Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.2002, Blaðsíða 37

Heima er bezt - 01.06.2002, Blaðsíða 37
Forsíðuviðtalið: Frjálsan breiðir faðminn mot, fjallaheiðið Uáa Framhald af bls. 253 Þangað kemur annar skólabróðir minn að austan úr Vopnafirði, hagyrð- ingur ágætur, og hann tekur að sér að verða tengiliður fyrir næsta mót sem var haldið á Hallormsstað. Þá kynn- umst við Hákoni Aðalsteinssyni. Hann mætir okkur við Skjöldólfsstaði og verður leiðsögumaður okkar um Hér- aðið. Ég hafði lýst því yfir að ég hefði hug á að koma þessum hagyrðinga- mótum á í öllum landsfjórðungum en hætta síðan. Þá var enn eftir Suður- landið og næsta ár var mótið haldið á Flúðum og effir það var kjörin lands- nefnd og þá jafnframt ákveðið að halda eitt mót í Reykjavík eða í Land- námi íngólfs. Þá kom til liðs Sigurður Sigurðsson dýralæknir. Þar með var ákveðið að stjómarmaður úr hverjum fjórðungi skyldi sjá um mótið á sínu svæði og kjósa sér menn til aðstoðar eftir þörfum. Ef hann hætti yrði hann að útvega menn í staðinn. Þetta hefur gengið eftir. Og hefúr aldrei fallið nið- ur ár. Nú erum við langt komnir með annan hring um landið. Sýnishorn af kveðskap Ávarpsvísa á fyrsta hagyrðingamót- inu á Hveravöllum: Bragsnillingum bjóðast völd, burt skal þvinga amann. Hejjum slyngir hér í kvöld hagyrðingagaman. Á Hagyrðingamóti í Sælingsdal: Dregst í bólið drengja val, dofnar máttur Ijóða. Siguryfir Sœlingsdal sumarnóttin góða. Ég var spurður að því hvers vegna ég væri að yrkja og svaraði svona: Egyrki því innri erþörfin. Á mig Ijóðadís kallar, árdegis oft við störfin og eins þegar deginum hallar. Eg heyri í huganum óma, hœrra en rúm og tími, viðfellda, viðkvœma hljóma sem verða að stuðlum og rími. Eftirfarandi vísa varð til í göngum fyrir norðan og hefúr orðið nokkuð kunn: Eigum leið um auðn og grjót, öldur, skeið ogfláa. Frjálsan breiðir faðminn mót Jjallaheiðið bláa. Einu sinni var talað um við mig hvað ég væri orðinn skjálfhentur: Hönd mín skelfur hrjúf og þreytt, hún fór snemma að verki. Oft var henni óvœgt beitt enda sjást þess merki. Á ferð um æskustöðvamar í Vestur- dal rifjuðust upp gömlu smalaslóðim- ar: Vindur svalar hnjúkum háu, hlíðin dala birtir sýn. Hér um bala og lautir lágu léttu smalasporin mín. Eina vísu man ég sem sýnishorn af þeim kveðskap sem ég var að banga við á æskuárunum. Tólf ára gamall gerði ég þessa. Ég hafði klifið upp á brúnina fyrir ofan þar sem ég var í hjásetunni og hlóð þar vörðu. Ég heyrði talað um að það væri siður að setja vísu í vörður og skrifaði þessa og setti í vörðuna og orti hana í orðastað vörðunnar. Vítt þó gjalli vindurinn og vonum halli að sinni, samt ég allan aldur minn el á fjallsbrúninni. Staka: Smyrsl og litir best fá bætt bros á ungu vífi og smáu orðin geta gœtt góða stöku lífi. Við að drekka vínin brennd veitist óskin fróma. Um mig seitlar unaðskennd út ífingurgóma. Að lokum eru tvö kvæði úr ljóða- syrpum Jóa frá Stapa er sýna vel ást hans til náttúrunnar og alls sem lifir. Jóa dreymdi að hann væri að yrkja kvæði. Þegar hann vaknaði mundi hann fyrra erindið og bætti síðan öðra við. Kvæðið nefnir hann Kyrrð: Friður faðmar bœinn, færistyfir nótt. Ut við svalann sæinn syngur aldan hljótt. Blöð í blómgum lundi bœra strengja gnótt. Við móðurbrjóst í blundi bamið hvílist rótt. Lágvœrt lindir hjala, logn eryfirsjó. Dreymir blóm á bala, blundar fugl í mó. Gengin sól að grœði, gyllir skýjató. Signir fold ogflæði friðsœl tign og ró. Seinna kvæðið nefnist Nótt: Landið reifast rökkurböndum, roða á hafið slœr. Inn til dala og út með ströndum andar mildur blær. Hljóðnar ysinn, söngfugl sefur, sveitin hvílist rótt. Hug minn sér að hjarta vefur hljóð og kyrrlát nótt. Þegar öll er æviganga andans gróa sár. Léttur, blíður blær á vanga beiskust þerrar tár. Þá er lokið hryggð og harmi og huga mínum rótt. Þrýsti ég höfði að þínum barmi þögla, kyrra nótt. Heima er bezt 277

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.