Heima er bezt


Heima er bezt - 02.01.2007, Blaðsíða 13

Heima er bezt - 02.01.2007, Blaðsíða 13
Nytsemi íslenskra jurta Arið 1880 kom ut í Reykjavík Iítið kver sem bar heitið „Lítil ritgjörð um nytsemi nokkura íslenskra jurta “. Bókin er sögð „ eptirýmsa höfunda ", en efni hennar safnaði Jón Jónsson garðyrkjumaður og bókin er prentuð hjá Einari Þórðarsyni prentara og á kostnað hans. „ Kostar innhept í kápu 42 aura “, er skráð í bókarlok. Þessi forvitnilega bók var svo endurprentuð með upphaflegri stafsetningu árið 1990, og voru útgefendur Svanhildur Asgeirsdóttir og Anna S. Gunnarsdóttir. Þarna er margt forvitnilegt að sjá, sem vissulega á erindi íþjóðlegt heimilisrit, og skal aðeins fátt tilgreint, og fremst talið þjóðarblómið, holtasóley: Örnólfur r Thorlacius rT Rjúpnalauf (Blómstrar í ágúst) Jurt þessi barkar og styrkir, hún er því brúkuð við lífsýki og blóð- sótt. Af seyði blað- anna skal taka inn 2 matspæni í senn, 4 sinnum á dag. Blöð jurtarinnar, með blóðbjörg og vallhumli, er gott og heilnæmt te. Það styrkir mag- ann og brjóstið. Barkandi, aó barka = mynda húð. Lífsýki = niðnrgangur. [Orðskýringar eru allar frá ritstjórum útgáfunnar 1990.] Hvönn (Blómstrar I júlí). Jurtin styrkir, eyðir vindi, drepur orma, leysir upp og stendur á móti rotnun, en hreins- ar blóðið; hún er því góð móti matarólyst, vindi í þörm- um, innantöku, gulu, hósta, skyrbjúgi, stöðnuðu tíðablóði, og er holl í drepsótt- um. Fræið smásteitt brúkast til dropa, sem em þannig búnir til, að menn taka hvannafræ marið og steitt 2 lóð, 8 lóð af sterkasta brennivíni og láta á flösku, sem standi við yl í viku, vel töppuð. Af því skal svo taka hálft spónblað í senn 4 sinnum á dag; af rótinni má búa til seyði og dropa: til seyðisins á að taka 2 lóð af rótinni, móti 8 eða 12 af vatni og sjóða litla stund í lokuðum katli, og láta það standa á katlinum þangað til það er kalt, síast hið þunna frá. Af seyð- inu á að taka 2 matspæni annan hvem klukkutíma; í dropana skal taka 4 lóð af rótinni smátt skorinni, móti 8 lóðum af brennivíni, síðan er það búið til á sama hátt og brúkað eins og dropamir af fræinu. Það er haldið besta meðal, að tyggja þurrkaða hvannarrót, þegar næmar sóttir ganga. Til manneldis má rótina brúka, og er hún munntöm fæða með fiski og nýju smjöri; hún er og bezta sælgæti bituð og sáldmð með sykri. Lóð = 20 grömm. Kúmen (Blómstrar í júní ogjúlí). Þessijurt og eink- um fræ henn- ar leysir upp og eyðir vindi, það eykur mjólk í konubrjóstum, og er gott gegn gulu, lifrarbólgu og óstyrk í maganum. Te af fræinu skal drekka svo tebollum skipti. Dropa má tilbúa af fræinu á þennan hátt: Taka skal steytt kúmenfræ 4 lóð, 12 lóð af sterkasta brennivíni og láta standa í 4 daga, síðan á að sía hið þunna frá og geyma á flösku: taka svo af því hálft spónblað í senn þrisvar á dag. Sje fræið blandað mjöli gefur það brauði og súpu þægilegan smekk. Arfi (Blómstrar allt sumarið). Jurt þessi kælir, mýkir og græðir. Arfaseyði mýkir bólgu og þrota, ef 12 Heima er bezt arfinn er nýr heittur í potti, þá gjörir hann sömu verkun. Nýtek- inn kaldur arfi, sje hann lagður við hör- und, stillir og kælir hita, verk og bólgu, grautur úr arfa gjör- ir vel út meinsemdir. Seyði úr nýjum arfa, sje dmkkinn af því 1 peli í senn, mýkir vallgang og eyðir iðrabólgu, það græðir enn fremur sár í lungum og örvar matarlyst; ef lögur hans er borinn á augu, tekur hann slím af þeim. Arfafræ er gott fóður fyrir hænsn á vetmm; líka má hafa það til brauð- gjörðar með mjöli. Vatlgangur = hægðir. Sóldögg (Blómstrar íjúlí). Sje jurt þessi soðin í mjólk, má taka burt með henni freknur, ef húðin er þvegin úr henni; sje jurtinni nýrri núið á hring- orma eyðir hún þeim. Heimilisnjóli, fardagakál (Blómstar í júlí). Jurt þessi bark- ar, dregur saman og styrkir, leið- ir vallgang, leysir upp þykkva vessa, hreinsar blóðið og er góð við rotnun; hún er því brúkuð móti lífsýki, blóðsótt, gulu, harðlífi, liff- arbólgu, vatnssýki, kláðaútbrotum, skyrbjúgi og holdsveiki. Af blöðunum nýjum má búa til seyði; skal svo drekka af því 1 tebolla þrisvar á dag. Ur seyði þessu er gott að þvo alls konar útbrot á hörundi. Sje fræið þurrkað og búið til seyði af því þá á að taka af því 2 matspæni í senn 4 sinnum á dag. Af dupti rótarinnar á að brúka svo sem 1 teskeið fulla þriðja hvem tíma. Af seyði rótarinnar er hreinsunarmeð- al búið til þannig: Af rótarseyðinu em teknir 1 eða 2 pelar, af hvítu smásteyttu salti 1 lóð; síðan á að leysa upp saltið í seyðinu volgu, og er það þá tekið inn á fastandi maga. Smyrsli móti kláða og útbrotum má búa til þannig: Maður tekur 5 lóð af dupti rótarinnar, 1 lóð af smásteyttum brennisteini, ósaltað vel hreint nýtt smjör, sem sje brætt 10 lóð, og svo á að blanda og hræra þetta vel saman. Blöð og rót jurtarinnar, soðin með vatni og álúni, gefa gulan lit, sem verður enn fegri, sje því undir eins á eptir dyfið í staðið þvag. Til þess á að taka af blöðunum smáskomum 4 til 6 hnefa, 2 lóð af álúni, 2 potta vatns og 1 mörk af þvagi, og sjóða í því það sem lita á gult, til þess vel er tekið á það. Blöð jurtarinnar er hollasta grænmeti í súpum og grautum, ekki einungis fyrir hrausta og heilbrigða, heldur einnig fyrir veika, sem ekki þola annan mat. Alún = tvísalt, t. d. afkalíumsúlfati, notað til litunar. Vatnssýki = bjúgur. Aðalbláber (Blómstra í júní). Ber, blöð og rót þessarar jurtar, kæla, barka og vama rotnun, þau em því góð móti lífsýki, köldu og skyrbjúgi, líka til að þurrka upp skarpa vessa úr slæmum kaunum. Blöðin á að taka í júní, en berin í september öndverðum, þegar þau eru fullvaxin. Af seyði úr berjum hennar skal taka 2 matspæni í senn ann- anhvem klukkutíma. Dupti af rótinni er gott að strá i holdfúa sár: af berjunum má búa til mauk, með því að merja þau, og blanda þau síðan með sykri og hunangi, og geyma. 1 matspónn af mauki þessu, blandaður með 1 pela vatns, er drykk- ur í landfarsóttum, við hita og þorsta. Sjeu berin marin og látin í járnílát, en síðan sett við yl, súma þau og verða að dökkum legi, sem barkar vel skinn, sjeu þau lögð í hann ásamt nokkm af álúni. Sjeu berin nýsoðin með álúni, lita þau fjólublátt eða lifrautt, einkum lín og ull; ef farið er á sama hátt með blöðin, lita þau gult. Jóna labbaði út í búð, hitti grannkonu sína fyrir utan, þar sem hún stóð og hélt í hundinn sinn. Þá segir grannkonan: „Það var gott að þú komst, þú getur þá haldið í hundinn fyrir mig. Ég get ekki farið með hann inn í búðina því hann flaðarar alltaf upp um afgreiðslustúlk- umar.“ „Nei, hvað segirðu“, segir Jóna, „þetta gerir tengdasonur minn líka.“ Leiðréttingar: I nóvemberhefti síðasta árs misrit- aðist nafn umræddrar kirkju í tveim myndatextum á bls. 531, en hún heit- ir Þingeyrakirkja. Þar var einu „r-i“ ofaukið. Sú misritun varð í fyrirsögn á viðtali í desemberhefti blaðsins, við Elísa- betu Jónsdóttur, að hún var sögð frá Reykjavík, en hið rétta er að hún er frá Seltjamarnesi, eins og fram kemur í viðtalinu. Á bls. 578 hafði einnig misritast götuheitið Nörre Farimagsgade. I ársyfirliti blaðsins í desemberheft- inu féll út einn efnisliður I upptalningu þátta eftir Auöun Braga Sveinsson, en þar vantaði að telja með viðtal hans við Guðmund Guðmundsson og Önnu Friðriksdóttur, í septemberhefti blaðs- ins. Rétt væri að þeir sem geyma árs- yfirlitið bæti því inn á yfirlit sín. Árið 2001 var gefið út efnisyfirlit blaðsins í heild frá 1951 til þess árs, og er í bígerð að halda því áfram þar sem frá var horfið, og verður efnisliðurinn þá kominn á sinn rétta stað þar. Biðjum við hlutaðeigendur velvirð- ingar á þessum misritunum. Heima er bezt 13

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.