Flug : tímarit um flugmál - 01.08.1949, Blaðsíða 51

Flug : tímarit um flugmál - 01.08.1949, Blaðsíða 51
Eyfiimörk, vaxin kaktustrjám, milli fjallanna í rikinu Oregon. fjallið og St. Helensfjall. En fegurst af þeim öllum var hið keilulaga Hood-fjall á vinstri hönd. Hjá The Dallas borginni er bugða á ánni. Borgin er fyrir sunnan hana og liggur í Oregon-ríki, en flug- völlurinn fyrir norðan og er hann í Washington-ríki. Strax eftir lendinguna fór Hinrik út úr vélinni, og studdi við annan vænginn í akstrinum að flugskýl- unum. Það gekk vel meðan við höfðum vindinn beint á móti okkur, en strax þegar við ætluðum að beygja þannig, að við höfðum hann á hlið, var ógerlegt að lialda áfrarn, og urðum við að bíða eftir hjálp að- stoðarmanna. Þeir konm á dráttarbíl og drógu þeir vélina, en við röðuðum okkur á vængina til að vama því að hún fyki. Okkur þótti óráðlegt að halda lengra þennan dag, tókum ferjuna yfir ána og fengum okkur gistingu í The Dallas. Á flugvellinum var okkur ráðlagt að fara ekki með- fram ströndinni eins og ráðgert var, heldur nokkurs konar „Fjallabaksveg". Lá sú leið milli Klettafjall- anna og Cascade-fjallanna. Voru lendingastaðir fleiri og veðuráttan betri þar. Meðfram ströndinni gat maður alltaf búizt við að lenda í þoku, og er það ekki beint gott, þegar langt er á milli vallanna. Þar að auki töldu þeir þessa „Fjallabaksleið“ tilbrevtinga- meiri og fallegri fyrir ferðafólk. Fyrsti spottinn var talsvert líkur íslandi. Þar vora grösugir hálsar og víða sauðfé á beit. Eftir þetta tók við háslétta, hálfgerð eyðimörk, en þar uxu tré, sem okkur þótti einkennileg. Lentum við í Redmond eftir 11/2 klst. og flugvallarstjórinn benti okkur á, að þar yxu tré, sem hvergi voru til í heimi nema í Landinu helga og þama. Við fórum að skoða þau, og sáum við, að þetta voru trén, sem við höfðum tekið eftir á leiðinni. Voru þau frekar lágvaxin, með safamiklum blöðum, likt og kaktus. Þegar við kom- um aftur á völlinn, var flugvallarstjórinn búinn að taka eftir fánanum íslenzka yfir sætinu og þekkti hann hann frá því hann var hér í stríðinu. Var hann sérstaklega almennilegur við okkur. Sagði hann okkur að skoða á leiðinni Crater Lake, og gerðum við það. Vatnið er í 8938 fetum og er það mikið sóttur ferða- mannastaður, enda með afbrigðum fallegt þar. Þetta var krókur fyrir okkur og aðallega var hann upp á við. Flugum við svo yfir Klamath Lake, sem reyndar líktist meira timburgólfi en vatni. Eru mikil skógar- högg á þessum slóðum, og er timbrinu fleytt á ánum, sem renna í þetta vatn. Þaðan fer það í hinar miklu sögunarmyllur í Klamath Falls, borgina, sem liggur við suðurenda vatnsins. Þar tókum við benzín og héldum strax áfram. Nú tók við íslenzkt landslag, gríðarmikið hraun og ógróið. Gat maður ímyndað sér, að maður væri að fljúga yfir nýja Hekluhraunið, en þetta hraun er runnið úr Mt. Shasta, sem teygir sig upp í 15000 fet beint fyrir framan okkur. Við höfðum góðan vind á eftir okkur, sem skap- aði mikið uppstreymi, eða haug á máli svifflug- rnanna. Það ýtti undir okkur og auðveldaði okkur að ná mikilli hæð, sem stytti okkur krókinn í kring- um fjallið. Komumst við í 11500 fet, og höfðum við ekki mikið á móti því, vegna þess að 45 mílur fram- undan lá Sacramentodalurinn með næsta lendingar- stað okkar, ekki meir en 700 fet yfir sjávarmál. Hlökk- uðum við til að komast niður á jafnsléttu, eftir að vera búnir að klifra í fjöllunum undanfarna fimm daga. Þær 10—15 mílur> sem hæðamismunurinn bætti við hraðann, var mjög kærkominn. Eftir að við komum framhjá Mt. Shasta, tók við Mt. Shasta. FLUG - 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Flug : tímarit um flugmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.