Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.2002, Page 31

Heima er bezt - 01.06.2002, Page 31
Vitinn á Dalatanga 1999. Fjöll sunnan Norðjjarðar í baksýn. milli skips og lands, því á þessum tíma voru Úlfsdalir ekki ennþá komnir í vegasamband við nágranna- sveitirnar. Menn unnu þarna hörðum höndum við að selflytja þung gashylki úr fjör- unni upp brattan sjávarbakka og sjálf lendingin var ekki kræsileg, grýtt fjara og klapparhorn. Það var greini- legt að þarna mátti ekki kula mikið svo að ófært yrði. Sjálf vitabygging- in var mikið erfiðis- og hættuverk, ekki hvað síst á eyjum og útskerjum. Kom sér þá vel að verkstjórinn væri Gamli vitinn á Dalatanga var reistur árið 1899fyrir atbeina Ottós Wathne. Hljóðviti og bústaður vitavarðar var reistur þar 1918. aðgætinn og útsjónarsamur stjórn- andi. Þannig mynduðust jafnvel þjóðsögur um suma þeirra, eins og til dæmis Sigurð Pétursson, sem var verkstjóri við vitabyggingar um ára- bil og þótti draumspakur maður, jafnvel forspár í betra lagi. Kunn er sagan af Sigurði og vinnu- hópi hans þegar vitinn á Selskeri í Húnaflóa var byggður sumarið 1947. I upphafi hafðist vinnuhópurinn við í timburskúr, sem festur var niður í klöppina með keðjum. Nokkurn tíma tók að steypa volduga undirstöðu vit- ans, þar sem iðulega brimar yfir skerið í óveðrum. Nokkuð var því liðið á sumarið þegar lokið var við að steypa upp hinn 13 metra háa vita- turn, og bjuggu mennirnir áfram í skúrnum þegar allt í einu gekk til norðanáttar með brælu og tók sjór að ýfast við skerið. Menn létu það þó ekki á sig fá og gengu til hvílu í skúrnum að venju, en um nóttina Heima er bezt 111

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.