Heima er bezt - 02.01.2007, Síða 21
o
Jíjk?P=&3l
10
♦mmR li
a «■ ,-*eri
í*.*
***
5m
: 4 ^
*5 , *.
4 «, «
4j
'5
*
•♦♦♦ s * : t l V V;:; 1 ♦ * ▼
«4 4 *% ♦ 1 - ♦ ^DÍ +4 4 ♦ ♦ l { L* * z
W mjm mím*
8
aji*
Klondike
Gamlir spilakaplar
Kína kapall
Þessi kapall krefst töluverðar leikni og
margt þarf að athuga vel þegar spilin
eru færð til.
Spilin eru lögð upp í tjórar raðir,
þrettán spil í hverja röð.
Asamir em síðan teknir úr og látn-
ir við vinstri endann á röðunum, einn
við hverja.
Auðu sætin, sem þannig myndast,
má aðeins fylla með því að setja spil í
sama lit og einu hærra en spilið, sem er
til vinstri við auða sætið. Ef við tökum
ás og spilið til vinstri við ásinn var tíg-
ulfjarki, getum við aðeins sett tígul fimm
í skarðið. Næst ásunum má aðeins setja
tvist í sama lit. Aður en fyllt er í skarð,
er ráðlegt að athuga hvaða afleiðing-
ar það hefúr, því þegar fyllt er í eitt
skarð, myndast jafnharðan önnur. Ef
kóngur er til hægri við autt pláss, er
það pláss gagnslaust þar til hægt er að
færa kónginn.
Þegar svo er komið, að öll auðu sætin
eru til hægri við kóngana, em spilin
tekin, nema þau, sem em í réttri röð á
eftir ásunum.
Þau em stokkuð og lögð aftur niður
svo þrettán spil verði í röð og autt bil
haft á eftir síðasta spili, sem er í réttri
röð frá ás.
Þannig má aðeins fara tvisvar að, og
ef spilin em þá ekki öll komin í réttar
raðir, hefur kapallinn ekki tekist.
Auðveldi kapallinn
Þessi kapall er einstakur í sinni röð.
Hann á sem sé ævinlega að ganga upp,
enda máski hæpið að telja þetta kapal,
það er frekar spilaþraut.
Tekin eru níu spil í einhverjum lit, öll
í röð, t. d. 2-10, og gefin í þrjá staði:
A B C
9 5 2
3 4 6
8 7 10
Vandinn er nú að færa spilin til eftir
ákveðnum reglum, þangað til þau eru
komin öll í eina röð, tían efst og svo
áfram niður með tvist neðst. Hreyfa
má aðeins eitt spil í einu, neðsta spilið
í einhverri röðinni, og það má aðeins
láta það fyrir neðan spil, sem er lægra
en það sjálft. I þessu dæmi má láta 7
neðan við 8 eða 10, en 8 aðeins neðan
við 10, sem ekki er hægt að hreyfa að
svo stöddu.
Þegar öll spilin úr einni röðinni hafa
verið flutt burt, má láta neðsta spilið úr
annarri hvorri hinna í auða sætið. Til
þess að leysa þessa þraut þarf að byrja
á því að koma 10 í autt sæti.
Færið 7 í röð A neðan við 8, 4 í C, 5
í A, 4 í A, látið síðan 10 í auða sætið B.
Næst er að fá 8 efst og öll lægri spilin
í röð neðan við hana, svo 9 verði laus
og hana megi setja neðan við 10.
Þó að þetta virðist ofur einfalt fljótt
á litið, er þó enn auðveldara að lenda
í ógöngum. Margir, sem þetta reyna í
fyrsta sinn, geta t. d. komið 10 efst auð-
veldlega, og færa síðan spilin fram og
aftur, án þess nokkuð gangi né reki, tím-
unum saman. Mönnum hættir nefnilega
sérstaklega til að fara einlægar hring-
ferðir með spilin, og sjá eftir langan
tíma og miklar tilfærslur sömu stöðu
og þeir höfðu löngu áður.
Ellefu kapall
Fyrst er gefíð í þrjá staði, þrjú spil í
hvem stað:
í* ♦ ♦ ;♦ ♦i ♦ +* ♦ +*
♦ /Jn
* * * * a 17
♦♦ ♦♦ •♦ ♦t r* t r* *♦ i* i •* *•
74K39DG 2 6
Ef tvö spil gera samanlagt ellefú er
gefíð spil í viðbót ofan á hvort þeirra.
í þessu dæmi má gefa spil ofan á 7 og
4, 9 og 2.
Mannspilin hafa ekki sérstakt tölu-
gildi, en ef uppi eru þrjú mannspil, sitt
af hverri tegund, þ. e. gosi, drottning
og kóngur, má gefa eitt spil ofan í hvert
Heima er bezt 21