Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2004, Blaðsíða 15

Heima er bezt - 01.12.2004, Blaðsíða 15
svona aðeins að leika sér, hvað um það? Það er allt betra en að vera einstœð móðir vegna þess að þá er hœgt að koma allavega fram við mann, og stundum hugsa ég sjálfþegar ég er orðin alveg rugluð, að ég hefði kannski átt að láta mig hafa það að halda í hann. Þá vœrum við þó tvö um að borga reikningana, en auðvitað vildi ég skilja við hann um leið og ég vissi af nýrri dö/nu í hverjum mánuði! Helvítis auminginn, og ég ófrísk af seinna barninu, þegar ég rak hann út. Svo missti ég íbúðina, gat ekki borgað leiguna frekar en aðrir og fékk að flytja heim til mömmu og pabba, sem er ömurlegt, þau láta mig sko finna að það er upp á þeirra náð og miskunn hvort við lifum eða deyjum í þessari kjallaraholu þeirra. Jjæja þau eru þó sjálf á efri hæðinni. Eg hef svo lítið handanna á milli að ef annað barnið þarf að fá meðul, þá eigum við ekki jyrir mat út mánuðinn og ég með þessa finu menntun! Þá erum við upp á miskunn einhvers komin, annað hvort félagsmálastofnunar eða mömmu og pabba. Svo fór ég á aðventukvöld með þessi tvö litlu yndislegu kríli, drengurinn er að verða tveggja ára og stúlkan mín orðin fögurra. Við vorum svo ánægð og fin, ég gat bjargað fötum á okkur öll fyrir horn, systir mín gaf mér lítið notaðan kjól og kápu af sér, svartan kjól, rauða kápu, ég skal elska hana til eilífðar Jyrir það. Eg breytti gömlum buxum í sparibuxur á þann litla, vinkona mín gafmér jakka á hann, sem er nœstum jafnsvartur og buxurnar og heldurðu ekki bara að amma hans og afi hafi sent honum tímanlega jólagjöf skyrtu og slaufu og jólaskó, sem reyndar eru of stórir en ég treð í tærnar. Hann er svo fallegur í þessu að hjartað mitt hoppar Linda! Stúlkan fékk rauðan og hvítan kjól í sama pakka og sokkabuxur með, en ég gat ekki keypt á hana skó þannig að ég reyndi að pússa hversdagsskóna eins vel og ég gat og saumaði á hana kápu úr lélegu efni en hun er eins og prinsessa, dansar út um allt af gleöi. Við höfum ekki verið svona fin síðan ég hœtti að vera kona áföstu og varð einstæð móðir. Þannig að ég ákvað að jára með þau á aðventukvöldið. Það var yndislegt, þau sátu eins og englar og hlustuðu á tónlistina og sönginn og prestana. Eg hugsaði þegar ég sá barnakórinn: Eg skal sko koma mínum börnum í eitthvað svona! Þegar við stóðum utan við kirkjuna og horfðum í kringum okkur á eftir, vatt sér að mér gömul kona, heldur afundin: „ Sjá nú þetta, örsmár drengur í jakkafötum! Ekki voru nú börnin svona jint klædd þegar ég var að alast upp. Eg veit ekki hvað verður úr þessum nútímabörnum sem alast upp i óhófi og svo miklum allsnægtum að þau halda að peningarnir komi bara upp úr skítnum á götunum ”. Svo jesúsaði hún sig yfir börnunum mínum og mér, börnin skildu sem betur fer ekki neitt og brostu bara til ókunnu konunnar en ég var illa slegin. Veistu Linda, að ég er eiginlega komin með ofnæmi fyrir öllu þessu fólki sem er að tala um óhófið, neysluna og allt dótið sem allir eiga? Þjóðfélagið er búið að breytast svo mikið á ekki mörgum árum, eins og við vitum báðar, og í dag eru börnin annars jlokks hjá skólafélögunum og í samfélaginu ef þau eiga ekkert og mega ekkert. Það gerist strax við skólaaldur og ég hugsa til þess með hryllingi ef aðstœður mínar verða eitthvað svipaðar því sem þœr eru núna! Þá get ég ekkert gert fyrir þau og þau verða útskúfuð og alast upp með vanmetakennd í hjartanu og það vil ég ekki. Linda hvað á ég að gera? Þú ert alltaf svo ráðagóð, gerðu það, segðu mér hvernig ég á að breyta lífinu? Neyða lífið til þess að breytast mér í hag, allavega börnunum mínum í hag! Svo hittir maður gamla konu sem segir manni að maður sé að hafa það alltof gott! I gamla daga var þjóðfélagið dálítið öðruvísi, ég skil það vel, en vá! Þá voru heldur ekki allir að reyna að teygja og toga í börnin okkar út og suður og halda að þeim hinu og þessu. Þá fékk fólk örlítinn frið með börnin sín. Kannski, kannski ekki, ég verð að gera svo vel að lifa í nútímanum, ég get ekki spólað til þess tíma sem „voru nú svona og svona þegar einhverjir aðrir voru að alast upp! ” O, guð, hvað ég sakna þess að vera stelpa í skóla, áhyggjulaus og manstu, hvað var frábœrt síðustu jólin? Þegar við sátum nokkur við kertaljós í herberginu þínu næstum alla nóttina og spjölluðum um framtíðina? Alla draumana okkar, sem við trúðum hvor-t öðru fyrir, við sjö? Sjömenningarnir frábœru, ég sakna ykkar hrœðilega. Elsku Linda hafðu samband. Þín vinkona Ella. Fyrir þremur árum fékk ég þetta bréf. Fyrir þremur árum gerði ég ekki neitt. Ég hef ekki hugmynd um hvernig Ella hefur það og hef ekki fengið jólakort frá henni síðan þetta bréf kom. Sem ég las og las og reyndi að gleyma þess á milli. Ég, hvað átti ég svo sem að gera í þessu? Ég hringdi ekki einu sinni í Ellu. Elsku Ella, sem var svo góð vinkona að við hin trúðum því nærri því að hún væri alvöruengill. Ég vissi hvar hin fimm bjuggu þó ég hitti þau aldrei nema á jólakortum. Vildi ég kannski ekki vita neitt um Ellu fyrst hún var í vandræðum? Ég er með hræðilegan sting í maganum og alltof mikinn hjartslátt, finn að tíminn, sem engu eirir, er líklega hlaupinn frá mér í þessu máli, en þessi sex jólakort ætla ég ekki að skrifa í þetta skiptið. Ég ætla að fara út í hlussusnjókomuna, finna fimm frækin í viðbót við mig og gera allt sem ég get fyrir hana Ellu vinkonu. Ég er þremur árum á eftir áætlun. Með kœrri jólakveðju til ykkar. Heima er bezt 543

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.