjallað er um
útbúnað, klæðnað og
öryggi, notkun áttavita og
korta og annarra hjálpar-
tækja. Rætt er um veiði-
adBÓKAHORNIÐb
Laugavegi 100
101 Reykjavík
551-3939
hunda, eiginleika þeirra og
þjálfun og að lokum er
sérstakur kafli um meðferð
og verkun hvers kyns
víllibráðar. Höfundur hefur
unnið að bókinni árum
saman, viðað að sér geysi-
legum fróðleik um skot-
veiðar og veiðidýr og notið
aðstoðar fjölmargra sér-
fræðinga á öllum sviðum
sem lúta að skotveiði.
Skotveiðibókin er fyrsta
yfirlitsritið sem út kemur
um skotveiði á íslandi,
geysilega viðamikið og
vandað verk sem allir skot-
veiðimenn þurfa að eign-
ast.
600 blaðsíður.
Iðunn
ISBN 9979-1-0282-9
Verð: 18.800 kr.
SKYNDIHJÁLP
FYRIR ALLA
Þýðing: Björn Jónsson
Skyndihjálp fyrir alla er
einkar handhæg uppfletti-
bók með öllum nauðsyn-
legum upplýsingum um
hjálp í viðlögum. Hún er
gefin út í samráði við
Rauða Kross íslands. Texti
bókarinnar er hnitmiðaður
og leiðbeiningarnar settar
fram stig af stigi þannig að
auðvelt er að fara eftir
þeim. í bókinni eru um 500
skýringarmyndir og teikn-
ingar sem sýna hvernig á
að bregðast við hvers kyns
slysum. Skyndihjálp fyrir
alla er nauðsynleg hand-
bók fyrir heimili, vinnustaði
og í bílinn.
160 blaðsíður
Vaka-Helgafell hf.
ISBN 9979-2-0305-6
Verð: 1.990 kr.
STANGAVEIÐIÁRBÓKIN
1995
Guðmundur
Guðjónsson
Bók sem allir unnendur
stangaveiði þurfa að hafa
við hendina. Hvað var að
veiðast hvar sumarið 1995
í ám og vötnum landsins?
Aflatölur, samanburðar-
tölur og fréttir af því sem
mest bar á í stangaveiði-
heiminum. í bókinni er
sérstaklega rikulegur efnis-
kafli um silungsveiði. Einn-
ig er að finna veiðisögur úr
öllum landshlutum og
spáð er í horfur og ástand
veiða fyrir næsta ár. Bókin
inniheldur aö auki á annað
hundrað Ijósmyndir af
veiðimönnum alls staðar af
landinu. Ljósmyndir af
Eymundsson
]
68