Bókasafnið


Bókasafnið - 01.01.2003, Síða 32

Bókasafnið - 01.01.2003, Síða 32
árlega fund með félagsmönnum, kynna sjónarmið þeirra og koma þeim á framfæri við ráðamenn sveit- arfélaga og/eða fyrirtækja eða annarra er málin varða. 5. grein Félagsfundur skal haldinn einu sinni á ári að hausti, til skiptis hjá félagsmönnum. Heimilt er að boða til aukafunda ef sérstök ástæða þykir til. 6. grein Á fundi skulu fara fram aðalfundarstörf. Aðalfundur er boðaður bréflega með minnst tveggja vikna fyrirvara og er hann löglegur sé löglega til hans boðað. Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir: 1. Fundarsetning. 3. Kosning fundarstjóra og fundarritara. 4. Skýrsla stjórnar. 5. Verkefni komandi starfsárs rædd. 6. Afgreiðsla tillagna um lagabreytingar. 7. Kosning stjórnar og varamanns í stjórn. 8. Önnur mál. 7. grein Stjórn skal kosin til eins árs. Hana skipa þrír menn, formaður sem kosinn skal sérstaklega og tveir meðstjórnendur. Kjósa skal einn varamann í stjórn. 8. grein Lögum þessum verður einungis breytt á aðalfundi og þurfa 2/3 fundarmanna að samþykkja breyting- una. Kosið var í nýja stjórn félagsins og er hún sem hér segir: Guðrún Kristín Jóhannsdóttir formaður, Halla María Árnadóttir varamaður, Dagný Gísladóttir með- stjórnandi og Ingveldur Tryggvadóttir meðstjórnandi. Fleira var rætt á fundinum, svo sem um reglur um tölvupóst, tölvutengingu skjalavistunarkerfa við Hag- stofu (íbúaskrá), fyrirkomulag námskeiða fyrir starfs- fólk, frágang mála í skjalavistunarkerfum, sérlausnir fyrir sveitarfélög, nafngiftir mála, launamál og starfs- lýsingar. Starfssvið skjalastjóra Eins og fram hefur komið eru starfslýsingar af skorn- um skammti. Af þeim félagsmönnum sem tóku þátt í stofnun Lykils eru fjórir með starfslýsingu af ein- hverju tagi. Hér er samantekt sem gefur hugmynd um starfssvið skjalastjóra: • móttaka og skráning erinda • frágangur á skjalasafn og útlán þaðan • innleiðing skjalavistunarkerfis • gerð skjalalykils • gerð og viðhald geymsluáætlana • gerð og viðhald geymsluskrár • flokkun, grisjun og skráning gamalla skjala • umsjón námskeiða fýrir starfsmenn um notkun skjalavistunarkerfis • hönnun og þróun fundargerðarkerfis í GoPro • skipulagning og uppsetning skjalageymslna • stefnumótun í skjalamálum sveitarfélagsins • umsjón með gerð verklagsreglna • upplýsingagjöf til almennings, fyrirtækja og stofnana á grundvelli upplýsingalaga • útgáfa og öflun fræðsluefnis fyrir starfsmenn á sviði skjalamála Það hefur sýnt sig á þessum árum sem skjalastjórar hafa verið að þróa starf sitt innan sveitarfélaga, að umfang starfsins er meira en starfsmaður í einu stöðugildi kemst yfir. Aðspurðir segja skjalastjórar að það sem hefur komið þeim mest á óvart varðandi starfið, er hversu mikill tími fer í innleiðingu og um- sjón með skjalavistunarkerfi. Gömlu skjölin, gerð geymsluáætlana og geymsluskráa hafa í mörgum tilfellum setið á hakanum á meðan mest allur tími skjalastjórans fer í aðstoð við notendur skjalavistuna- rkerfisins, skráningu í kerfið, námskeiðshald og ekki síst vöktun á því að kerfið sé notað eins og til er ætlast. Reyndin er nefnilega sú, að fólk á oft mjög erfitt með að tileinka sér ný vinnubrögð. Skjalavistunarkerfin eru hópvinnukerfi, sem þýðir að skjölin eru opin og aðgengileg öðrum notendum kerfisins og það reynist mörgum erfitt að sætta sig við. Einnig er starfsfólk búið að koma sér upp „sínu kerfi" og það er oft ekki tilbúið að gefa það eftir. Það er því mikilvægt að í upphafi innleiðingar séu til verklagsreglur Hér er suo sannarlega þörf á skjalastjóm. 30 BÓKASAFNIÐ 27. ÁRG. 2003
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.