Flug : tímarit um flugmál - 01.08.1949, Side 17
rj'LUGMÁL okkar íslendinga hafa vaxið svo ört
hin síðari ár, að slíks munu vart dærni annars
staðar í heiminum á svo skömmum tíma. Djörfung
og stórhugur, ásamt sívaxandi þörf og skilningi lands-
manna fyrir auknum flugsamgöngum, hafa haldizt
þar í hendur og skipað flugvélinni þann sess, að hún
má heita helzta samgöngutæki okkar í bæði innan-
lands og utanlands samgöngum.
Mikill fjöldi manna starfar að flugmálunum á einn
eða annan hátt, og nú þegar eigum við mjög álit-
legan hóp sérmenntaðra ungra manna, sem lokið
hafa námi erlendis á ýmsum sviðum flugmálanna,
enda er mikil þörf fyrir slíka menn hér á þessu nýja
atvinnusviði.
Eins og skiljanlegt er, þegar þess er gætt, hversu
ung flugmál okkar eru enn að árum og hversu ör
þróunin hefir verið og stórstíg, höfum við átt við
óvenjumikla byrjunarörðugleika að etja, sem aðrar
og reyndari þjóðir hafa löngu yfirstígið. Kemur þar
margt til greina, sem of langt mál yrði upp að telja,
en tilfinnanlegast hefir þetta komið í ljós í sambandi
við vinnuskilyrði öll, skipulagningu og yfirstjórn
ýmissa mála, ásamt mikilli vöntun á alls konar nauð-
synlegum tækjum og varahlutum, sem stafar m. a.
af fátækt og gjaldeyrisskorti. En auk alls þessa hefir
skortur á reynslu, og í sumum tilfellum kunnáttu,
valdið því, að okkur hefir reynzt nauðsynlegt að ráða
til okkar í lengri eða skemmri tíma erlenda kunn-
áttumenn okkur til leiðbeininga og tilsagnar við ýmis
vandamál.
Einn af þessum mönnum er Robert T. Wall, eftir-
litsmaður, sem starfar hér með loftferðaeftirliti ríkis-
ins til aðstoðar og leiðbeininga við skoðun og eftirlit
flugvéla og öryggistækja þeirra. Mr. Wall er brezkur
að þjóðerni og starfar hjá Air Registration Board í
London. Leitaði flugmálastjórnin hér hófanna hjá
A. R. B. með útvegun eftirlitsmanns flugvéla til að
koma þeim málum okkar í gott horf, og varð það úr,
að Mr. Wall var sendur hingað til að starfa með
loftferðaeftirlitinu um eins árs skeið. í sambandi við
störf hans hér á landi hefir FLUG átt stutt viðtal
við hann:
— Hvenær komuð þér til landsins og hversu lengi
búizt þér við að starfa hér?
„Ég kom hingað til lands snemma í marz síðast-
liðnum, og er ætlunin, að ég starfi hér með loftferða-
eftirliti ríkisins í eitt ár.“
— Mér skilst, að þér hafið áður dvalið í Afríku
við svipuð störf og hér, er það rétt?
„Já, A. R. B. sendi mig til Austur-Afríku árið 1946,
þar sem ég starfaði með loftferðaeftirlitinu þar á lík-
an hátt og hér í tvö og hálft ár skoðun og eftirliti
flugvéla."
— Getið þér sagt mér eitthvað af dvöl yðar þar?
„Ég kunni afar vel við mig í Afríku, og fólkið
þar reyndist mér mjög vel, sérstaklega samstarfsmenn
mínir. Var ég lengst af í Nairobi, sem er höfuðborg
Austur-Afríku, en starfaði auk þess nokkuð í Belgiska
FLUG - 15