Flug : tímarit um flugmál - 01.08.1949, Síða 49

Flug : tímarit um flugmál - 01.08.1949, Síða 49
í spun og lækkaði þannig niður í 3000 raetra. Þar áttaði hann sig og spann síðan áfram niður í 900 metra, þá kom hann auga á stóran flugvöll í rökkr- inu og renndi sér þangað og lenti. Flugvöllurinn, sem hann lenti á, var enginn annar en Muroc Drv Lake, einn aðal rannsókna- og reynslu- flugvöllur flughersins, þar sem reyndar eru m. a. rakettuflugvélar, sem fara hraðar en hljóðið. Senni- lega er Muroc sá flugvöllur Bandaríkjanna, sem hefir strangastan vörð, til að halda öllum forvitnum í hæfilegri fjarlægð, en samt laumaðist Robinson þarna inn á völlinn án þess að nokkur sæi hann eða hevrði og lenti fyrir framan eitt flugskýlið. Frá Muroc fór Robinson heirn til Arcada, nálægt Los Angeles, þar sem hann er vélvirki. Hann hafði aðeins átt frí frá störfum á nýársdag- inn, en hafði notað frídaginn vel. Það er erfitt að fljúga með súrefnisgrímu, gæta súrefnistækjanna og sjá um að birgðirnar endist, með ísaðar rúður í svo ókyrru lofti, að sveiflurnar gáfu frá -f- 2 upp í -j- 5,5 G., en þó var kuldinn óþægi- legastur. Mac Cready flaug í 50 stiga frosti. í klefanum var 40 stiga frost við fætur hans, enda kól hann lítils- háttar á einni tánni, þrátt fyrir upphituð stígvél. Á sama tíma var 15 stiga hiti, þegar sólin skein á höfuð honum. Það þarf rnikla æfingu og þekkingu á öllum stað- háttum til að fljúga slík flug. Það er álit manna, að hjá Bishop sé hægt að ná 12—14000 metra hæð, sem myndi nægja til að slá met Persons í hæðaraukningu og einnig hið óviður- kennda hæðarmet, sem Þjóðverjinn Klockner setti yfir Alpafjöllunum 1940, þegar hann komst í 11460 metra hæð. Það met verður þó ekki viðurkennt vegna þess, að hæðaraukning hans nam ekki 5000 metr- um, auk þess sem ákveðið hefir verið að engin met sett á styrjaldarárunum verði viðurkennd. Þegar maður hefir náð slíkum hæðum, hefir maður auðvitað möguleika til að svífa langar vegalengdir. Robinson flaug 280 km. án þess að ætla sér að fljúga langt. Með því að notfæra sér hinn mikla vindhraða, sem samfara er þessum bylgjum, og fljúga undan vindi frá bylgju að bylgju, ætti að vera auðvelt að hnekkja heimsmeti rússnesku stúlkunnar OlgU Klepikova, sem er 749 km., sett árið 1939. Á komandi vetri búast amerískir svifflugmenn við fréttum af miklum afrekum frá Bishop, og hvað skyldu íslenzkir svifflugmenn komast hátt í bylgj- unni af Esjunni nú í haust? Nýjar {ltiévélateémaLdir. Fyrir nokkru fréttist, að orustufluga hefði lyft sér frá jörðu upp í 40.000 fet á rétt rúmlega 4 mínútum. Var það Gloster Meteor orustufluga knúin tveim Rolls Royce Avon túrbínu- mótorum. Avon er álitinn einhver kraftmesti túrbínu-þrýsti- loftsmótor, sem til er, en Rolls Royce fyrirtækið hefir ekki enn opinberlega birt lýsingu á honum, né gefið upp hestafla- fjölda hans. Önnur fluga, sem notfærir sér hið mikla afl Avon túrbín- unnar, er hin nýja sprengjuflugvél Breta, „CANBERRA“. Flaug hún n}'lega á flugsýningunni að Famborough, og að sögn áliorfenda, var henni stjómað af mestu snilld, og mátti líkja hreyfingum og flugeiginleikum hennar saman við nýtízku orustuflugu. Hefir ekkert verið opinberlega tilkyTint um hraða hennar, eða hve langt og hátt hún getur flogið, annað en að hún sé bvggð til að fljúga hátt og á miklum hraða. FLUG - 47

x

Flug : tímarit um flugmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.