Bókasafnið - 01.01.2003, Síða 63
sögusafni íslands sem fjölmargir íslendingar nýta sér
á hverju ári - og sífellt bætist í sarpinn.
Framtíðarsýn safnsins
Þrátt fyrir manneklu og fjárskort mun Kvennasögu-
safn íslands leitast við að ná markmiðum sínum, ekki
aðeins hvað varðar söfnun, skráningu og varðveislu,
heldur ekki síður með útgáfu og miðlun þekkingar.
Stefna safnsins hefur verið sú að það yrði smám
saman miðstöð þeirra sem stunda kvennarannsóknir
þar sem hægt yrði að leita upplýsinga um vænlegar
heimildir, hvort sem þær væri að finna í safninu
sjálfu, á veraldarvefnum eða í öðrum söfnum. Að
mörgu leyti hefur þessi draumsýn stofnendanna
ræst. Árlega fjölgar fyrirspurnum og beiðnum um
aðstoð við heimildaleit. Það er von þeirra er standa
safninu næst að þessi þáttur eflist enn frekar með
framsetningu upplýsinga á heimasíðu safnsins, svo
og að safnið megni að standa fyrir blómlegu útgáfu-
starfi í framtíðinni.
Heimildir:
Fundagerðabœkur stjórnar Kvennasögusafns íslands.
Erla Hulda Halldórsdóttir (1997). „Anna Sigurðardóttir og
Kvennasögusafn íslands". í Ritmennt 2, 81-106.
Sigríður Th. Erlendsdóttir (2000). „Anna Sigurðardóttir". í
Anduara, nýr flokkur XLII, 125. ár, 11-68.
Summary
The Icelandic Library of Women’s History
The Library of Women’s History was founded in 1975 in the
home of Mrs. Anna Sigurðardóttir who had collected books,
articles and other material concerning Icelandic women’s
history for many years. Since 1994 the library has been run
as a special unit in the National Library of Iceland. The
library collects material concerning Icelandic women's
history, but it is also under the obligation of disseminating
information and publishing material concerning women's
history.The library aims at becoming the main information-
centre on Icelandic women’s history, and we feel that we are
well on our way to fulfilling that goal.
STÖNDUM VÖRÐ UM ÍSLENSKA TUNGU
MJÓLKURBÚ
FLÓAMANNA
BÓKASAFNIÐ 27. ÁRG. 2003
61