Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2004, Blaðsíða 30

Heima er bezt - 01.12.2004, Blaðsíða 30
Skymaster DC-4. Ævmtyrafer me 3 J3ofí[eic)um 194S I októberblaði Berlingske Tidende í Kaupmannahöfn árið 1948, birtist þriggja dálka myndskreytt frásögn og viðtal við hjónin Önnu Guðmundsdóttur og Gunnlaug Kristjánsson í Lambanesi í Fljótum, er voru á ferðalagi í Kaupmannahöfn um þœr mundir. Tilefni þessarar ferðar var að þau hjón brugðu sér af bœ suður til Reykjavíkur að loknum haust- verkum. Þar hittu þau góða vini, flugmennina og stjórnendur Loftleiða, þá Alfreð Elíasson og Kristinn Olsen, en þeir höfðu haft bœkistöð fyrir sjóflugvélar Loftleiða í landi Lambaness undanfarin fimm sumur, 1944-48, vegna síldarleitar fyrir Norðurlandi. Er ekki að orðlengja það að vinátta hafði tekist með hjónunum og Loftleiðamönnunum, sem nutu margvíslegrar aðhlynningar í Lambanesi á þessum tíma. Forráðamenn Loftleiða höfðu lengi ætlað að launa Lambanesfólkinu þessa vinsemd og þarna kom tœkifœrið: „ Viljið þið ekki skreppa til Kaupmannahafnar á morgun og koma aftur til Reykjavíkur nœsta dag? “ Eins og nærri má geta var þetta rausnarboð þegið með þökkum. Hjónin fóru til Kaupmanna- hafnar eins og þau stóðu. Þetta átti ekki að vera nema rösklega sólarhringsferð. En það fór á annan veg. Þegar lent var á Kastrupflugvelli kom í ljós bilun í flugvélinni. Hún þurfti viðgerðar við og Lambaneshjónunum var fengin gisting á góðu hóteli í Kaupmanna- höfn. Brátt kom í ljós að nokkurn tíma tæki að gera við flugvélina, en Guðmundur Sœmundsson: þau hjónin vildu gjarnan komast fljótlega heim aftur. Þótti því ráð- legast að þau færu til Parísar og það- an til Reykjavíkur með annarri ís- lenskri flugvél. Þetta gekk eftir. En þau komu nokkrum mínútum of seint á flugvöllinn við París, þegar sú flug- vél hélt heimleiðis. Fyrir vikið fengu þau að sjá ofurlítið af yfirbragði þessarar frægu heimsborgar, sem París er. En síðan héldu þau aftur til Kaupmannahafnar, þar sem þau voru um tíma á Hótel Cosmopolitan. Þegar þau Anna og Gunnlaugur komu úr Parísarferðinni, átti blaða- maður frá Berlingske Tiðdende tal við þau og naut þar milligöngu íslenskrar ffugfreyju frá félaginu. „Þetta hefur verið hreinasta ævin- týri”, sagði Gunnlaugur við blaða- manninn, „og við munum lifa á minningunum, það sem eftir er ævinnar. Við höfum aldrei fyrr glaðst yfir því að flugvélarmótor skyldi bila. Við ætluðum að vera hér einn dag, en höfum nú verið átta og höfum auk þess fengið að sjá Parísarborg. Fólk trúir okkur varla þegar við komum heim og segjum frá því sem fyrir okkur hefur borið. En við höfum keypt nokkur póstkort, sem geta sannað sögu okkar.” „Hvort leist ykkur betur á París 558 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.