Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2004, Blaðsíða 35

Heima er bezt - 01.12.2004, Blaðsíða 35
Þarna í Grindavík munu hafa orðið til þessar vísur: Segl upp undin bera bát brims af sundi vöndu. Nú er lundin létt og kát, leggjum undan ströndu. Þar mun eyðast þunglyndið, þó að freyði boðinn; yfir breiða úthafið ákaft skeiðar gnoðin. Þó að freyði úfin unn, uns að leiðin þrýtur, samt skal greiða út seglin þunn, sjá hvað skeiðin flýtur. Sveinn sendi frá sér tvö ljóðakver meðan hann var lífs: Andstæður (1933) og Nýjar Andstæður (1935). Auk þess smáprent. Á aldarafmæli Sveins (1988) gaf Skuggsjá, Hafnarfirði, út fyrrgreindar bækur og þar að auki nokkurt safn úr handritum, sem ég varðveitti. Skrifaði ég inngang og yfirlit um ævi og skáldskap höfundar. Þessi bók mun fáanleg í Skjaldborg, Grensásvegi 14, Reykjavík. Að lokum langar mig til að birta hér inngang að And- stæðum: Mig að ríma margt ég bar mœttu ei hóli sálmar, af því Grímur aldrei var eða Bólu-Hjálmar. Eg vil segja algeng orð, en þó vanda rœðu. Lœrði ei að bera á borð breytta andans fæðu. Þótt mér velji skorinn skammt skáldafrœgð og auður, máski ég teljist maður samt, minnsta kosti dauður. Hugsun skœra hafa má, hlaupa á glœrum ísum, til að lœra tökin á tœkifærisvísum. Heiglum naumast henta má halda í tauma móðsins. Ljúfa drauma auka á undirstraumur Ijóðsins. Sem að hylla margir menn, má þó villu kalla, hörpustilling efli ég enn uppi á milli fjalla. Málfræðingur enginn er; öllu glingri fleygi. Tilfinning úr skiptum sker, skakkt hvort syng eða eigi. Margt ég kvað af munni fljótt, máls í vaðal glaður, ærið hraður orðs við gnótt, óheflaður maður. Kvað ég hnjóð og kerskimál, kvað um fróða presta. Kvað um glóð og kvað um stál, kvað um góða hesta. Oft til svanna kvœði kvað; kenndur glanni í brögum. Glöggt ei vann að gæta að guðs né manna lögum. Þó ei bjóði betri óð brags á góðu þingi, kannski fljóðin kinnarjóð klúru Ijóðin syngi. Líklega er síðasta vísan, sem Sveinn orti helsjúkur til konu sinnar, minnisstæðust, en hún er á þessa leið: Langa vegi haldið hef; hindrun slegið frá mér. Hingað teygja tókst mér skref til að deyja hjá þér. Sumir vilja hafa síðari hlutann þannig: Til þín dregist torveld skref til að deyja hjá þér. Sveinn sá það fyrir síðsumars 1944, að stutt mundi eftir af æviskeiðinu, og kvað: Framar nenni ei yrkja óð upp þó renni vorin. Nálgast senn mitt lokaljóð; lífs í fennir sporin. Sveinn frá Elivogum andaðist í sjúkrahúsi í Reykjavík, 2. júlí 1945. Dægurljóð Dægurljóðaunnendur, ekki svo fáir, að ég ætla. Jólamánuður er framundan og þarf þátturinn að bera þess einhver merki. Að vísu slæðist eitthvað með, sem ekki er beinlínis helgað þessari mestu hátíð ársins. Heima er bezt 563

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.