Heima er bezt


Heima er bezt - 02.01.2007, Blaðsíða 33

Heima er bezt - 02.01.2007, Blaðsíða 33
Jóhannes Geir Gíslason, Skáleyjum: Bráðum vagga Að minni tilvísan var í „Kviðlingum og kvæðamálum“ „Heima er bezt“ 10. tölublaði 2006, kynntur Jón frá Skál- eyjum. Þar kom fram innan sviga, að í skáldatali er hann sagðurfæddur26.12. 1904 en rétt er 26.12. 1903, samkvæmt hans eiginhandarkvittun í afmælisdagbók. Með kynningunni birtist ljóð hans „Atthagaljóð", því miður með lítilsháttar villu, sem ég hefí beðið um leiðréttingu á. „Bráðum vagga bjartar nætur“ mun vera þekktasta söng- ljóð Jóns. Það hefur orðið heiminum svo hverfult, að ástæða er til að íjalla þar um. Breiðfírðingafélagið í Reykjavík var í bemsku um 1940. Heyrt hefí ég að á vegum þess hafi verið keppni eða áskorun um átthagaljóð og að Jón frá Ljárskógum hreppt þar heið- urssess með ljóðinu, hvar í er hin kunna vísa: ,,Þegar sumarsólin heið signir gróður jarðar, flýgur hugur heim á leið heim til Breiðafjarðar. “ Að Jón frá Skáleyjum hafi ort ljóð sitt „Bráðum vagga bjartar nætur“ af sama tilefni, hef ég líka heyrt. En í fyrsta tölublaði Breiðfírðings 1942 birtist það ljóð og var þá þrjú erindi. Síðan held ég að þegar farið var að syngja það við lagboðann „Góða tungl“, hafí komist hefð á að endurtaka fyrsta erindið aftan við hin. Þannig búið og enn meira breytt, birtist það síðar og lík- lega nokkmm sinnum, jafnan eitthvað breytt. Honurn þótti víst seint fullort 2. og 3. erindi. Fmmútgáfa í Breiðfirðingi 1942 hljóðar svo: Vísa til Breiðafjarðar Bráðum vagga bjartar nœtur blómi þínu föla jörð, flýgur lóa senn um sveitir senn er vor um Breiðafjörð. Hlustar bóndans bær í túni bláa morgna, kvöldin rjóð, meðan sœlir sunnanvindar syngja gömul hörpuljóð. Þar sem einsog gull í grasi gengin felast æskuspor, þar sem velli tærust titrar tíbrá dagsins, góða vor. Hlýtur ekki þetta „sem“ í næstsíðustu línu að vera prent- villa? Síðan hefur þetta verið „þar um velli“ og er skilj- anlegra. E.t.v. þótti Jóni þá loks fullort þegar hann gaf út 1. ljóða- bók sína, „I fölu grasi“, 1953: I þeirri mynd birti ég ljóðið hér: Bráðum vagga bjartar nætur blómi þínu föla jörð, flýgur lóa senn um sveitir, senn er vor um Breiðafjörð. Hlustar bær í björtu tuni bláa morgna, kvöldin rjóð, meðan sælir sunnanvindar syngja gömul hörpuljóð, og í mjúku grænu grasi geymir þögnin falin spor sérhvers barns, er tómlátt týndist tíbrá dags þíns, góða vor. Bráðum vagga bjartar nætur blómi þínu föla jörð, flýgur lóa senn um sveitir, senn er vor um Breiðafjörð. Einhvem tíma á ámnum milli 1942 og 1953 birtist ein- hvers staðar (ég veit ekki hvar) ein gerð enn af ljóðinu og fer tvennum sögum af hvemig er. Á fjölskyldu og ættingjamótum er það gjama notað svo: 2. Hlustar bær í björtu túni bláa morgna, kvöldin rjóð meðan svásir sunnanvindar syngja gömul hörpuljóð. Heimaerbezt 33

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.