Heima er bezt - 01.12.2004, Blaðsíða 37
Þaðan svo ég þrammaði fús
í Þykkvabœ á jólum,
En aldrei skal ég inn í hús,
efþað er á hjólum.
Ég vona, að lesendum sé það ekki á móti skapi, þótt ég
láti guðsorð fljóta hér með. Svo er mál með vexti, að
þegar ég var kennari á Ólafsfiri fyrir meira en hálfri öld,
mæltist Snorri Sigfússon námstjóri til þess, að skóla-
dagurinn hæfist með eftirfarandi söng, sem og var fylgt
eftir komandi vetur:
Þér til dýrðar, drottinn hár,
dagsins störf vér byrjum morgunglaðir.
Ljúfi faðir, Ijóssins faðir,
blessa þau um öll vor ár,
Þú, sem votar þerrar brár,
þú sem léttir allar vorar kvaðir.
Til þín glaðir, góði faðir,
mænir sál við morgunsár.
(Guðmundur skólaskáld.)
Að lokum er átthagaljóðið. Ég var eitt sinn beðinn að
yrkja ljóð fyrir Stokkseyringafélagið í Reykjavík. Það er
þannig:
Hún Stokkseyri er öllum okkur kœr,
sem unum hér og dveljum henni fjær.
Sú byggö mun œtíð búa í okkar hug.
Að baki fjöll - við fætur víður sær.
Þóflyttum við af feðra- og mæðraslóð,
ei fölskvast lét þó vináttunnar glóð.
Við eigum saman okkar heimareit,
og ávallt metum hann sem dýran sjóð.
Við komum saman, kætumst sveinn og snót,
við komum enn á Stokkseyringamót,
því ennþá hópinn allvel höldum við,
þótt æði tímans hrönn og lífsins rót.
Þá er ekki annað eftir en að þakka ykkur samfylgdina,
lesendur góðir, og óska gleðilegra jóla og farsæls nýs árs.
Lifið heil.
Auðunn Bragi Sveinsson,
Hjarðarhaga 28, 107 Reykjavík.
Netfang: audbras@simnetis
Matarkistan
Pottréttur í morgunverð
12 sneiðar af smurðu brauði,
6egg
3 bollar af mjólk
1 teskeið salt
sletta af cayenn pipar
225 gr. Cheddar ostur, rifinn
1 bolli niðursneidd skinka eða brytjað beikon
Hrærið saman eggjum, mjólk, salti og pipar. Skerið
skorpuna frá brauðinu og smyrjið það með smjöri eða
smjörlíki. Smyrjið innan lítinn pott og setjið sex brauð-
sneiðar i hann, þannig að smurða hliðin snúi niður.
Setjið ofan á brauðið skinku eða beikon og helminginn
af rifna ostinum. Setjið restina af brauðinu ofan á,
þannig að smurða hliðin snúi upp. Hellið síðan yfir
þetta mjólkur- og eggjablöndunni. Stráið ostinum sem
eftir er, ofan á. Kælið í ísskáp yfir nótt (u.þ.b. 8 klst.).
Látið síðan ná stofuhita aftur og bakið við 350° í 30 til
40 mínútur, þar til rétturinn er orðinn ljósbrúnn, mjúkur
og hefur drukkið vökvann í sig. Nægir handa 6.
• • •
Engifer gulrætur
1 kíló gulrætur
2 matskeiðar af smjöri
1/3 bolli sýróp
1 matskeið engifer
2 teskeiðar hvítur pipar,
2 teskeiðar salt.
Sósa: bræðið smjörið, og bætið því sem eftir er út í og
hrærið saman.
Hellið sósunni yfir gulrætumar og hrærið. Bakið við
350° í 20-30 mínútur.
Heima er bezt 565