Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.02.1973, Side 23
Vil í MR vesa,
ef einn skal ráða,
en rektor einn ráðríkr
vildi ei.
Úngr leiddisk kúr
ok inni at grauta,
heldur sem karl'
guði góða, Freyju
Bakkus blóta.
Heyrðir þú í Eystri skóla
hve hizig barðist
rektor enn hyggjandi'*
mót os inntaka.
Sá skal upp stjölu stúpa,
að ári liðnu
er ek enn framráðr
geisi í MR.
Upp skal mjöðdrykkja þá of hafið.
Okkar grið
skalt þú allra hafa,
rektor bági,
þú átt inni hér
fjörtíu og fimm
mælti Jón Gissura.
Þá þat kynndisk,
hvé sá rektor hafði
vel okkur gert.
Hans aldar
mun æ vesa
at góðu getit.
Arið 2072 verða liðin 100 ár síðan þetta
stórgóða kvæði var fyrst birt. Höfundur
þess skrifaði það f mikilli bræði yfir því
að honum var neitað um inngöngu í Mennta-
skólann í Reykjavfk, sem yfirskin að skól-
inn væri yfirfullur, það sannaðist lfka
seinna á skólaböllum að fleira var fullt.
Hann var ekki einn um það að vera neitað
um skólavist í þessari merku stofnun,
fjörtíu og fjórum var einnig neitað um
skólavist f MR. Það hefur verið haft á
orði á æðri stöðum að þar hefði "miklum
séníum" verið frá vísað.
Þessu fólki var síðan holað niður í réttan
og sléttan gagnfræðaskóla, til mikils ama
bæði fyrir kennara og nemendur.