Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.2002, Page 9

Heima er bezt - 01.06.2002, Page 9
komið á fjórða dag frá því að ég veikt- ist. Ekkert var hægt að gera nema opna og setja í kera. Ég var talinn af í þrjá sólarhringa en þá fór ég að hjarna við. Þá var komið penisillín og var flogið með það sunnan úr Reykjavík og reynt á mér, fyrstum sjúklinga á Króknum. Það var Torfi Bjamason sem gerði þetta og hann hafði mig upp. Þarna lá ég á spítalanum fram að I Skaftholtsrétt í Gnúpverjahreppi. Réttin hrundi næstum algjörlega í jarðskjálftanum 17. júní 2000 en var síðan hlaðin upp. Jói kom að því verki á síðustu dögunum haustið 2000 og var þá lokið við að hlaða upp almenninginn en gert við dilkana til bráðabirgða. jólum og þegar ég kom heim um jólin var ég enn með opinn kviðinn. Svo fór ég aftur í febrúar út á Krók og þá var ég skorinn upp að nýju og tekin þessi drusla sem eftir var af botnlanganum. Þá var ég stutt og fékk ekki hita einu sinni. Síðan hefur mér varla orðið mis- dægurt og mig munar ekkert um það ennþá að vinna 10 tíma á dag ef svo ber undir. Frá Stapa Árið 1944 fómm við í Stapa. Ég keypti þá jörðina og foreldrar mínir fóm með mér þangað. Pabbi var far- inn að missa heilsu en hresstist þó nokkuð og fór í eitthvað í vegavinnu. Þama voru þau hjá mér í þrjú ár, en þá fluttu þau til Sauðárkróks og bjuggu þar eftir það. Jói ásamt Heiðmari Jónssyni við hleðslu á náðhúsinu hjá gömlu Þingborg sumarið 1999. Sér til samkomuhússins nýju Þingborgar. urn og klettaskeiðum. Þama er mikið mola- berg sem hefur lagst ofan á móberg sem blásið hefur burtu. Svo neðar er hart grágrýti og í þeim lögum er surtarbrandurinn. A Giljum vorum við þijú ár, fórum þaðan ofan í Árnes. Þar vor- um við í tvö ár. Þá var féð alltaf á vorin rekið fram í Hof. Svo eign- aðist pabbi Hvamm í Svartárdal. Ár- nes var selt þegar hann fór þaðan en hann treysti sér ekki til að kaupa. Þá fór hann fram í Hof og var þar eitt ár en keypti svo Hvamm. Þangað fór ég með honum 17 ára gamall árið 1941. Þama vomm við einungis í þijú ár og það voru erfið ár. Féð var hagvant fyrir norðan og brjálað í óyndi. Okkur líkaði hvor- ugum þarna þótt við hefðum ekkert nema gott af fólki og nágrönnum að segja. Á þessum árum fór mæði- veikin að herja og olli miklum vanda. Loks fór það svo að ég keypti Stapa tví- tugur að aldri árið 1944, var ekki einu sinni orðinn myndugur en pabbi skrif- aði upp á sem vitundarvottur svo að þetta var látið gott heita. Nærri dauður Alla tíð hef ég verið heilsugóður og varla orðið misdægurt utan einu sinni þegar ég var tvítugur, en þá var ég víst næstuin dauður. Þetta var fyrsta haust- ið sem ég var í Stapa og fór þá í göng- ur á Eyvindarstaðaheiði, var þá í Aust- flokki og rak féð niður í Mælifellsrétt og ég var orðinn veikur er við komum niður. Þar vakti ég samt um nóttina yfir fénu í girðingunni. Svo reið ég vestur í Stafnsrétt morguninn eftir og dró þar fé, var náttúrlega mikið veikur en dröslaðist með það austur í Mæli- fellsrétt og reið þaðan heim. Daginn Hesthús í Þjórsárholti, hlaðið af Jóa í Stapa. eftir treysti ég mér alls ekki til að fara og sækja féð vestur í Mælifellsrétt svo að pabbi fór. Svo þegar hann kemur heim með féð renna sumar kindumar fyrir stapann og útfyrir að austan. En í stað þess að ríðar sjálfur tyrir kindurn- ar þá gerði hann mér boð inn af fara fýrir þær. Þetta var reyndar orðin venja hjá honum. Ég varð óskaplega reiður og spratt upp og fór af stað og komst fýrir kindurnar og rak þær heim að húsum en þar hneig ég niður og komst ekki heim. Þá var læknirinn sóttur og hann fór með mig strax út á Krók. Þar var ég skorinn upp þegar í stað en þá var botnlanginn sprunginn og komin mikil lífhimnubólga. Þá var þetta Heima er bezt 249

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.