Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.2002, Page 38

Heima er bezt - 01.06.2002, Page 38
Jón R. Hjálmarsson: DARWIN OG ÞRÓUNARKENNINGIN cy I Biblíunni er frá því sagt að guð t hafi skapað himin og jörð og allar ^L^lifandi skepnur á sex dögum og ^^^^þar á meðal manninn og það meira að segja í sinni mynd. Eftir þetta af- rek hvíldi guð sig hinn sjöunda dag og lái honum það enginn. Þessari frásögn í fyrstu Móse-bók trúðu menn um aldir og tóku sem algild sannindi og sumir gera það jafnvel enn í dag. Snemma fóru þó einhveijir vísindamenn og hugsuðir að efast um að allur sannleikur væri í Biblíunni fólginn og bentu á að líf- verur hefði þróast og breyst meó ýmsum hætti í aldanna rás. En allar slíkar kenningar voru þó mjög á reiki þar til enski náttúru- fræðingurinn Charles Darwin setti fram þróunarkenninguna í bók sem út kom árið 1859 og olli miklu fjaðrafoki. í bókinni sem hét fullu nafni: Um uppruna tegundanna samkvæmt úrvali náttúrunnar, er því haldið fram að allar lífverur jaróar hafi þróast frá öórum ófull- komnari og að allar lífverur hafi stöðugt þurft að heyja bar- áttu fyrir tilveru sinni. Þær lífverur sem ekki reyndust þess megnugar að yfirstíga erfiðleika og laga sig að breyttum að- stæðum hafi lotið í lægra haldi og dáið út, en hinar þrótt- meiri hafi sótt fram, lagað sig að nýju umhverfi, tileinkað sér nýja eiginleika í samræmi við knýjandi nauðsyn og lifað af. Þróunarkenningin olli að vonum muklu uppnámi á sínum tíma, því að hún kollvarpaði viðteknum trúarsetningum kristinna manna. Samkvæmt þessari kenningu var festa og stöðugleiki sköpunarverksins ekki lengur til, heldur var allt í mótun og þróun og hvergi fast land undir fótum. Það var því engin furða þótt rót kæmist á hugi manna við svo bylt- ingarkenndan boðskap og margir snerust því í fyrstu önd- verðir gegn þróunarkenningunni og höfundi hennar. En þrátt fyrir mótmæli og andúð margra á þessum boðskap Darwins, þá hefur þró- unarkenningin haldið velli sern vísindaleg og algild sannindi sem fáir mótmæla. Höfundur þessarar kenningar, Charles Darwin, var enskur og fæddur árið 1809. Faðir hans var læknir og var ætlunin að sonurinn fetaði í fótspor hans. En þá kom brátt í ljós að þessi ungi maður var svo yf- irmáta viðkvæmur að hann þoldi ekki að taka þátt í krufningum og öðru svipuðu sem þessu námi fylgdi og gafst því brátt upp við læknisfræðina. Vissi hann þá ekki hvað hann skyldi taka sér fyrir hendur, en fyrir áeggjan foreldra sinna hóf hann nám I guðfræði í Cambridge í því skyni að verða síðar prestur. En varla fylgdi mikill hugur máli, því að guðfræðin vildi sitja á hakanum, en í staðinn undi pilturinn sér best við athuganir og söfnun sýn- ishoma úti í náttúrunni. Sakir áhugaleysis þótti brátt sýnt að hann mundi aldrei verða prestur. Olli þetta föður hans mikl- um vonbrigðum og á hann að hafa látið þau orð falla að drengurinn væri ætt sinni bæði til skammar og skapraunar. Einn af prófessorum hans í Cambridge var á öðm máli og mat mikils áhuga Darwins á grasafræði og dýrafræði. Atti þessi góði kennari þátt í að útvega honum starf við hæfi eft- ir að vandamenn hans höfðu samþykkt að hann hætti við guðfræðina. Og starfið var að Darwin réðst sem náttúru- fræðingur á herskipið Beagle sem var að leggja upp í fimm ára vísindaleiðangur til Suðurhafa árið 1831. Var þetta ein- stakt tækifæri fyrir áhugasaman náttúruskoðara og notaði Darwin tímann vel til að kanna jurta- og dýralíf og safna sýnishornum úr öllum áttum og skrá athuganir sínar ná- kvæmlega í dagbækur. Verkefni leiðangursins var einkum að rannsaka lítt könnuð hafsvæði og eyjar sunnan miðbaugs og þar á meðal Galapagoseyjar, þar sem var að finna mjög * Charles Darwin 278 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.